Verður kominn í rafrænt eftirlit þremur árum eftir manndrápið Sæmundur Tryggvi Norðquist Sæmundsson, nítján ára karlmaður sem hlaut tólf ára fangelsisdóm fyrir manndráp við Fjarðarkaup í apríl í fyrra, afplánar nú á áfangaheimilinu Vernd. Þar má hann vera í átján mánuði og eftir það fer hann í rafrænt eftirlit, gangi allt að óskum. 8.10.2024 11:32
Oculis á mikilli siglingu og Kauphöllin iðagræn Hlutabréfaverð augnlyfjafyrirtækisins Oculis heldur áfram að hækka og tók stökk upp á 8,72 prósent í dag. Gengi Play hækkaði þó enn meira en það í örviðskiptum upp á fimm milljónir króna. 7.10.2024 17:02
Dómur yfir Alberti kveðinn upp á fimmtudag Dómur í nauðgunarmáli Alberts Guðmundssonar verður kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur á fimmtudag. Verði hann sakfelldur á hann yfir höfði sér allt að sextán ára fangelsisdóm. 7.10.2024 16:29
Með ófullnægjandi hjálm þegar banaslys varð Banaslys sem varð á Laugarvatnsvegi sumarið 2023 orsakaðist af því að bifhjólamaður missti stjórn á bifhjólinu þegar það fór að skjálfa og skakast á veginum. Þá var hann með ófullnægjandi hjálm og boltar í stýri hjólsins voru lausir. 7.10.2024 16:00
„Þingflokkur Pírata braut á mér“ Fyrrverandi starfsmaður Pírata segir þingflokkinn hafa brotið á honum og átta öðrum Pírötum, með því að skoða, dreifa og taka fyrir einkasamtöl hópsins um stjórnmálaþátttöku innan Pírata. Hann var látinn taka pokann sinn eftir umdeildan aðalfund flokksins. 7.10.2024 14:30
Skaut hundinn sjálfur og fékk háa sekt Eigandi hunds á höfuðborgarsvæðinu fór með hund upp í sveit og skaut hann. Eigandinn situr uppi með 230 þúsund króna sekt. 7.10.2024 13:15
Hætta að sekta fyrir notkun nagladekkja Lögreglan á Suðurlandi hefur tilkynnt að hún sé hætt að sekta ökumenn bifreiða búnum nagladekkjum. Enn eru rúmar þrjár vikur í að notkun nagladekkja verði lögleg. 7.10.2024 12:20
Fylgdu eftir ábendingum um aðkomu undirheimanna Lögregla fylgdi eftir ábendingum um að menn úr undirheimum hafi komið að andláti tíu ára stúlku sem fannst látin við Krýsuvíkurveg þann 15. september. Ekki er talið að nokkuð bendi til aðkomu annarra en föður stúlkunnar, sem grunaður er um að hafa ráðið henni bana. 7.10.2024 11:40
Ekki í belti og undir áhrifum þegar hann lést Ökumaður sem lést þegar sendibifreið hafnaði utan Reykjanesbrautar við Innri-Njarðvík í nóvember árið 2023 var ekki í belti og varð að hluta undir bifreiðinni. Hann var undir áhrifum fíkniefna þegar hann lést. 7.10.2024 10:30
Nefndin deili ekki við þá sem gagnrýna hana á „mis málefnalegan hátt“ Formaður Úrskurðarnefndar lögmanna segir nefndina ekki geta brugðist við harðri gagnrýni á störf hennar, sem Ómar Valdimarsson hæstaréttarlögmaður viðraði í pistli í morgun. Nefndin geti ekki deilt opinberlega við þá sem gagnrýna störf hennar á „mis málefnalegan hátt.“ 4.10.2024 16:47