Eldur í íbúð við Klapparstíg Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út eftir að tilkynnt var um eld í íbúð við Klapparstíg 1 í dag. 15.11.2023 12:53
Kúabóndi á Suðurlandi sviptur mjólkursöluleyfi Matvælastofnun hefur svipt kúabónda á Suðurlandi leyfi til framleiðslu og dreifingar á mjólk. 15.11.2023 10:31
Tekur við stöðu framkvæmdastjóra Icelandair Cargo Einar Már Guðmundsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Icelandair Cargo en hann hefur sinnt starfinu tímabundið frá 14. september síðastliðinn. Hann tekur við stöðunni af Gunnari Má Sigurfinnssyni sem lét af störfum í september. 15.11.2023 09:49
Tilbúin með áætlanir fyrir daginn Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn almannavarna, segir nóttina hafa verið nokkuð rólega og tíðindalausa. Dagurinn byrji núna með mati vísindamanna á nýjum gögnum. 15.11.2023 08:02
Líkur á rigningu suðvestantil síðdegis Áfram er útlit fyrir austlæga átt á landinu þar sem búast má við vindhraða víða á bilinu þrjú til tíu metra á sekúndu, en tíu til fimmtán lengst af við suðurströndina. 15.11.2023 07:13
Merki um að gas sé að koma upp Ástæða þess að ákveðið var að grípa til rýmingar í Grindavík rétt fyrir klukkan þrjú í dag er að gasmælar Veðurstofunnar sýna að gas, brennisteinsdíoxíð SO2, sé að koma upp úr jörðinni nærri Grindavík. 14.11.2023 15:24
OK kaupir upplýsingatæknihluta TRS OK hefur fest kaup á upplýsingatæknifyrirtækinu TRS á Selfossi. 14.11.2023 10:43
Ólafur Helgi metinn hæfastur Dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara við Héraðsdóm Reykjavíkur hefur skilað umsögn sinni og er það niðurstaða hennar að Ólafur Helgi Árnason sé hæfastur umsækjenda til að hljóta skipun í embætti. 14.11.2023 10:25
Gunnar Már ráðinn forstjóri GA Telesis Engine Service OY Gunnar Már Sigurfinnsson hefur verið ráðinn forstjóri GA Telesis Engine Service OY, dótturfyrirtækis GA Telesis, alþjóðlegs þjónustufyrirtækis með varahluti og alhliða viðhaldsþjónustu við flugfélög um allan heim. 14.11.2023 10:17
Um þrjátíu vörubílar notaðir til að sækja efni úr Stapafelli Rúmlega þrjátíu vörubílar voru notaðir við að flytja efni úr Stapafelli við Grindavíkurveg í gær og aftur í morgun að svæðinu þar sem til stendur að reisa varnargarða til verndar virkjuninni að Svartsengi og Bláa lóninu. Um fimmtán flutningabílar voru notaðir við flutningana í nótt. 14.11.2023 09:26