„Ef maður er sjálfsöruggur getur eiginlega hvað sem er virkað“ Áhrifavaldurinn, fyrirsætan og ofurskvísan Brynja Bjarna Anderiman elskar tískuna og tjáir sig með klæðaburði. Hún er enn að finna sinn eigin stíl og er óhrædd við að taka áhættu. Brynja er viðmælandi í Tískutali. 10.8.2024 11:30
„Hatrið má ekki sigra“ Hinsegin dagar eru gengnir í garð með tilheyrandi lífi, litagleði og sýnileika. Gleðin nær svo ákveðnu hámarki í Reykjavík á morgun þegar Gleðigangan fer fram og margvíslegur hópur hinsegin fólks sameinast í kröfugöngu sem er á sama tíma mikill fögnuður. 9.8.2024 07:01
Klæðir sig upp til að komast í betra skap Tískuspekúlantinn Haukur Ísbjörn sér um hlaðvarpið Álhattinn ásamt vinum sínum en þar er því gjarnan varpað fram að hann sé einn best klæddi maður landsins. Haukur sækir innblástur til tíunda áratugarins, nýtir hvert tækifæri sem gefst til þess að klæða sig upp og er viðmælandi vikunnar í Tískutali. 3.8.2024 11:30
Mjög erfitt að lamast í andlitinu Alice Alexandra Flores er tvítug og starfar sem leiðbeinandi í leikskóla sem hún elskar. Frá fjögurra ára aldri hefur hún verið búsett í Bláskógabyggð en stefnir á að flytja til Reykjavíkur og læra við Háskóla Íslands. Alice er meðal keppenda í Ungfrú Ísland. 31.7.2024 15:00
Lítill Arnarsson væntanlegur í janúar Ofurparið Arnar Þór Ólafsson og Helga Kristín Ingólfsdóttir eiga von á sínu fyrsta barni næstkomandi janúar. Þau tilkynntu barnalánið með Instagram færslu og skrifa: „Hlökkum til að taka á móti litlum Arnarssyni í janúar“. 31.7.2024 11:16
„Ísland er í algjöru uppáhaldi hjá okkur“ „Ég er svo spennt að koma fram á Íslandi,“ segir stórstjarnan og goðsögnin Kathy Sledge, aðalsöngkona sögulegu diskósveitarinnar Sister Sledge sem stígur á stokk í Eldborg, Hörpu föstudaginn 9. ágúst næstkomandi. Blaðamaður ræddi við Kathy um tónlistina, eftirminnilegasta giggið í Zaire, lífið og tilveruna. 31.7.2024 07:00
„Þarna fékk ég að kynnast því hvað þunglyndi er“ Þórdís Ásta er meðal keppenda í Ungfrú Ísland og segir ferlið hafa kennt henni að trúa enn meira á sig. Síðastliðin tvö ár hefur Þórdís Ásta lært mikið um sjálfa sig, stækkað mikið sem persóna og nú langar hana að hvetja aðra til að gera hið sama. 30.7.2024 12:32
„Það var eiginlega ég sem bað hann um að giftast mér, held ég“ Rithöfundurinn, þúsundþjalasmiðurinn og athafnakonan Silja Björk og Ísak Vilhjálmsson, deildarstjóri hjá Klettabæ, fögnuðu ástinni með pomp og prakt þegar þau gengu í hjónaband síðastliðna helgi. Brúðkaupið fór fram í sveitasælu og segjast þau enn vera að ná sér niður eftir hinn fullkomna dag. Lífið á Vísi ræddi við hjúin um ástina og stóra daginn. 30.7.2024 07:01
Ekki meira en bara vinir Áhrifavaldarnir Arnar Gauti, betur þekktur sem Lil Curly, og Brynja Bjarna Anderiman hafa verið áberandi á samfélagsmiðlum hvors annars undanfarið og virðast þau nánast óaðskiljanleg. Þau eyddu góðum tíma saman í sólinni í Króatíu og eru nýkomin heim. 29.7.2024 14:01
Líf og fjör í 30 ára afmæli Mærudaga Stemningin var gríðarleg á Húsavík um helgina þegar að Mærudagar voru haldnir hátíðlegir í þrítugasta skiptið. Gestum var boðið upp á heljarinnar dagskrá, tónleika, fjör, hlaup, froðurennibraut, karnivalstemningu og fleira til. 29.7.2024 13:01