Fréttamaður

Birgir Olgeirsson

Birgir er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Varð fyrir „á­falli“ að sjá upp­sagnar­bréf

Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra segir ríkisstjórnina ætla að ná frumvarpi um afnám áminningarskyldu ríkisstarfsmanna í gegnum þingið. Á Alþingi í dag sagði hann að það hefði verið „nokkuð áfall yfir kaffinu í morgun“ að lesa uppsagnarbréf sem honum var birt í auglýsingu í Morgunblaðinu.

Telja að bíla­stæðum fækki eftir að þau voru færð úr upp­dráttum

Meirihluti umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkurborgar samþykkti á síðasta fundi sínum að auglýsa fjórar tillögur að breytingum á deiliskipulagi við Suðurlandsbraut og Sigtúnsreit. Í þremur þeirra er gert ráð fyrir að nákvæm útfærsla bílastæða verði ekki lengur sýnd á deiliskipulagsuppdráttum heldur ákveðin síðar.

Vaxta­hækkun í maí blasi við

Verðbólga hækkaði á milli mánaða og hafa hagfræðingar verulegar áhyggjur af þeirri miklu óvissu sem hækkun eldsneytisverðs gæti haft á næstu mánuðum og allri líkur á hækkun stýrivaxta á næsta fundi peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands í maí. Jákvæðu teiknin eru þó þau að hægt hefur umtalsvert á hækkun fasteignaverðs og leigu og þá hefur matvara ekki hækkað jafn ört og í fyrra.

Ræddu „fjóra strámenn“, von­brigði og hags­muna­á­rekstra

„Við þurfum að vita nákvæmlega hvaða samtöl hafa verið í gangi og um hvað,” sagði Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, á Alþingi í dag þar sem hún ræddi frétt Morgunblaðsins um meint orð Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra.

Af og frá að við­ræður séu hafnar

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir af og frá að viðræðurnar við Evrópusambandið séu hafnar. Hún telur rétt að koma þessu skýrt á framfæri við þjóð sína í ljósi umræðu undanfarna daga.

Eyjagöng sækja í sig veðrið með nýjum hlut­höfum

Verkefnið um jarðgöng til Vestmannaeyja er ekki lengur aðeins hugmynd á teikniborðinu. Með tilkomu nýrra hluthafa á borð við Landsbankann og N1 nálgast Eyjagöng nú fjárhagslegt markmið sitt hratt, á sama tíma og undirbúningur jarðgrunnsrannsókna fer af stað í lok apríl.

Skekkja hækki ið­gjöld og kosti sam­fé­lagið milljarða

Skekkja í íslenskum skaðabótalögum hækkar iðgjöld viðskiptavina tryggingafélaga og kostar samfélagið milljarða króna á ári. VÍS kallar nú eftir endurskoðun laganna, einfaldara matsferli og miðlægu kerfi í bótamálum vegna líkamstjóna, einkum í umferðarslysum.

Sjá meira