Kvöldfréttir Stöðvar 2 Almannavarnir funduðu í dag vegna skjálftahrinu. Íbúar í Grindavík undirbúa sig undir eldgos á sama tíma og það hrinur úr hillum. Við ræðum við bæjarstjóra Grindavíkurbæjar og skoðum tjón á munum. 1.8.2022 18:01
Hádegisfréttir Bylgjunnar Jörð heldur áfram að skjálfa en snarpur skjálfti fannst víða um klukkan ellefu. Ríflega 1.400 skjálftar hafa mælst á Reykjanesskaganum síðan á miðnætti, þar af fimm yfir 4,0 að stærð. Landsmenn mega gera ráð fyrir áframhaldandi jarðskjálftavirkni næstu daga en jarðeðlisfræðingur telur að ný innskotavirkni sé hafin í kringum ganginn sem myndaðist við eldgosið í Geldingadölum. 1.8.2022 11:45
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Skjálfti af stærðinni 4,7 varð á Reykjanesskaga nú skömmu fyrir fréttir. Allar viðbragðsáætlanir eru tilbúnar hjá Grindavíkurbæ, ef eldgos hefst skammt frá bænum. Jarðskjálftahrina hefur verið á svæðinu, en skjálftar dagsins í dag mælast á minna dýpi en skjálftar gærdagsins. Grindvíkingar eru sumir orðnir þreyttir á hristingnum. 31.7.2022 18:28
Hádegisfréttir Bylgjunnar Jarðskjálftarnir sem riðið hafa yfir á Reykjanesi í dag mælast nú á minna dýpi en skjálftar gærdagsins. Sérfræðingur segir það merki um að kvika gæti verið að færast nær yfirborðinu. Við ræðum við náttúruvársérfræðing í fréttatímanum. 31.7.2022 11:45
Viðbúið að jarðskjálftar verði áfram næstu daga Óvissustigi almannavarna hefur verið lýst yfir á Reykjanesi vegna öflugrar jarðskjálftahrinu. Náttúruvársérfræðingur segir viðbúið að skjálftarnir verði áfram næstu daga og útilokar ekki eldgos. 30.7.2022 22:00
„Skaflarnir upp að hnjám“ Snjó kyngdi niður á miðhálendinu í nótt og hefur Sæsavatnaleið í Öskju verið lokuð í nokkurn tíma vegna snjóskafla. Gular viðvaranir eru í gildi á miðhálendi og austurlandi um helgina og varað við slæmu skyggni og hálku á fjallvegum. 30.7.2022 19:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Óvissustigi almannavarna hefur verið lýst yfir á Reykjanesi vegna öflugrar jarðskjálftahrinu. Náttúruvársérfræðingur segir viðbúið að skjálftarnir verði áfram næstu daga. Við ræðum við náttúruvársérfræðing í kvölsfréttatímanum en hann útilokar ekki eldgos. 30.7.2022 18:11
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum Bylgjunar heyrum við í lögreglu í Vestmannaeyjum, á Akureyri og í Reykjavík eftir annasama nótt. Rólegt var hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum og á Akureyri í gærkvöldi og nótt en lögreglan í Reykjavík hafði í nógu að snúast. 30.7.2022 11:42
„Þessi dæmi koma við mig og sýna svart á hvítu að það þarf klárlega að gera betur í þessum málum“ Lilja D. Alfreðsdóttir, menningarmálaráðherra, segir að fréttir um þjónustuleysi við heyrnarlaus börn komi við sig og segir jafnframt að gera þurfi betur þegar kemur að þjónustu við heyrnarlausa. Hún segir að stjórnvöld muni í samstarfi við sveitarfélögin einhenda sér í að framkvæma aðgerðaráætlun með það að markmiði að gera betur í málaflokknum. 29.7.2022 17:14
Býst við að umferðin verði þyngst í átt að góða veðrinu Hatíðarhöld fara fram víða um land um helgina með tilheyrandi umferðarþunga. Lögregla á von á að umferðin fari að þyngjast eftir hádegi og verði hvað þyngst um Suðurlandsveg á leið austur. 29.7.2022 11:43