Skorið úr um lögmæti verkfalla í fyrramálið Félagsdómur kveður upp dóm í máli Sambands íslenskra sveitarfélaga á hendur Kennarasambandi Íslands í fyrramálið. SÍS telur verkfallsboðun kennara ólögmæta og ákvað að láta reyna á lögmæti þeirra fyrir félagsdómi. 22.10.2024 15:35
Matvara hækkar með rykk eftir tveggja mánaða lækkun Eftir tveggja mánaða lækkun á verðlagi matvöru hækkar það nú með nokkrum rykk. Hækkunin milli september og október nemur einni prósentu, að mestu leyti vegna hækkunar á kjötvöru. 22.10.2024 14:44
Rafmagnslaust á Húsavík fram á kvöld Rafmagnslaust er í stórum hluta Húsavíkur og gert er ráð fyrir að rafmagnsleysið vari til 22:30 í kvöld. 22.10.2024 13:58
Ekki heppilegt ef verkalýðshreyfingin tæmist inn á Alþingi Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér í framboð til Alþingis að þessu sinni. Komið hafi verið að máli við hann, eins og raunar fyrir allar alþingiskosningar síðasta áratuginn, en hann hafi ákveðið eftir langa yfirlegu að kröftum hans sé betur varið í verkalýðshreyfingunni. 22.10.2024 12:19
Grímur undir feldi Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, íhugar alvarlega framboð fyrir Viðreisn í öðru hvoru Reykjavíkurkjördæminu. 22.10.2024 09:17
Alma og Guðmundur Ari leiða í Kraganum Guðmundur Ari Sigurjónsson, formaður framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar, mun skipa annað sætið á lista flokksins í Suðvesturkjördæmi. Alma Möller verður í því fyrsta og Þórunn Sveinbjarnardóttir í því þriðja. Markmið Guðmundar er að ná sama árangri á landsvísu og hann náði í sveitarstjórnarkosningunum árið 2022 á Seltjarnarnesi, fjörutíu prósent atkvæða. 21.10.2024 17:12
Oculis rauk upp eftir tilkynningu Gengi hlutabréfa augnlyfjafyrirtækisins Oculis rauk upp um tæplega tíu prósent í dag. Í morgun tilkynnti félagið að innritunum þátttakenda í rannsóknum á lyfinu OCS-01 hefði verið flýtt verulega. 21.10.2024 16:00
Ekkert drama á bak við frestun fundarins Stjórn kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokks í Suðvesturkjördæmi hefur ákveðið að fundur kjördæmisráðsins sem átti að fara fram á morgun verði frestað fram á fimmtudagskvöld. Á fundinum stendur til að kynna allan lista flokksins í kjördæminu. Formaður kjördæmaráðs segir ástæðuna ekki vera nokkurs konar ágreining. 21.10.2024 14:47
Bæjarstjóri dembir sér í landsmálin Arna Lára Jónsdóttir bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar gefur kost á sér í oddvitasæti Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi. 21.10.2024 14:20
Brynjar fái þriðja sætið: „Þeir vita meira en ég“ Ríkisútvarpið fullyrðir að Brynjar Níelsson varaþingmaður fái þriðja sætið á lista Sjálfstæðismanna í Reykjavíkurkjördæmi norður. „Þeir vita meira en ég,“ segir Brynjar í samtali við Vísi. 21.10.2024 12:35