„Ég væri ekkert án þeirra“ „Ég væri aldrei í jafnmiklu stuði og að finna jafn mikla gleði og hamingju ef þær væru ekki þarna. Þær eru mesti drifkrafturinn minn, ég held að ég myndi aldrei nenna að gera þetta ef þær væru ekki þarna,“ segir ofurhlaupakonan Mari Järsk um einstaka vináttu sína við hóp kvenna sem fylgja henni í flestöll hlaup. Mari er viðmælandi í Einkalífinu. 13.6.2024 07:01
Lykilmaður íslensku rappsenunnar stígur inn í sviðsljósið Pródúserinn og plötusnúðurinn Arnar Ingi, betur þekktur sem Young Nazareth, hefur komið víða að í tónlistinni og er búsettur í Berlín um þessar mundir. Hann hefur unnið með mörgum af þekktustu tónlistarmönnum landsins og er nú að fara að senda frá sér danslaga EP plötu undir eigin nafni. 12.6.2024 20:00
„Country tónlist er ekki lengur bara sakbitin sæla“ „Við erum ótrúlega spennt að færa íslenskum hlustendum þessa nýju útvarpsstöð. Aukning á vinsældum country tónlistar bæði hér á landi um allan heim hefur verið eftirtektarverð og við teljum að Country Bylgjan muni mæta síaukinni eftirspurn hlustenda,“ segir Þórdís Valsdóttir, forstöðumaður útvarps hjá Sýn um splunkunýja útvarpsstöð sem fer í loftið á morgun og spilar eingöngu country tónlist. 12.6.2024 14:01
„Ég hef aldrei horft á mig sem fórnarlamb“ „Þegar allt kemur til alls skiptir máli að ég sé ekki að bregðast sjálfri mér, það skiptir ekki máli hvað öðrum finnst,“ segir ofurhlauparinn Mari Järsk en hún er viðmælandi í nýjasta þætti af Einkalífinu. 9.6.2024 07:01
Klæðir sig oft óbeint í stíl við dóttur sína Tískuáhugakonan og ofurskvísan Selma Lind er með einstakan stíl og hefur saumað skemmtilegar flíkur á sjálfa sig. Í fyrra eignaðist Selma sitt fyrsta barn og segist hún nú vera að finna sinn stíl upp á nýtt eftir meðgönguna. Hún er viðmælandi í Tískutali. 8.6.2024 11:31
Gæti orðið að Gísla á Uppsölum ef hún ögrar sér ekki „Þetta er það erfiðasta sem ég hef á ævi minni gert og ég kom til baka algjörlega hökkuð á sál og líkama. Þetta er áhrifamesta reynsla lífs míns og það breytti mér varanlega að gera þetta,“ segir fjölmiðlakonan og lífskúnstnerinn Guðrún Sóley Gestsdóttir um Grænlandsævintýri sitt. Hún ræddi við blaðamann um viðburðaríkan feril sinn, lífið og tilveruna, ævintýraleg áhugamál, náttúruást og margt fleira. 8.6.2024 07:00
„Þegar ég vakna þá trúi ég því ekki að við séum saman“ „Það er ennþá þannig að þegar ég vakna þá trúi ég því ekki að við séum saman. Ég held að þetta sé sönn ást og ég vona innilega að við náum að vinna úr öllu sem verður á vegi okkar,“ segir ofurhlaupakonan og stjarnan Mari Järsk. Hún er viðmælandi í Einkalífinu þar sem hún ræðir um ástina, hlaupin, nýjasta Íslandsmeistaratitilinn, æskuna, uppeldið í SOS þorpinu, hugarfarið, ómetanlega vináttu og margt fleira. 6.6.2024 07:01
„Pínu erfitt fyrir viðkvæman listamann“ „Maður getur nálgast ýmsar tilfinningar í gegnum tónlistina, stundum góðar stundum slæmar,“ segir tónlistarmaðurinn Kári Egilsson, sem er nýkominn heim frá Englandi þar sem hann kom fram á hátíðinni Great Escape. Það hefur mikið vatn runnið til sjávar síðastliðið ár í lífi Kára en hann vinnur nú að annarri plötu sinni og frumsýnir splunkunýtt tónlistarmyndband hér í pistlinum. 5.6.2024 11:31
Bríet og Birnir rifu þakið af klúbbnum Ofurtvíeykið Bríet og Birnir fögnuðu útgáfu plötunnar 1000 orð með trylltu teiti á skemmtistaðnum AUTO síðastliðið föstudagskvöld. Margt var um manninn og virtist stemningin sjóðheit. 4.6.2024 20:01
„Það eina sem ég vildi var bara að lifa“ „Ég var hræddur og ég vildi bara eiga líf. Það eina sem ég vildi var bara að lifa,“ segir tónlistarmaðurinn Ísak Morris sem hefur átt viðburðaríka ævi en segist nú loksins hafa fundið sig. Ísak hefur verið viðloðinn tónlist frá unglingsaldri og vinnur nú að plötu sem hann stefnir á að gefa út í sumar. Blaðamaður ræddi við hann um tónlistina, æskuna, fíknina, edrúmennskuna, ástina og margt fleira. 4.6.2024 07:02