Mínus snýr aftur Rokksveitin Mínus heldur tónleika á Grand Rokk annað kvöld, laugardaginn 14. júlí. Þetta verða fyrstu tónleikarnir þar sem sveitin er í aðalhlutverki síðan mannabreytingar urðu fyrir skemmstu. Eins og kom fram í fjölmiðlum sögðu Frosti Logason gítarleikari og Þröstur Jónsson bassaleikari skilið við Mínus. Í staðinn var fenginn bassaleikarinn Sigurður Oddsson úr Future Future. Tónlist 13. júlí 2007 01:00
Dívur á Domo Söngkonurnar Margrét Eir, Hera Björk, Regína Ósk og Heiða Ólafsdóttir hafa komið fram saman og vakið mikla lukku áhorfenda. Nú endurtaka þær leikinn vegna mikillar eftirspurnar og vellukkaðra tónleika fyrr í vetur. Tónlist 12. júlí 2007 09:00
Sumartónleikar í Skálholti Dagskrá þriðja hluta Sumartónleika í Skálholti hefst í dag og stendur fram á sunnudag. Í henni kennir ýmissa grasa og ber þar hæst samstarfsverkefnið Ísland-Austurríki en um er að ræða verkefni sem Sumartónleikar hafa unnið í samvinnu við tvö austurrísk tónskáldafélög. Tónlist 12. júlí 2007 08:15
Bubbi og Nylon saman á sviði Samkvæmt öruggum heimildum Fréttablaðsins hyggst Kaupþing blása til mikillar veislu á 25 ára afmæli fyrirtækisins síðar í sumar. Kaupþing hefur fengið sjálfan umboðsmann Íslands, Einar Bárðarson, til að skipuleggja stórtónleika sem fara fram annaðhvort á Miklatúni, Laugardalsvelli eða Nauthólsvík en líklegast verður að teljast að Miklatún verði fyrir valinu enda sýndi það sig með Sigur Rósar-tónleikunum að grasflöturinn hentar vel fyrir slíka viðburði. Tónleikarnir fara fram á sjálfan afmælisdaginn eða 17. ágúst. Tónlist 12. júlí 2007 07:00
Endurreisn langspilsins Þjóðlagahátíðin á Siglufirði er nýafstaðin og kom langspil mjög við sögu á henni. Örn Magnússon lék á langspil á tvennum tónleikum á hátíðinni og hélt erindi á málþingi um hljóðfærið. Tónlist 12. júlí 2007 06:30
Tónleikar: Toto - þrjár stjörnur Þó að það hafi ekki borið mjög mikið á Toto undanfarin ár var Laugardalshöllin nálægt því að vera full á þriðjudagskvöldið og greinileg eftirvænting í loftinu þegar hljómsveitin birtist á sviðinu og hóf leik um klukkan hálf níu. Tónlist 12. júlí 2007 05:00
ET Tumason: Live At 8MM - þrjár stjörnur ET Tumason er listamannsnafn blúsarans Elliða Tumasonar. Live At 8MM er hans fyrsta plata. Hún var tekin upp á tónleikum á barnum 8MM í Berlín, en hann er í eigu sömu aðila og reka 8MM Records, lítið óháð plötufyrirtæki sem hefur getið sér gott orð á undanförnum árum og gaf m.a. nýverið út safnplötuna The Curse, The Life, The Blood með Singapore Sling. Tónlist 12. júlí 2007 05:00
Innocence næsta smáskífa Bjarkar Næsta smáskífa af plötunni Volta frá Björk Guðmundsdóttur mun innihalda lagið Innocence, sem var framleitt með Timberland og Danja. Tónlist 11. júlí 2007 16:41
Dansinn dunar Simian Mobile Disco (SMD) er rafrænn dansdúett nafnanna James Ford og James Shaw. Þeir voru áður í kvintettinum Simian sem gerði lagið Never Be Alone sem seinna var endurhljóðblandað af Frökkunum í Justice. Varð þá til klúbbaslagarinn We Are Your Friends með Justice vs. Simian. Frá 2005 hafa SMD síðan verið að endurhljóðblanda urmul af lögum, til dæmis með Klaxons, The Rapture og Air við góðan orðstír. Tónlist 11. júlí 2007 02:45
