Íþróttafréttamaður

Aron Guðmundsson

Aron er íþróttafréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Kristian gerði sínu gamla fé­lagi grikk

Kristian Nökkvi Hlynsson var á sínum stað í byrjunarliði Twente sem sótti afar mikilvægan sigur á Johan Cruijff leikvanginn í greipar heimamanna í liði Ajax. Lokatölur 2-1 sigur Twente.

Hákon reimaði á sig markaskóna í kvöld

Hákon Arnar Haraldsson skoraði fyrsta mark Lille í 3-0 sigri liðsins gegn Lens í frönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Með sigrinum saxar Lille á Lens í öðru sæti deildarinnar. 

Jón Axel stoðsendingahæstur í mikil­vægum sigri

Jón Axel Guðmundsson, landsliðsmaður í körfubolta, var stoðsendingahæsti leikmaður vallarins er lið hans San Pablo vann gífurlega mikilvægan sigur gegn Gran Canaria í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld. Lokatölur 95-109, fjórtán stiga sigur San Pablo

Díana Dögg inn­siglaði deildarmeistaratitil í toppslag

Íslendingalið Blomberg-Lippe endar deildarkeppni þýsku úrvalsdeildarinnar í handbolta á toppnum eftir tveggja marka sigur, 33-31, gegn Borussia Dortmund í toppslag deildarinnar þar sem toppsætið var undir. Nú tekur við úrslitakeppni deildarinnar.

Elías varði víti í annars svekkjandi leik

Íslenski landsliðsmarkvörðurinn í fótbolta, Elías Rafn Ólafsson, varði vítaspyrnu er lið hans FC Midtjylland mátti þola afar svekkjandi 2-2 jafntefli gegn Sönderjyske í úrslitakeppni efri hluta dönsku úrvalsdeildarinnar í dag. 

Stjarnan og Hörður berjast um sæti í Olís deildinni

Stjarnan er komið áfram í úrslitaeinvígið í umspili um laust sæti í Olís deild karla eftir sigur á Fjölni í oddaleik í Garðabæ í dag. Lokatölur 30-27 Stjörnunni í vil, liðið mætir liði Harðar frá Ísafirði í úrslitaeinvíginu. 

Tryggvi öflugur í ó­trú­lega mikil­vægum sigri Bilbao

Íslenski landsliðsmaðurinn í körfubolta, Tryggvi Snær Hlinason, skilaði góðu framlagi á öllum sviðum leiksins í ótrúlega mikilvægum sigri Bilbao á Unicaja í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld. Lokatölur 90-74, sextán stiga sigur Bilbao.

Sjá meira