„Óásættanlegt að fyrrverandi starfsfólki sé haldið í spennitreyju“ Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, segir nýja umfjöllun Heimildarinnar um Namibíumálið svokallaða engu nýju ljósi varpa á málsatvik. „Mér þykir mjög miður og algjörlega óásættanlegt að fyrrverandi starfsfólki fyrirtækisins sé haldið í spennitreyju með réttarstöðu sakbornings í fimm ár án tilefnis.“ 18.10.2024 14:21
Vill úr borgarstjórn á Alþingi Dóra Björt Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi Pírata, hefur ákveðið að gefa kost á sér til forystu Pírata á Alþingi og býður sig fram í Reykjavík. 18.10.2024 12:52
Play í frjálsu falli Hlutabréfaverð flugfélagsins Play er í frjálsu falli eftir tilkynningu um breytingu á rekstrarformi félagsins í vikunni. Einn af fjórum stærstu hluthöfum félagsins seldi 71 milljón hluta í morgun á genginu ein króna á hlut. Dagslokagengið á miðvikudag var 1,92 krónur. 18.10.2024 11:49
„Fólk hefur verið að ýta við mér“ Flosi Eiríksson, fyrrverandi bæjarfulltrúi og oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi, segist íhuga það alvarlega að skella sér í pólitíkina á ný ef félagar hans í Samfylkingunni vilja njóta liðsinnis hans. 18.10.2024 10:37
Semja við flugfélög í Færeyjum og á Grænlandi Icelandair skrifaði undir tvo samstarfssamninga um sammerkt flug á Hringborði Norðurslóða í dag, við Air Greenland og færeyska flugfélagið Atlantic Airways. Með þessum samningum geta félögin boðið öflugar tengingar milli Grænlands og Færeyja annars vegar og Norður-Ameríku og Evrópu hins vegar, í einum flugmiða í gegnum Ísland. 17.10.2024 16:51
Vilhjálmur blandar sér í baráttuna í Kraganum Enn bætist í fjölda þeirra sem vilja sæti ofarlega á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi. Vilhjálmur Bjarnason, fyrrverandi þingmaður flokksins, gefur kost á sér í annað til fjórða sæti listans. 17.10.2024 15:42
Frigus fór fýluferð í Landsrétt Landsréttur hefur staðfest sýknudóm í máli Frigusar II ehf. á hendur Lindarhvoli og íslenska ríkinu. Frigus krafðist rúmlega 650 milljóna króna vegna þess að félagið fékk ekki að kaupa eignarhaldsfélagið Klakka, áður Exista, af Lindarhvoli. 17.10.2024 15:02
G. Sigríður vill annað sætið í Norðvestur G. Sigríður Ágústsdóttir hefur tilkynnt að hún hafi ákveðið að gefa kost á sér í annað sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi fyrir komandi alþingiskosningar. Hún er fædd og uppalin á Bíldudal og býr í dag í Reykjavík. 17.10.2024 14:56
Bjarni hættur í Vinstri grænum Bjarni Jónsson þingmaður hefur sagt sig úr Vinstri grænum og sagt skilið við þingflokkinn. Hann segir flokkinn hafa sveigt af leið og brugðist grunngildum sínum og væntingum þeirra sem stóðu að stofnun hans. 17.10.2024 14:44
Jón Magnús gefur kost á sér Jón Magnús Kristjánsson, fyrrverandi yfirlæknir bráðalækninga á Landspítalanum, mun óska eftir þriðja til fjórða sæti á lista Samfylkingarinnar í öðru hvoru Reykjavíkurkjördæminu. 17.10.2024 12:02