Ólýsanleg vonbrigði þegar skipin sigldu fram hjá Þegar síldarbáturinn Stígandi frá Ólafsfirði sökk norður í íshafi árið 1967 voru tólf Íslendingar um borð. Fimm sólarhringar liðu þar til þeirra var saknað og umfangsmikil leit hófst. Í millitíðinni lágu þeir hver um annan þveran í ísköldum og þvölum botni gúmmíbáta, þyrstir, svangir, skjálfandi og vonlausir í hrollköldu heimskautaloftinu. 24.1.2024 07:01
„Ég held að þessi maður sé sá eini sem getur leitt okkur í sannleikann um hvað gerðist“ „Ég man hreinlega ekki allan fjöldann af stöðum þar sem líkið á að hafa verið,“ segir Hörður Jóhannesson fyrrum rannsóknarlögreglumaður en hann er einn af þeim sem kom að rannsókninni á hvarfi Valgeirs Víðissonar á sínum tíma. Í sumar eru liðin þrjátíu ár síðan Valgeir Víðisson hvarf sporlaust af heimili sínu á Laugavegi. Ekkert hefur spurst til hans síðan. Enn í dag er málið óupplýst. 22.1.2024 07:01
„Sæll. Er ég að fara að deyja?“ Viðvörunarbjöllur höfðu hringt hjá Laufeyju Karítas Einarsdóttur, margfaldri móður, í töluverðan tíma. Hún hafði sett fjölskyldu, börn og vinnu í fyrsta sætið en gleymt sjálfri sér. 21.1.2024 09:01
Giftu sig á Hlévangi svo faðir brúðarinnar gæti verið með Kara Tryggvadóttir og Eysteinn Sindri Elvarsson höfðu lengi ætlað að láta pússa sig saman. Þegar þau tíðindi bárust að brugðið gæti til beggja vona hjá föður Köru biðu þau ekki boðanna. Blásið var til brúðkaups á hjúkrunarheimilinu Hlévangi í Reykjanesbæ svo faðir brúðarinnar gæti fylgt litlu stelpunni sinni upp að altarinu. 20.1.2024 09:01
Tár á hvarmi þegar hetjan úr þyrlunni birtist óvænt ,,Bjargvætturinn minn,“ sagði Ingvi Hallgrímsson hrærður þegar honum var komið á óvart með því að fá að faðma Benóný Ásgrímsson þyrluflugstjóra sem bjargaði honum úr bráðum lífsháska. 17.1.2024 07:01
Ævintýraleg björgun Íslendings í lífshættu Neyðartilvik kom upp um borð í ítalska skemmtiferðskipinu Costa Smeralda síðastliðinn miðvikudag þegar Íslendingur um borð veiktist lífshættulega. Þökk sé þyrlusveit Landhelgisgæslunnar á Ítalíu var honum bjargað naumlega. 15.1.2024 15:37
„Þegar þú færð þessar fréttir þá bara hrynur heimurinn“ „Í gegnum allt þetta ferli var nákvæmlega ekkert sem greip okkur. Það var ekkert hugað neitt sérstaklega að andlegri líðan okkar, hvaða áhrif þetta hafði á okkur. Það var engin eftirfylgni. Það þykir eðlilegt að einstaklingar sem missa fóstur, sérstaklega á fyrri hluta meðgöngu, séu bara sendir heim og látnir gúgla framhaldið, hvað þeir eigi að gera eða ekki gera,“ segir Tinna Berg Rúnarsdóttir en árið 2022 gengu hún og eiginmaður hennar í gegnum erfiðan fósturmissi á 12.viku meðgöngu. 14.1.2024 09:33
Ferðalag til Íslands varð kveikjan að ævintýrinu Hin 28 ára gamla Gabby Beckford er bandarískur áhrifavaldur sem heldur úti afar vinsælum aðgangi á TikTok, Instagram og Youtube. Þar deilir hún myndefni úr ferðalögum sínum víða um heiminn. Með mikilli vinnu hefur henni tekist að gera ferðalögin að aðalstarfi sínu en á seinasta ári þénaði hún hátt í fjörtíu milljónir íslenskra króna í gegnum samstarf við fyrirtæki og ýmislegt fleira. 13.1.2024 10:00
Enn á lífi því kærastan kom snemma heim Að kvöldi 7. desember árið 2022 tók Arnar Freyr Jónsson þá skyndiákvörðun að taka inn ópíóðalyfið OxyContin. Afleiðingarnar voru þær að hann var einungis hársbreidd frá dauðanum. 13.1.2024 09:00
„Ég var drulluhrædd í heilt ár“ „Eins undarlega og það hljómar, þá labba ég ekki framhjá innanríkisráðuneytinu. Ég fer ekki fyrir framan þetta hús. Ég get ekki labbað fyrir framan þetta hús. Ég bara get það ekki,“ segir Hanna Birna Kristjánsdóttir fyrrum innanríkisráðherra. Í nýju viðtali lýsir hún augnablikinu þegar Gísli Freyr Valdórsson og eiginkona hans mættu tárvot á skrifstofu hennar og komu varla upp orði. 9.1.2024 07:00