Sjálfstæðismenn og Framsóknarmenn mynda meirihluta Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur hafa ákveðið að mynda meirihluta í bæjarstjórn Fjarðabyggðar. Meirihlutinn samanstendur af sjö af níu bæjarfulltrúum. 19.3.2024 17:59
Tíu milljónir safnast fyrir grindvísk ungmenni Sunnudaginn 17. mars fór fram samverustund Grindvíkinga í Hörpu til styrktar börnum, unglingum og æskulýðsstarfi í Grindavík. Á samverustundinni var tilkynnt að tíu milljónir króna hefðu safnast. 18.3.2024 23:21
Bankasýslan kom af fjöllum þegar tilkynnt var um kaupin Forstjóri Bankasýslu ríkisins segir að stofnuninni hafi verið alls ókunnugt um kaup Landsbankans á öllu hlutafé í TM tryggingum. Landsbankinn haldi því fram að upplýst hafi verið um áhuga bankans á kaupunum í óformlegu símtali til stjórnarformanns Bankasýslunnar. 18.3.2024 22:28
Lýsir yfir vonbrigðum og krefst frestunar aðalfundar Bankasýsla ríkisins hefur lýst yfir vonbrigðum með ákvarðanatöku og upplýsingagjöf bankaráðs Landsbankans um kaup bankans á TM. Bankasýslan krefst þess að aðalfundi Landsbankans verði frestað um fjórar vikur vegna fyrirséðra áhrifa kaupanna á dagskrá, umræður og niðurstöður fundarins. 18.3.2024 21:57
Árekstur við Kaplakrika Árekstur tveggja bíla var á gatnamótum Reykjanesbrautar og Fjarðarhrauns við Kaplakrika í Hafnarfirði á níunda tímanum í kvöld. Engin alvarleg slys urðu á fólki. 18.3.2024 20:54
Eldgosið hagi sér öðruvísi og gæti varað lengur Prófessor í jarðeðlisfræði segir eldgosið sem hófst á laugardag hegða sér öðruvísi en hin þrjú sem komið hafa upp á Sundhnúksgígaröðinni. Stöðug virkni í því gæti þýtt að það vari talsvert lengur en síðustu gos. 18.3.2024 20:30
Enn mikið sjónarspil á gosstöðvunum Talsvert sjónarspil er enn á gosstöðvunum milli Stóra-Skógfells og Hagafells, þar sem eldgos hófst á laugardagskvöld. 18.3.2024 19:17
Hvorki sakborningur né fórnarlamb kannast við skotárásina Ungur karlmaður sem sætir ákæru fyrir tilraun til manndráps við Silfratjörn í Úlfarsárdal í nóvember síðasta árs þvertók fyrir að hafa beitt skotvopni í árásinni. Sá sem varð fyrir skoti í árásinni kvaðst ekkert muna eftir árásinni. 18.3.2024 18:29
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Virkni í eldgosinu hefur haldist nokkuð stöðug síðan í gær og hrauntunga sem stefnir í átt að Suðurstrandavegi hreyfist hægt. Óttast er að barmur hrauntjarnar gæti brostið og hraun flætt hratt yfir veginn. Við ræðum við Magnús Tuma Guðmundsson prófessor í jarðeðlisfræði í beinni um stöðuna í kvöldfréttum Stöðvar 2. 18.3.2024 18:05
Stefán Ingimar neitar að koma til landsins Stefán Ingimar Koeppen Brynjarsson, sem er eftirlýstur á vef alþjóðalögreglunnar Interpol að beiðni lögreglu á Íslandi, hefur verið í sambandi við lögreglu hér á landi en harðneitar að koma til landsins til yfirheyrslu. Lögregla vill ná tali af honum vegna þriggja mála sem varða innflutning fíkniefna. 18.3.2024 17:41