Ágætis staðfesting að fá hrós frá Virgil Abloh Bergur Guðnason er þrítugur fatahönnuður sem hefur komið víða að í heimi tískunnar. Bergur útskrifaðist úr LHÍ árið 2017, bjó um stund í París þar sem hann starfaði fyrir tískuhús á borð við Haider Ackermann og Acne Studios og hannaði þar flíkur fyrir tískupalla sem fóru í sölu síðar meir. Hann starfar nú hjá 66 norður og er meðal annars að hanna sérstakar línur fyrir væntanlega verslun fyrirtækisins í Bretlandi. Bergur Guðna er viðmælandi vikunnar í Tískutali. 2.10.2022 07:00
Ábreiða Bríetar af lagi Ásgeirs Trausta slær í gegn Bríet skipar sjöunda sæti íslenska listans þessa vikuna með einstaka ábreiðu sína af laginu Dýrð í Dauðaþögn sem Ásgeir Trausti gaf út fyrir tíu árum síðan af samnefndri plötu. 1.10.2022 16:01
Úkraínskir listamenn sýna í Hörpu Harpan iðar af menningu og lífi að vanda en samtökin Artists4Ukraine standa fyrir fjölbreyttri listasýningu þar um þessar mundir. Samtökin hafa á undanförnum mánuðum staðið fyrir ýmsum listviðburðum þar sem allur ágóði rennur óspart til góðgerðasamtaka í Úkraínu. Næstkomandi mánudag verður stór söfnunarviðburður á þeirra vegum í Kaldalóni. 1.10.2022 14:00
Hefur unnið sem fyrirsæta um allan heim Kristín Lilja Sigurðardóttir hefur ferðast um allan heim í starfi sínu sem fyrirsæta og gengið á tískupöllum fyrir risa á borð við Dior og Kenzo ásamt því að hafa setið fyrir í herferðum fyrir stórfyrirtæki á borð við Zöru og Bottega Veneta. Kristín Lilja er viðmælandi vikunnar í Innblæstrinum. 1.10.2022 11:31
„Hafnfirskar stelpur rokka“ Hafnfirskar stelpur rokka! er tónlistar vinnusmiðja sem unnin er í tengslum við Appolo listahátíð í Hafnarfirði. Ungar sís og trans stelpur, trans strákar, kynsegin og intersex ungmenni á aldrinum 13-25 ára eru öll velkomin og á vinnusmiðjan sér stað yfir tvær helgar í október. 27.9.2022 17:30
„Þetta er uppgjör og upprisa“ „Síðustu tvö ár hef ég lítið málað og ég fann í byrjun árs að ég var hreinlega að springa úr þörf til að skapa,“ segir listakonan Mæja Sif Daníelsdóttir, sem opnar sýninguna Upprisa í Núllinu Gallerý næstkomandi fimmtudag. 27.9.2022 15:31
Hannaði listrænan skúlptúr úr yfir 100 titrurum Listamaðurinn Dafne Blade fer eigin leiðir í sinni listsköpun en skúlptúr verk háns á Erotic Heritage Museum í Las Vegas hefur vakið mikla athygli að undanförnu. Í forgrunni verksins er eitt vinsælasta kynlífsleikfang dægurmenningar, töfrasprotinn, í rúmlega hundrað stykkjum sem saman mynda eina listræna heild. 27.9.2022 11:30
Herdís samdi tónlistina fyrir væntanlega stórmynd í Hollywood „Þetta er eiginlega svona röð atvika sem að leiða mann á svona stað,“ segir tónskáldið Herdís Stefánsdóttir í viðtali við Bítið í morgun. Herdís sér um tónlistina í kvikmyndinni Knock at the Cabin sem er nýjasta mynd leikstjórans M. Night Shyamalan. Hann er meðal annars þekktur fyrir stórmyndina The Sixth Sense með Bruce Willis í aðalhlutverki. 26.9.2022 20:01
Opin samkeppni um myndlistarverk fyrir Auglýsingahlé Billboard Dagana fyrsta til þriðja janúar 2023 verður svokallað Auglýsingahlé á yfir 450 skjáum Billboard um alla Reykjavíkurborg en Billboard efnir nú til opinnar samkeppni um myndlistarverk í almenningsrými í samstarfi við Y gallery og Listasafn Reykjavíkur. 26.9.2022 17:00
Listrænir bræður opna frumlega listasýningu Bræðurnir og listamennirnir Arngrímur Sigurðsson og Matthías Rúnar Sigurðsson standa fyrir samsýningu í Ásmundarsal sem ber nafnið Vættatal. Á sýningunni vinna þeir með hinar ýmsu skepnur og skoffín og er nóg af verum í salnum á borð við svokallaðar sýsiforlirfur og hafgúur. 26.9.2022 13:30