Best klæddu stjörnurnar á Met Gala Fyrsti mánudagur maí mánaðar er runninn upp en hann reynist tískuunnendum mikið tilhlökkunarefni. Ástæðan er sú að tískuviðburður ársins, Met Gala, fer fram í kvöld á Metropolitan safninu í New York borg. Stærstu stjörnur heimsins koma saman í glæsilegum klæðnaði hátískuhönnuða þar sem menning, tíska og upplifun rennur saman í eitt. 6.5.2024 23:30
„Elska hraðann, pressuna og stressið“ „Eftirminnilegasta sýningin er án efa Vivienne Westwood, það var frábær lífsreynsla,“ segir förðunarfræðingurinn Dýrleif Sveinsdóttir. Hún byrjaði í förðunarbransanum árið 2010 og hefur síðan þá tekið þátt í fjölbreyttum verkefnum á borð við hátískusýningar. Blaðamaður ræddi við hana um bransann. 6.5.2024 11:00
Fataherbergið seldi henni íbúðina strax Ofurskvísan Anna Björk er nýútskrifuð úr meistaranámi í mannauðsstjórnun og elskar fjölbreytileika tískunnar. Hún er viðmælandi í Tískutali. 4.5.2024 11:31
„Þetta styrkti mig rosalega en þetta braut mig líka“ „Ég man að hafa hugsað um það hvað mér fannst þetta fáránlegt því maður á að vera ódauðlegur þegar að maður er tvítugur. Ég á að vera bara spennt fyrir lífinu og ekki hrædd. En núna er ég hrædd og okei hvað ætla ég að gera við það?“ segir tónlistarkonan Una Torfadóttir um það þegar hún greindist með krabbamein. Una hefur komið víða að í íslensku tónlistarlífi á undanförnum tveimur árum og var nú að senda frá sér plötuna Sundurlaus samtöl. Blaðamaður ræddi við Unu um hennar listrænu vegferð, ástina, fjölskylduna, veikindin, samband við sjálfa sig og fleira. 4.5.2024 07:00
Alltaf með naglaþjöl en gleymir stundum lyklunum Tískuhönnuðurinn Berglind Hlynsdóttir hannar undir nafninu Bosk og hefur vakið athygli fyrir einstakar og litríkar töskur. Það er búið að vera mikið um að vera hjá Berglindi í kringum HönnunarMars og er hún gjarnan með marga bolta á lofti en hún gaf sér tíma til þess að veita lesendum Vísis innsýn í töskuna sína í fasta liðnum Hvað er í töskunni? 2.5.2024 11:31
Innsýn í fatahönnun framtíðarinnar Það var líf og fjör í nýja Landsbankahúsinu á laugardag þegar fatahönnuðir framtíðarinnar komu saman og settu upp lifandi sýningu. 29.4.2024 20:00
Lófaklapp og litagleði á tískusýningu útskriftarnema Tískusýning útskriftarnema í fatahönnun frá Listaháskóla Íslands fór fram með pomp og prakt í Hörpu á föstudagskvöld. Fatahönnuðir framtíðarinnar sýndu útskrifarverk sín við frábærar undirtektir gesta. Bjarni Einarsson tökumaður Vísis var á staðnum og tók upp sýninguna en hana má sjá í heild sinni í spilaranum hér í pistlinum. 29.4.2024 15:01
„Fer ekki á milli mála að ég er að syngja um stráka“ „Textarnir mínir fjalla um mína upplifun af ástinni og þar fer ekki á milli mála að ég sé að tala um stráka,“ segir tónlistarmaðurinn Torfi Tómasson eða TORFI. Hann sendi frá sér sína fyrstu breiðskífu á sumardaginn fyrsta. Platan ber titilinn EITT og er tilraunakennd poppplata sem inniheldur hinsegin ástarljóð, samin fyrir hinsegin klúbba sem að fyrirfinnast ekki á Íslandi. 29.4.2024 12:01
Strangheiðarleg dreifbýlistútta og lopapeysan í uppáhaldi Lífskúnstnerinn Ingunn Ýr Angantýsdóttir hefur gaman að því hvað tískan getur verið óútreiknanleg. Hún er tveggja barna móðir búsett í Ólafsvík og lýsir sjálfri sér sem strangheiðarlegri dreifbýlistúttu á Snæfellsnesi. Ingunn Ýr er með einstakan og glæsilegan stíl en hún er viðmælandi vikunnar í Tískutali. 27.4.2024 11:30
„Það er einmanalegt að missa móður“ „Ég ætlaði alls ekki í leiklist. Þú getur samt aldrei flúið frá kölluninni og þér sjálfri, úr hverju þú ert og við hvað þú elst upp. Maður er nú genasamsetning foreldra sinna,“ segir leikkonan Unnur Birna J. Backman. Unnur er dóttir Eddu Heiðrúnar Backman heitinnar og Jóns Axels Björnssonar myndlistarmanns og er alin upp í kringum mikla list. Hún ræddi við blaðamann um móðurmissinn, uppeldið, leiklistina, stöðuga þróun á sjálfri sér, hvernig hreyfing bjargaði lífi hennar og margt fleira. 27.4.2024 07:00