Ferskleiki í Astrópíu Geisladiskurinn með lögunum úr myndinni Astrópíu er allur að smella saman og ljóst er að þar verður á ferðinni einvalalið úr röðum ungra og efnilegra tónlistarmanna. Þarna eru til dæmis tónlistarmenn og hljómsveitir eins og FM Belfast, Sprengjuhöllin, Motion Boys, Ultra Mega Technobandið Stefán, Lay Low, Wulfgang, Kaja og fleiri. Tónlist 10. júlí 2007 02:15
Kokkteilkvartett í góðu grúvi Lára Rúnarsdóttir syngur í nýju „kokkteilbandi“ sem ber heitið Kvartett Jakobs Smára Magnússonar. Vignir Guðjónsson fékk að vita meira um málið. Tónlist 10. júlí 2007 01:15
Vonlaus endurkoma Þessi endurkomuplata Manchester-sveitarinnar Happy Mondays er hennar fyrsta plata með nýju efni síðan Yes Please kom út fyrir 15 árum. Sveitin hefur verið að byrja og hætta af og til síðan hún hætti fyrst árið 1993. Í dag eru söngvarinn og textasmiðurinn Shaun Ryder, dansarinn Bez og trommuleikarinn Gaz Whelan þeir einu sem voru í hljómsveitinni þegar hún var upp á sitt besta. Tónlist 10. júlí 2007 00:30
Nýtt viðmið í íslenskri tónlistarmyndbandagerð Það er búið að setja nýtt viðmið í íslenskum tónlistarmyndböndum segja Páll Óskar Hjálmtýsson og Hannes Þór Halldórsson, sem undanfarna mánuði hafa unnið að einhverju dýrasta myndbandi sem gert hefur verið á Íslandi. Tónlist 9. júlí 2007 20:15
Styttist í endurkomu Kristjáns Jóhannssonar „Ég get ekki uppljóstrað hvenær það verður, en þetta verður fyrr en seinna á þessu ári,“ segir óperusöngvarinn Kristján Jóhannsson. Hann hyggst snúa aftur til Íslands og halda tónleika hér á landi en það yrðu þeir fyrstu eftir að mikið fjölmiðlafár varð í kringum góðgerðatónleika Ólafs M. Magnússonar árið 2004 en þar var Kristján sagður taka óeðlilega há laun fyrir að koma fram. Tónlist 9. júlí 2007 09:45
Tónleikar í Sigurjónssafni Árlegir sumartónleikar Listasafns Sigurjóns hófu göngu sína sumarið 1989. Tónleikaröðin þótti kærkomin viðbót við menningarlífið í borginni því framan af voru þetta einu reglulegu tónlistarviðburðir á sumrin í Reykjavík. Tónlist 9. júlí 2007 06:00
Dungen: Tio bitar - tvær stjörnur Dungen er hljómsveit (í raun verk eins manns, Gustav Ejstes) frá Stokkhólmi í Svíþjóð. Sveitin hefur sent frá sér nokkrar skífur en síðasta plata, Ta det lungt, sló í gegn meðal tónlistarspekúlanta víða um heim og hróður hennar barst víða. Tónlist 8. júlí 2007 12:00
Potts gefur út plötu Paul Potts, símasölumaðurinn sem nýlega vann hug og hjörtu heimsbyggðarinnar með frammistöðu sinni í þáttunum Britain"s got talent, hefur lokið við upptökur á sinni fyrstu plötu og er hún væntanleg í verslanir í næstu viku. Tónlist 8. júlí 2007 11:30
Vill semja fyrir Beyoncé „Ég fékk styrk frá Menningarsjóði Glitnis og er með tvö lög í farvatninu," segir Jón Jósep Snæbjörnsson, betur þekktur sem Jónsi. Nýlega stóð Icefusion.com og Hótel Glymur fyrir merkilegum vinnudögum í Hvalfirðinum þar sem margir af fremstu lagasmiðum þjóðarinnar hittu fyrir virta erlenda starfsbræður sína. Tónlist 7. júlí 2007 11:30
Slátur með tónleika í Aminu Í kvöld verða tónleikar í galleríinu Aminu í Ingólfsstræti. Þar er félagsskapurinn Slátur á ferð: Samtökin eru eldri en margan grunar en skammstöfunin stendur fyrir Samtök listrænt ágengra tónsmiða umhverfis Reykjavík. Tónlist 7. júlí 2007 07:30
