Grunaðir um mörg skartgriparán í heimahúsum Margt bendir til þess að sami eða sömu þjófar hafi framið tíu innbrot í íbúðir í fjölbýlishúsum á höfuðborgarsvæðinu yfir jól og áramót að sögn lögreglu. Fólk saknar helst skartgripa og fjármuna eftir ránin. 11.1.2024 20:31
Hrun í miðri sprungu dró manninn með sér Fannar Jónasson bæjarstjóri Grindavíkur segir mál mannsins sem talinn er hafa fallið ofan í við sprunguinnfyllingu vera bakslag fyrir Grindvíkinga. Þetta segir hann í viðtali við Stöð 2 í dag. 11.1.2024 18:41
Löng bið eftir lækni og dæmi um að fólk fái ekki tíma Dæmi eru um að ekki sé hægt að bóka tíma hjá lækni á heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Framkvæmdastjóri hjúkrunar segir skort á fagfólki hjá stofnuninni og mikið álag. 8.1.2024 20:01
Aðeins helmingur íbúa með fastan heimilislækni þvert gegn stefnu stjórnvalda Þrátt fyrir að heilbrigðisyfirvöld stefni að því að landsmenn séu með fastan skráðan heimilislækni á það aðeins við um helming íbúa á höfuðborgarasvæðinu. Ástæðan er skortur á heimilislæknum að sögn formanns félags þeirra. Það hafi áhrif á aðgengi og gæði þjónustunnar. Heilsugæslan sé í raun verr stödd en Landspítalinn. 8.1.2024 13:58
„Ég er í hálfgerðu sjokki og átti ekki von á þessu“ Ákveðið hefur verið að loka sundlauginni í Skálatúni til frambúðar vegna ástands hennar. Hið vinsæla ungbarnasund Snorra er því í lausu lofti og segir Snorri ákvörðunina hafa komið sér í opna skjöldu. Hann tími samt ekki að hætta alveg strax. 5.1.2024 20:28
Stjórnvöld ætli að leggja sitt af mörkum náist hagstæðir langtímakjarasamningar Forsætisráðherra segir að stjórnvöld muni leggja sitt af mörkum takist að ná langtíma kjarasamningi milli SA og ASÍ sem miði af því að ná verðbólgu og vöxtum niður. Verkalýðsforingjar voru bjartsýnir eftir fund með ráðherrum í dag. 5.1.2024 20:01
MAST íhugar að kæra Arctic Sea Farm til ríkissaksóknara Hátt í þrjú hundruð frávik hafa orðið hjá fyrirtækjum í land- og sjóvkvíeldi hér á landi á síðustu þremur árum og þar af teljast ríflega sextíu alvarleg. Matvælastofnun íhugar að kæra fyrirtækið Arctic Sea Farm til ríkissaksóknara vegna tveggja alvarlegra mála. 4.1.2024 18:30
Hætta á að næsti forseti hafi lítinn stuðning vegna úreltra laga Hið minnsta þrír hafa tilkynnt um að þeir ætli að bjóða sig fram í næstu forsetakosningum hér á landi. Prófessor í stjórnmálafræði telur að margir eigi eftir að bætast við. Núverandi lög um embættið séu úrelt og hætta á að næsti forseti Íslands verði kjörinn með lægsta hlutfalli greiddra atkvæða í sögunni. 4.1.2024 13:31
„Við þurfum að vera duglegri að flokka, þá lækkar þetta aftur“ Heiða Björg Hilmisdóttir, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, segir sveitarfélögin hafa reynt að halda aftur af sér hvað varðar verðhækkanir á þessu ári. Sveitarfélögin vilja taka meira þátt í samtalinu þegar kemur að launahækkunum. 3.1.2024 22:21
Víða verðhækkanir þrátt fyrir skýr skilaboð frá SA og ASÍ Bjartsýni ríkir hjá hjá samninganefndum SA og ASÍ um yfirstandandi kjaraviðræður þar sem kallað er eftir þjóðarsátt. Hið opinbera og atvinnulífið þurfi að halda aftur af hækkunum svo það takist. Formaður verkalýðsfélags segir að á 20 ára ferli hafi hann ekki séð annan eins samtakamátt. Víða hafa þó verið miklar verðhækkanir frá áramótum eða eru boðaðar á næstunni. 3.1.2024 19:01