Sótti 410 milljónir og margfaldaði starfsmannafjöldann Íslenska leikjafyrirtækið Porcelain Fortress tryggði sér á dögunum þriggja milljóna dollara fjárfestingu, eða um 410 milljóna króna, fyrir þróun á ótilkynntum leik fyrirtækisins. Á árinu hefur starfsmönnum fjölgað úr fjórum í fjórtán. 18.9.2024 13:57
Tileinkuðu söng við heilbrigðisráðuneytið Yazan Samstöðukór fyrir frjálsri Palestínu kom saman og söng fyrir utan Heilbrigðisráðuneytið í morgun. Kórinn vakti athygli á stöðu heilbrigðismála í Palestínu í yfirlýsingu sinni og tileinkaði sönginn Yazan Tamimi, ellefu ára langveika drengnum sem enn stendur til að vísa úr landi. Heilbrigðisráðherra hlýddi ekki á sönginn. 18.9.2024 13:37
Lögregla komin með ágæta mynd af atburðum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu telur sig vera komna með ágæta mynd af atburðum í tengslum við andlát tíu ára stúlku sem fannst látin í Krýsuvík á sunnudagskvöld. Faðir stúlkunnar, sem grunaður er um að hafa ráðið henni bana, hefur ekki verið yfirheyrður síðan á sunnudag. 18.9.2024 12:17
Forstjóri nýrrar Umhverfis- og orkustofnunar úr stóriðjunni Umhverfis-, orku og loftslagsráðherra hefur skipað Sigrúnu Ágústsdóttur í embætti forstjóra Náttúruverndarstofnunar og Gest Pétursson í embætti forstjóra Umhverfis- og orkustofnunar. 18.9.2024 10:06
Blöskrar markaðssetning á réttum: „Þetta eru eins og jólin fyrir okkur“ Bóndi lýsir yfir megnri óánægju sinni með markaðsetningu Icelandair á réttum gagnvart ferðamönnum. Réttir séu mikilvægur dagur fyrir alla bændur og því bagalegt ef ekki verður þverfótað fyrir ferðamönnum í almenningnum. Þá sé ekki síst mikilvægt að féð sé meðhöndlað af vönu fólki. 18.9.2024 08:46
Hvorki verið að fylgja fólki né fara með það heim Uppgjafaprófessor í íslenskri málfræði furðar sig á nýju nafni deildar Ríkislögreglustjóra sem framfylgir brottvísunum hælisleitenda, sem ekki fá hæli hér á landi. Deildin hét áður stoðdeild en heitir nú heimferða- og fylgdadeild. 17.9.2024 16:59
Steinar fjárfestir í Snjallgögnum Steinar Björnsson hefur bæst við hluthafahóp sprotafyrirtækisins Snjallgagna. Aðrir bakhjarlar Snjallgagna í dag eru Bright Ventures og Gísli Kr., Founders Ventures, Icelandic Venture Studio, MGMT Ventures og Tennin. Snjallgögn er tíu manna hugbúnaðarhús með höfuðstöðvar í Reykjavík. Fyrirtækið þróar lausnir er gera vinnustöðum mögulegt að hagnýta gervigreind og gagnavísindi til að efla sölu og þjónustu ásamt því að bæta daglegan rekstur. 17.9.2024 16:10
Bjørn Richard til liðs við Athygli Norðmaðurinn Bjørn Richard Johansen hefur gengið til liðs við Athygli sem tengdur ráðgjafi og tekur jafnframt sæti í stjórn félagsins. 17.9.2024 15:56
„Ég hótaði ekki stjórnarslitum“ Guðmundur Ingi Guðbrandsson, formaður Vinstri grænna, segist ekki hafa hótað stjórnarslitum yrði brottflutningi Yazans Tamimi og fjölskyldu ekki frestað. Hann vill þó ekkert gefa upp um það hvort málið gæti leitt til stjórnarslita. 17.9.2024 12:04
„Þó að það hafi verið mér þvert um geð“ Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra segir að hún hafi ákveðið að verða við beiðni félags- og vinnumarkaðsráðherra um frestun brottflutnings Yazans Tamimi og fjölskyldu, þótt það hefði verið henni þvert um geð. 17.9.2024 11:40