Apókrýfa í Skálholti og fleira hollt Sumartónleikar í Skálholti halda áfram: stórviðburður helgarinnar er Íslandsfrumflutningur á nýju verki eftir Huga Guðmundsson, APOCRYPHA, sem jafnframt er lokaverkefni hans úr Sonology-stofnuninni í Den Haag í Hollandi. Verkið er fyrir mezzósópran, barokkhljóðfæri og gagnvirk tölvuhljóð og fyllir heila tónleika. Þeir áttu að vera í dag kl. 15 en verða færðir til kl. 17. Þess í stað verða tónleikar Nordic Affect kl. 15. Að öðru leyti er dagskrá helgarinnar óbreytt. Tónlist 7. júlí 2007 06:00
Stuð á Sirkus Tónleikaröð Reykjavík Grapevine, Take me down to Reykjavík City, heldur áfram í dag. Tónleikarnir fara fram í garðinum á Sirkus við Klapparstíg og verða í tvennu lagi að þessu sinni. Tónlist 7. júlí 2007 04:00
Þjóðlagahátíð brátt á enda Tveir dagar eru nú eftir af dagskrá Þjóðlagahátíðarinnar á Siglufirði. Henni lýkur á sunnudagskvöld. Hátíðin ber að þessu sinni heitið Ríma og eru kvæðamenn því áberandi í dagskránni. Í dag kl. 10 hefst langspilsþing á Kirkjuloftinu. Á sunnudag verða tvennir tónleikar. Tónlist 7. júlí 2007 02:30
Þjóðhátíðarlagið 2007 Mikil spenna ríkir ár hvert um hvernig þjóðhátíðarlagið muni hljóma. Nú er biðin á enda fyrir þetta ár. Hljómsveitin Dans á rósum frumfluttli þjóðhátíðarlagið 2007, Stund með þér, í Íslandi í dag í kvöld. Tónlist 6. júlí 2007 20:46
Stóra prófið hjá Interpol Þriðja plata Interpol er væntanleg í búðir eftir helgi en þriðja plata ýmissa listamanna hefur oft reynst þeim þrautinni þyngri. Steinþór Helgi Arnsteinsson athugaði málið betur. Tónlist 6. júlí 2007 03:45
Jón Sæmundur opnar í dag Jón Sæmundur Auðarson opnar í dag nýja búð sem selur Dead-vörumerkið hans, rokkabillí-föt og silkiprentunarútbúnað. Auk þessa hefur hann stofnað tónlistarútgáfuna Dead Records. Tónlist 6. júlí 2007 03:00
Melodía komin út Í Árnasafni í Kaupmannahöfn er varðveitt sautjándu aldar handrit sem lætur lítið yfir sér en geymir fjársjóð sem tengir íslenskt þjóðlíf á þeim tímum og jafnvel fyrr við menningarheim Evrópu. Tónlist 6. júlí 2007 02:00
Vatnið úr myllu kölska Þegar Roni Horn kom Vatnasafni sínu á fót í Stykkishólmi var stór hluti af áætlunum hennar og breska listafyrirtækisins ArtAngel að þar yrði sköpuð aðstaða fyrir Hólmara og aðkomumenn til samkomuhalds. Annað kvöld rætist það: Guðlaugur Kristinn Óttarsson og Einar Melax verða þar með tónleika. Tónlist 6. júlí 2007 02:00
Curver endurútgefur Sjö „Platan kom áður út fyrir tíu árum, þann sjöunda sjöunda 1997. Þetta er hugmyndafræðileg plata sem gengur alfarið út á töluna sjö og verknaðinn við að gera plötuna frekar en lögin sjálf,“ segir Curver sem endurútgefur plötuna Sjö á morgun. Tónlist 6. júlí 2007 01:45
Pavarotti nær dauða en lífi Óperusöngvarinn Luciano Pavarotti telur að hann muni deyja á allra næstu dögum eftir að hafa barist við krabbamein í briskirtli frá því í júlí í fyrra. Að sögn dóttur Pavarottis, Giuliana, er úthaldið á þrotum eftir rúmlega árslanga baráttu. Tónlist 6. júlí 2007 01:30
Bakkabræður vildu Nínu og Álfheiði Björk Þrír meðlimir hljómsveitarinnar Dúndurfrétta mættu í veiðihúsið við Kjarrá síðastliðinn sunnudag til þess að spila fyrir góðan hóp gesta. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins fóru Bakkavararbræður þar fremstir í flokki og buðu þeir upp á bæði dýrindis kálfakjöt og eðalvín. Tónlist 6. júlí 2007 00:15