Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Margmenni var í símaveri Áfram Ísland og Já til að sjá á lokametum kosningabaráttunnar. Kosningastjórar beggja fylkinga segja mikinn baráttuanda í fólki en hlakka þó til að setja tærnar upp í loft á sunnudaginn. 28.8.2026 20:01
Tuttugu prósent búin að greiða atkvæði Tuttugu prósent þeirra sem eru á kjörskrá hafa greitt atkvæði utan kjörfundar í þjóðaratkvæðagreiðslunni. Kjörsóknin er sú mesta sem sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu hafi séð hingað til. 28.8.2026 12:01
Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Greint verður frá niðurstöðum úr glænýrri könnun Maskínu í Pallborðinu nú þegar fjórir dagar eru í þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið. 25.8.2026 12:01
Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Gæludýraeigendur geta nú nálgast öll heilsufarsgögn dýra sinna á einum stað í nýju appi, en talsmaður verkefnisins segir að fyrir hafi upplýsingagjöf um heilsufar dýra verið brotakennd. 24.8.2026 07:01
Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Ráðast þarf í mikið viðhald á Akureyrarkirkju og er áætlað að viðhaldskostnaður nemi fimm hundruð milljónum. Stefnt er að því að kirkjan verið komin í gott stand árið 2040 þegar hundrað ár verða frá vígslu hennar. 23.8.2026 22:52
Sakamálið sem skekur Bandaríkin Réttarhöld yfir bandarískri konu, sem játað hefur að hafa myrt börnin sín þrjú, hafa vakið gríðarlega athygli um allan heim. Mikill fjöldi fylgist með réttarhöldum í beinni útsendingu á degi hverjum og hefur málið hrundið af stað umræðu um fæðingarþunglyndi og fæðingarsturlun. 22.8.2026 19:34
Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Grafalvarleg staða er á Suðausturlandi þar sem enginn dýralæknir er starfandi á stórum hluta svæðisins og fá bændur því enga heilbrigðisþjónustu fyrir veik og slösuð dýr. Þetta segir formaður Dýralæknafélags Íslands sem segir bændur órólega og stjórnvöld engu svara. 22.8.2026 12:14
„Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Stækkunarstjóri Evrópusambandsins segir að engin aðlögun íslenskra laga að evrópsku regluverki muni eiga sér stað segi þjóðin já í atkvæðagreiðslunni í næstu viku. Hún segir ekkert hægt að segja til um mögulegar undanþágur. Það muni samningaviðræður leiða í ljós. 21.8.2026 20:54
„Ég get ekki svarað því“ Marta Kos, stækkunarstjóri Evrópusambandsins, telur ómögulegt að segja til um hvort Íslendingar geti staðið utan sjávarútvegsstefnu sambandsins. Það muni mögulegar samningaviðræður snúast um. 21.8.2026 12:17
Fólk hélt í sér á meðan sólmyrkvinn gekk yfir Afgerandi fall var í notkun á köldu vatni á meðan sólmyrkvinn gekk yfir í síðustu viku. Tölur frá Veitum sýna að fólk hélt í sér og eru þær ágætis vísbending um að þorri fólks hafi fylgst með atburðinum. 17.8.2026 19:57