„Ég gerði mér grein fyrir því að ekkert yrði aftur eins og það var“ Líf Rutar Rúnarsdóttur og fjölskyldu hennar kollvarpaðist fyrir þremur árum þegar eldri bróðir Rutar féll fyrir eigin hendi. Systkinin voru afar náin og Rut missti því bæði bróður og kæran vin á sama tíma. Áfallið breytti Rut á þann hátt að hún syrgði ekki bara bróður sinn heldur einnig gömlu útgáfuna af sjálfri sér, manneskjuna sem hún hafði verið áður en áfallið dundi yfir. 14.9.2024 11:09
Fær engar upplýsingar um lögreglumál sonar síns Fjölskylda fjölfatlaðs manns sem slasast hefur í tvígang í umsjá starfsmanna sambýlisins að Hólmasundi gagnrýnir harðlega skort á upplýsingagjöf af hálfu velferðarsviðs Reykjavíkurborgar. Seinna slysið hefur verið tilkynnt til lögreglu. Fjölskyldan hefur leitað aðstoðar lögfræðings og hyggst leita réttar síns. Hún gagnrýnir einnig eftirlitsleysi með starfsemi sambýla sem rekin eru af Reykjavíkurborg. 11.9.2024 06:46
Segir kraftaverk að sonur sinn sé á lífi „Mig hefur lengi langað að koma ýmsu á framfæri en ég hef hvorki treyst mér til né haft áhuga að ræða þetta eins og nú. Það brýtur í mér hjartað að nú, fjórum árum seinna, er ung manneskja dáin eftir hnífaárás, og hún átti allt lífið eftir,“ segir Anna María De Jesus, móðir átján ára pilts sem varð fyrir grófri hnífaárás af hálfu unglingsstúlku í apríl árið 2020. 8.9.2024 11:31
Nær dauða en lífi á bráðamóttökunni „Mér finnst mikilvægt að deila þessu svo fólk sjái í alvöru hvernig staðan er á heilbrigðiskerfinu okkar“ segir Kristín Guðmundsdóttir handboltakona. Hún gagnrýnir harðlega þær aðstæður sem blöstu við þegar hún leitaði ásamt dóttur sinni á bráðamóttöku Landspítalans á dögunum. 7.9.2024 08:09
Tíminn stóð í stað en allt var á fleygiferð „Mér fannst svo viðeigandi að gera þetta í minningu pabba. Pabbi var þannig gerður að hann vildi aldrei skulda neinum neitt eða standa í þakkarskuld við neinn. Og björgunarsveitirnar, sem komu og hjálpuðu okkar þennan dag áttu þetta svo sannarlega inni,“ segir Berglind Sigurðardóttir en faðir hennar, Sigurður Sigurjónsson, lést af slysförum á Skógaheiði í október á seinasta ári. 3.9.2024 07:01
Lífið tók kollsteypu eftir ævintýralega Íslandsför „Þetta var svo skrítin upplifun. Nokkrum dögum áður var ég á Íslandi að drekkja í mig stórfenglega náttúrufegurð og orku og fannst ég vera ódauðleg. Áður en ég vissi af var ég kominn á þann stað að það var tvísýnt um líf mitt,“ segir Jane Fisher sem á dögunum setti upp ljósmyndasýningu með Íslandsmyndum í heimabæ sínum á Englandi. 1.9.2024 21:02
Segir algengan misskilning að læknar séu hátekjustétt „Ef þú ert læknir sem er eingöngu að vinna dagvaktir þá eru útborguð laun tæplega að fara að duga til að standa skil á námslánum, hvað þá afborgunum af húsnæði og ýmsu öðru,” segir Hrafnhildur Hallgrímsdóttir en hún útskrifaðist úr læknisfræði á síðasta ári og er nú að ljúka sérnámsgrunnári á Landspítalanum. 31.8.2024 10:00
„Fína konan“ skyndilega umkringd fyllibyttum Jóhanna Guðmundsdóttir var þriggja barna útivinnandi móðir og eiginkona í Bandaríkjunum þegar hún vaknaði upp við vondan draum. Eftir áralanga áfengisneyslu sem hafði undið upp á sig var hún komin á róandi lyf og hrædd um að missa börnin. Í dag leikur lífið við hana. 31.8.2024 09:10
Átti erfitt með að kalla sig þolanda „Ég get ekki ímyndað á hvaða stað ég væri í dag ef ég hefði ekki leitað til Stígamóta á sínum tíma. Sjálfsmyndin mín væri þá líklega ennþá svo brengluð, ég væri örugglega ennþá föst í þeirri hugsun að líkami væri bara sjálfsagður til afnota fyrir aðra,“ segir Heiða Valdís Ármann. 26.8.2024 20:02
Mörgum finnst óþægilegt að tala um fjármálin sín „Fjármál eru svo ótrúlega stór þáttur af lífi okkar. Af hverju að forðast þau? Viljum við ekki frekar reyna að leggja okkur fram í að skilja peninga og hvernig við getum notað þá? Það er nú einu sinni þannig að allt í lífinu er erfitt þegar við kunnum það ekki,“ segir Valdís Hrönn Berg fjárhagsmarkþjálfi. 25.8.2024 12:02