Upphrópanir bæjarráðs séu ótímabærar Jónas Már Torfason segir upphrópanir bæjarráðs Kópavogsbæjar vera „algjörlega ótímabærar.“ Samkomulag ríkis og sveitarfélaga um börn með fjölþættan vanda sé hluti af stærri heildarendurskoðun á flóknum málaflokki og sú vinna sé yfirstandandi. 21.8.2026 18:26
Svona verður dagskráin á Menningarnótt Haldið verður hátíðlega upp á afmæli Reykjavíkurborgar á Menningarnótt laugardaginn næstkomandi, 22. ágúst. Gestir og gangandi geta sótt ríflega fjögur hundruð viðburði á borð við bekkpressukeppni, vöfflukaffi, spunamaraþon og blómakransagerð. 20.8.2026 09:01
Eldur kviknaði við Stálhellu Eldur kviknaði við Stálhellu í Hafnarfirði í kvöld. Slökkvilið var sent á vettvang til að ráða niðurlögum eldsins. 20.8.2026 00:28
Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Ísraelsher hefur í fyrsta sinn viðurkennt að hafa, árið 2024, hafið skotárás á bíl sem í var sex manna palestínsk fjölskylda, þar á meðal fimm ára gömul stúlka, Hind Rajab, sem lést seinna af sárum sínum. Ísarelsher greindi frá því í dag að hefja ætti rannsókn á atvikinu. 19.8.2026 23:46
Harry og Meghan ætla að flytja aftur til Bretlands Harry Bretaprins og Meghan, hertogahjónin af Sussex, hyggjast flytja aftur til Bretlands ásamt börnum sínum tveimur, Archie prins og Lillíbet prinsessu. Þau fluttu til Bandaríkjanna árið 2020. 19.8.2026 22:34
Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, formaður bæjarráðs Reykjanesbæjar, er efst á lista Tekjublaðs Frjálsrar verslunar yfir tekjuhæstu sveitarstjórnarmenn á síðasta ári. Hún var þá með rúmlega þrjár og hálfa milljón króna í laun á mánuði. 19.8.2026 22:04
Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Samtökin Heimili og skóli og Reykjavíkurborg munu taka höndum saman og bjóða öllum grunnskólabörnum í Reykjavík upp á aðstoð við heimanám á bókasöfnum í borginni skólaárið 2026-2027. Verkefnið nýtur styrks úr Velferðarsjóði barna. 19.8.2026 20:57
„Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Bæði fjármála- og efnahagsráðherra og félags- og húsnæðismálaráðherra segja stýrivaxtahækkun í dag hafa verið vonbrigði. Félags- og húsnæðismálaráðherra hafði vonast eftir óbreyttum stýrivöxtum og segir að ríkisstjórnin sé með augun á boltanum. 19.8.2026 19:55
Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Forseti Alþýðusambands Íslands segir vaxtahækkun við núverandi aðstæður vera ranga, illa tímasetta og leggja aukna byrði á skuldsett heimili landsins. Allt bendi til þess að forsendur kjarasamninga frá árinu 2024 bresti. 19.8.2026 17:43
Eiga eftir að taka umsækjendur í viðtöl Enn hafa engin viðtöl verið tekin vegna skipunar nýs lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu en vegna sumarleyfa lá ráðningarferlið niðri. Óljóst er hvenær nýr lögreglustjóri verður skipaður. 19.8.2026 06:45