Þriðji fíkniefnasmyglarinn látinn á árinu á Grænlandi Karlmaður á sextugsaldri er látinn eftir að hafa reynt að smygla fíkniefnum innvortis til Grænlands. Hann er sá þriðji síðan í júní sem hefur látist af þeim völdum. 31.10.2022 18:30
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Stjórnarþingmenn telja ólíklegt að hægt verði að halda stjórnarsamstarfinu áfram verði Guðlaugur Þór kjörinn nýr formaður flokksins næstu helgi. Stjórnmálaskýrandi segir formannsslaginn hreinlega snúast um hvort blása eigi til þingkosninga í ár. Farið verður yfir málið og fyrirkomulag formannskjörsins í kvöldfréttum Stöðvar 2. 31.10.2022 17:59
„Lítill naglbítur á leiðinni“ Listamennirnir Saga Sigurðardóttir og Vilhelm Anton Jónsson eiga von á barni. 31.10.2022 17:46
„Við erum ólíkir menn“ Guðlaugur Þór Þórðarson ákvað í gærmorgun að bjóða sig fram til formanns Sjálfstæðisflokksins. Hann tilkynnti mótherja sínum í formannsslagnum, Bjarna Benediktssyni, ákvörðun sína í morgun en gefur ekkert upp um það hvað fór þeim á milli áður en hann tilkynnti ákvörðun sína opinberlega. 30.10.2022 16:27
Guðlaugur Þór tekur slaginn við Bjarna Guðlaugur Þór Þórðarson, orku- og loftslagsráðherra, hefur ákveðið að gefa kost á sér í embætti formanns Sjálfstæðisflokksins. Ljóst er að slagurinn við Bjarna Benediktsson, sitjandi formann, verður harður á landsfundi flokksins næstu helgi. 30.10.2022 13:11
Guðlaugur Þór ávarpaði Sjálfstæðismenn Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, ætlar að taka slaginn gegn Bjarna Benediktssyni. 30.10.2022 12:09
Stofnun stéttarfélags ekki til höfuðs Sólveigu Önnu Hafnarverkamenn komu saman í gær og ræddu mögulega stofnun stéttarfélags og þar með úrsögn úr Eflingu. Forsvarsmaður þeirra segir ekki rétt að stofnun stéttarfélags sé hugsuð til höfuðs Eflingu og formanni hennar. 30.10.2022 12:02
Hádegisfréttir Bylgjunnar Flest bendir til þess að Guðlaugur Þór Þórðarsson umhverfisráðherra tilkynni framboð til formanns Sjálfstæðisflokksins gegn Bjarna Benediktssyni í dag. Hann hefur boðað til blaðamannafundar í Valhöll klukkan hálf eitt, eftir rúman hálftíma, þar sem hann hyggst greina frá ákvörðun sinni. Hann staðfestir ekkert um framboð þangað til. Fjallað verður ítarlega um málið í hádegisfréttum. 30.10.2022 11:54
Söngvari Low roar er látinn Ryan Karazija, söngvari hljómsveitarinnar Low Roar er látinn aðeins fertugur að aldri. Hann hafði verið búsettur hér á landi frá árinu 2010. 30.10.2022 10:02
Umhverfissinnar uggandi yfir áhrifum Shein Fatasmásölurisinn Shein hefur rutt sér rúms á íslenskum markaði. Föt fyrirtækisins hafa mælst eitruð og umhverfisfótspor þeirra er gríðarlegt. Ungir umhverfissinnar hafa áhyggjur af stöðunni og markaðstorg fyrir notaðar flíkur hefur tekið vörur fyrirtækisins úr umferð. 29.10.2022 17:35