Endurreisn Beyoncé færir hana nær toppnum Beyoncé situr í öðru sæti íslenska listans þessa vikuna með nýjasta smellinn sinn Break My Soul. Lagið er að finna á nýútgefnu plötunni RENAISSANCE og hækkar sig um sex sæti á milli vikna. 6.8.2022 16:00
„Ég gef ekki ráð“ Bjarni Snæbjörnsson er lífskúnstner mikill en hann hefur sem dæmi vakið athygli fyrir söngleik sinn Góðan daginn faggi ásamt því að syngja Pride lagið í ár, Næs. Fyrir Bjarna er sannleikurinn mesti innblásturinn og hann elskar að læra eitthvað nýtt um sjálfan sig. Bjarni á enga hefðbundna daga og elskar hreyfingu, hollan og góðan mat og hugleiðslu. Bjarni Snæbjörnsson er viðmælandi vikunnar í Innblæstrinum. 6.8.2022 11:31
Steypir saman danstónlist við dramatískar sögur af fangelsisvist Tónlistarkonan Ingibjörg Friðriksdóttir, jafnan þekkt sem Inki, var að senda frá sér plötuna Brotabrot en platan byggir á viðtölum við fyrrum fanga kvennafangelsisins. Með plötunni steypir Inki frumsamdri tónlist, umhverfishljóðum fangelsisins og viðtölum við fyrrum fanga í dansvænt, hiphop-skotið tónverk sem spyr ágengra spurninga um tengsl fangavistar og afþreyingar. Blaðamaður tók púlsinn á henni og fékk að heyra nánar frá þessu óhefðbundna verkefni. 5.8.2022 16:31
Listapúkinn býður á fjörlega og litríka sýningu Listamaðurinn Þórir Gunnarsson opnar nýja sýningu í Listasal Mosfellsbæjar í dag en opnunin fer fram frá klukkan 16:00-18:00 og boðið verður upp á léttar veitingar. 5.8.2022 14:01
Ástin í öllum sínum formum Parið Unnur Guðrún Þórarinsdóttir og Sigríður Hermannsdóttir sameina krafta sína í þágu hinsegin samfélagsins með sölu á listaverkum. Salan rennur til Samtakanna '78 og Hinseginleikans, sem bæði vinna mikilvægt og kraftmikið starf. Blaðamaður tók púlsinn á þeim Unni og Sigríði. 5.8.2022 13:00
Kvenkyns rokkarar slá til ærandi veislu fyrir augu og eyru gesta Hljómsveitirnar Mammút og Kælan Mikla tilkynntu á dögunum tónleika sem haldnir verða í Gamla Bíói 16. september næstkomandi. Er þetta í fyrsta sinn sem böndin taka höndum saman þar sem þau munu spila það helsta af sínum ferlum í kraftmikilli, þungri og ærandi veislu fyrir augu og eyru gesta. Blaðamaður tók púlsinn á Ásu Dýradóttur í Mammút. 5.8.2022 10:01
Stuðlabandið springur út í Brasilíu Hljómsveitin Stuðlabandið vakti athygli á Kótelettunni nú í júlí þegar þeir tóku hið sígilda barnalag Í larí lei og allt ætlaði um koll að keyra en atriðið var tekið upp á myndband sem birtist á vefsíðunni Youtube. Lagið er upphaflega gefið út af brasilísku tónlistarkonunni XUXA og heitir Ylarie en í kjölfar óvæntrar atburðarrásar birti hún myndbandið af Stuðlabandinu á Instagram síðu sinni. Blaðamaður heyrði í Fannari Frey meðlim Stuðlabandsins. 4.8.2022 17:01
„Hér munu hlutir fæðast“ Listakonan Júlíanna Ósk Hafberg opnar svokallað pop-up stúdíó og gallerí að Bankastræti 12. Hún fagnaði þrítugs afmæli sínu í síðustu viku og í tilefni af því mun hún halda sameiginlegt afmælisteiti og opnun á galleríinu í dag frá klukkan 17:00-20:00. Blaðamaður tók púlsinn á Júlíönnu og fékk að heyra nánar frá. 4.8.2022 11:01
„Hin lifandi list er auðvitað bara lífið sjálft“ Listmálarinn Margrét Jónsdóttir stendur fyrir sýningunni ÓBÆRILEGUR LÉTTLEIKI TILVERUNNAR í Gallerí Gróttu. Í list sinni er hún stöðugt að túlka það sem hún skynjar í umhverfinu, þjóðfélagsstöðu sinni og samfélaginu. 3.8.2022 15:45
„Mikilvægt að þetta komi allt frá persónulegum og berskjölduðum stað“ Aron Ingi Davíðsson vakti athygli sem einn af eigendum og meðlimum Áttunnar á sínum tíma. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan þá en Aron flutti meðal annars til Los Angeles til að læra leikstjórn og handritsgerð við New York Film Academy. Nú vinnur hann að því að skrifa þáttaseríu með framleiðslufyrirtækinu ZikZak þar sem Sigurjón Sighvatsson er yfirframleiðandi en um er að ræða unglingaseríu sem kemur inn á ýmis málefni og byggir á persónulegri reynslu. Blaðamaður tók púlsinn á Aroni Inga. 3.8.2022 07:00
Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Erlent