Enginn handtekinn en áfram áætlað að sömu aðilar hafi verið að verki Tvö áþekk innbrot voru framin í byrjun sumars, fyrst í svínabú Stjörnugríss í Brimnesi á Kjalarnesi aðfaranótt mánudagsins 11. maí en síðar í Reykjabú í Mosfellsbæ, þar sem ræktaðir eru kalkúnar og kjúklingar, aðfaranótt mánudagsins 1. júní. Rannsókn beggja mála er ólokið og hefur enginn verið handtekinn en lögreglan hefur leitað að vitnum síðan í upphafi júní. 6.7.2026 13:58
Efast um að fólk í undirheimunum pæli í tuftvélinni Um helmingur þýfisins sem var stolið af vinnustofu Karenar Briem og Antons Lyngdal aðfaranótt laugardagsins, 4. júlí, hefur ratað aftur heim en aðeins annar þjófurinn hefur verið handsamaður. Hugleikur Dagsson, grínisti og eiginmaður Karenar, rifjaði það upp í viðtali á Vísi að Bubbi Morthens hafi aðstoðað sig við að endurheimta harðan disk fyrir um áratug síðan en hann hefur ekki enn verið ræstur út þessa ferðina. 6.7.2026 11:56
Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Brúðulistahátíðin HIP-fest (Hvammstangi international puppetry festival) var haldin í fimmta sinn dagana 26., 27. og 28. júní en þátttakendur í ár voru frá jafn mörgum mismunandi löndum. Handbendi brúðuleikhús stendur fyrir hátíðinni en gestir ferðuðust sumir víða að, þar á meðal frá Havaí, Kína og Finnlandi. 6.7.2026 10:02
Nýtt app til að finna týndar kisur frumsýnt í dag eftir sex ára þróunarvinnu Hugbúnaðarfræðingur sem hefur síðustu sex ár unnið að og þróað Kattaskránna leggur nú lokahönd á nýtt app sem hann er hægt að hlaða niður í gegnum glænýjan kattarvef. Þar er hægt að haka við að kisa sé týnd og fá þá „kattavinir“ í nágrenninu skilaboð í símann sinn um týndu kisuna. Ríflega tvö þúsund kisur eru þegar skráðar í gagnagrunn Kattaskránnar og hafa bæði dýralæknar og lögreglan leitað í grunninn við mál sem snúa að köttum. 4.7.2026 15:03
„Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Kántrísöngkonan Dolly Parton var ein þeirra sem hlutu styrk frá þeim Taylor Swift og Travis Kelce en stjörnuparið hefur verið saman í um þrjú ár. Þrátt fyrir að það hafi að mestu leyti tekist að halda undirbúningi brúðkaups þeirra úr fjölmiðlaumfjöllun hafa sumar bandarískar fréttastofur greint frá því að hátíðarhöldin hafi hafist í gærkvöldi og að parið gifti sig á næstu dögum. 3.7.2026 17:26
Sakar MAST um að ljóstra upp um staðsetningu skipa Hvals Forstjóri Hvals hf. hefur sent Matvælastofnun fyrirspurn um það hvort eftirlitsskýrslur varðandi hvalveiði fyrirtækisins hafi verið afhentar þriðja aðila. Hann telur aðgerðarsinna á skipinu Bandero hafa nýtt skýrslurnar sem ógni öryggi starfsmanna Hvals og geri fyrirtækinu erfitt fyrir um veiðar á gjöfulum miðum. 3.7.2026 16:50
Hundur hefur fundist dauður við Langjökul Hundur hefur fundist dauður vestanmegin við Langjökul en ekki er víst hvort hann lá í jöklinum sjálfum og sé að koma undan núna í hlýnandi veðri eða hvort hann hafi legið á ísnum eða við jaðar jökulsins. Ekki er hægt að meta tegund né lit á feldi vegna mikils niðurbrots en hundurinn virðist vera af meðalstærð. 3.7.2026 11:53
Maður sem passaði við lýsinguna var handtekinn Stunguárás sem varð á níunda tímanum í gærkvöldi, þann 2. júlí, er ekki talin tengjast skipulagðri glæpastarfsemi en mennirnir tveir sem um ræðir þekktust. Þá var greint frá því í gær að sérsveitin hafi verið kölluð til aðstoðar lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu en svo sagt að snúa við. 3.7.2026 10:40
Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Einn stærsti dagskrárliður Írskra daga er tónlistarviðburðurinn Lopapeysan sem samanstendur af sextán mismunandi tónlistaratriðum þetta árið og fer fram næsta laugardag, þann 4. júlí. Þeir Valdimar Ingi Brynjarsson og Hjörvar Gunnarsson voru árið 2024 ráðnir viðburðastjórar bæjarhátíðarinnar sem hefur verið haldin síðan árið 1999 og fer, rétt eins og vanalega, fram á Akranesi nú á dögunum. 2.7.2026 14:07
Ellefu ára drengur lést eftir að hafa vaknað með leðurblöku á andlitinu Ellefu ára kanadískur drengur lést úr hundaæði eftir að hafa vaknað við að leðurblaka var sest á andlit hans en atvikið átti sér stað árið 2024. Foreldrar drengsins leituðu með hann til læknis um tveimur vikum seinna þegar hann fór að finna fyrir doða og bólgu í andliti. Illa gekk að greina einkenni hans og á tímabili var gert ráð fyrir að hann væri með svokallaða Bell-lömun og seinna herpes-munn- og gómsýkingu. Þegar hann var loks greindur með hundaæði átti hann rétt rúmar tvær vikur ólifaðar. 2.7.2026 11:21