Málþing um kynferðisofbeldi og samfélag sem bregst
Kvenréttindafélag Íslands, Bjarkarhlíð, Kvennaathvarfið, Líf án ofbeldis, Stígamót og Vitund standa fyrir málþingi í kjölfar þáttaraðarinnar Biskupsmálið eftir Gabríelu Bryndísi Ernudóttur sálfræðing. Til máls tóku Guðrún Ebba Ólafsdóttir, Dr. Anna Ragna Fossberg, Aldís Schram, Jenný Kristín Valberg. Fundar- og pallborðsstjóri var Elín Hirst.