Varað við hviðum á Austurlandi en blíðu í höfuðborginni Eftir suðvestanáttir undanfarinna vikna hafa nú orðið umskipti í veðrinu og nú er það lægðasvæði á milli Íslands og Noregs sem ræður ferðinni. Víða verður gola og hvassast austantil á landinu en á þeim slóðum gætu hviður náð allt að átján metrum á sekúndu. 25.7.2026 07:33
„Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Ferðaþjónustuaðilar lýsa ófremdarástandi á Keflavíkurflugvelli vegna mikils biðtíma sem skapast hefur í kjölfar innleiðingar nýs kerfis í landamæraeftirliti hérlendis. Ferðamenn, sem séu margir hverjir á efri árum, séu margir að bíða í allt á þriðja tíma en lögregla segist kappkosta að manna eftirlitið. Nýtt sjálfvirkt kerfi verði vonandi komið í gagnið í haust. 24.7.2026 20:26
Daniil gefur út lag með Kodak Black: „Trúi þessu ekki ennþá“ Rapparinn Daniil hefur nú gefið út nýtt lag ásamt bandaríska tónlistarmanninum Kodak Black en hann segir útgáfuna hafa komið honum í opna skjöldu. Sá síðarnefndi hefur verið gríðarlega vinsæll síðasta áratuginn og um þrjátíu milljónir manns hlusta á lögin hans í hverjum mánuði. Hann hefur unnið að lögum ásamt Bruno Mars, Travis Scott, Gucci Mane og Future svo dæmi séu tekin. 23.7.2026 15:42
Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Druslugangan hefst í fjórtánda skiptið klukkan 14:00 á laugardaginn en einn skipuleggjenda segir sjaldan, ef nokkurn tímann, hafa verið þarfara að ganga en nú. Í göngunni geti fólk komið saman og skilað skömminni, fengið útrás og fundið fyrir stuðningi í hópi fólks sem trúir því. Öllum sé boðið að ganga með, ekki bara þolendum kynferðisofbeldis. 23.7.2026 12:30
Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Búast má við hvassri vestan- og norðvestanátt við Vatnajökul í dag, frá Skaftafelli og austur að Höfn í Hornafirði. 23.7.2026 11:09
„Svo setti hann á sig sítrusilminn og þá máttu jólin koma“ Listakona sem er ein þeirra í teyminu sem skapar ilmheim Fichersunds segir uppvöxt sinn hafa mikil áhrif á hennar listrænu sýn. Hún endurspeglist í allri list sem hún skapi, hvort sem það sé ljósmyndun, ilmvatnagerð eða annað. Ilmur geti kallað fram löngu gleymdar minningar. 22.7.2026 07:18
Kalla inn fæðubótarefni Heilsubúðin og Heildsalan Mamma veit best ehf. hefur í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarnes, ákveðið að innkalla fæðubótarefnið Liposomal NMN frá Codeage. 21.7.2026 12:52
„Ég ætla snemma að sofa, því ég er dauðþreyttur“ Bréf sem var skrifað af farþega skipsins Titanic dögum áður en hann lést verður boðið upp á sunndaginn og er áætlað að um sex milljónir fáist fyrir það. Í bréfinu, sem er dagsett miðvikudaginn 10. apríl það örlagaríka ár 1912 og póststimplað í Queenstown, skrifaði hann um gott veður og góðan anda um borð í skipinu. 21.7.2026 11:18
„Ríða, drepa, giftast: Steindi, Gillz og Auddi Blö?“ Guðrún Svava Egilsdóttir, betur þekkt sem Gugga í Gúmmíbát, lét veðrið um þarsíðustu helgi ekki stoppa sig og mætti galvösk með míkrafóninn á lofti á hina árlegu Kótelettu á Selfossi. Þar var margt um manninn og lét hún spurningarnar dynja á fólki og sætti sig ekki við nein undanbrögð. 21.7.2026 07:01
Kölluð út um helgina vegna barns sem læstist inni á salerni Sjúkraflutningar um helgina voru fleiri en vant er. Eitt þeirra útkalla sem Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins fór í á laugardaginn var vegna barns sem hafði læsts inni á baðherbergi en engum varð meint af. 20.7.2026 16:59