Fréttamaður

Freyja Þórisdóttir

Freyja er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Nýr í­þrótta­völlur vekur at­hygli í fá­mennri sveit

Nýjum íþróttamannvirkjum er jafnan vel fagnað meðal þeirra sem munu njóta þeirra en við Hrollaugsstaði í Suðursveit er verið er að taka í notkun nýjan fjölnota íþróttavöll. Sveitin er mjög fámenn og eru þar innan við tuttugu heimili og því vekur nýi völlurinn mikla athygli.

Facebook og Instagram liggi niðri vegna bilunar

Samfélagsmiðlarnir Instagram og Facebook virðast liggja niðri en erlendir miðlar hafa greint frá því að um bilun sé að ræða og að villutilkynningar hafi og séu að berast notendum um allan heim.

Taka upp gjald­skyldu við Smára­lind

Forsvarsmenn Smáralindar hafa ákveðið að taka upp gjaldskyldu á bílastæðum við verslunarmiðstöðina en uppbygging á svæðinu og aðsókn í húsið eru meðal þess sem spilaði inn í ákvarðanatökuna að sögn markaðsstjóra Smáralindar.

Allir um­sækj­endurnir metnir jafn hæfir

Þeir fjórir umsækjendur sem sóttu um embætti dómara við Hæstarétt hafa verið metnir jafn hæfir af dómnefnd. Umsækjendurnir eru öll dómarar við Landsrétt en í kjölfar þess að nefndin afhendir ráðherra umsögn sína um umsækjendur er stefnt að því að ákvörðun um skipun liggi fyrir hið fyrsta.

Myndaveisla: Þær voru fjallkonur um land allt í ár

Fjallkonurnar í ár, á áttatíu og tveggja ára afmæli Lýðveldisins, voru hver annarri glæsilegri en frá lýðveldisstofnun hefur það verið hefð að kona í hlutverki fjallkonunnar flytji ávarp fyrir hátíðargesti á þjóðhátíðardaginn.

„Þeir gáfu mér þessi dýr­mætu augna­blik til að sveigja úr leið“

Á níunda tímanum í kvöld, mánudaginn 22. júní, skall hurð nærri hælum á göngustíg við Ásgarð í Mosfellsbæ en minnstu munaði að þrír ungir fjallahjólarar keyrðu niður barnungan dreng. Móðir drengsins segist enn vera í hálfgerðu áfalli en að „skyndileg ónotatilfinning“ hafi orðið til þess að hún greip son sinn upp og hljóp með hann af stígnum augnabliki áður en drengir á fjallahjólum birtust ofar á stígnum. Þá segir hún alls ekki vera við þá að sakast enda sárvanti betri merkingar og skilti við stíginn.

Segir upp­haf hvalvertíðar vera gleði­tíðindi: „Peningarnir detta ekki af himnum ofan“

Fyrstu langreyðarnar, sem veiðst hafa við Íslandsstrendur í þrjú ár, eru væntanlegar á land í Hvalfirði í nótt. Formaður Verkalýðsfélags Akraness segir upphaf hvalvertíðar gleðitíðindi, venjulegt verkafólk geti fengið allt að tvær milljónir króna í laun á mánuði. Þá segir hann að það yrði illa farið fyrir Íslendingum ef „öfgaskoðanir öfgafólks“ færu að hafa áhrif á ákvarðanatökur.

Lög­reglan þakkar öllum sem komu að verk­efninu

Tónlistarhátíðin Bergmál fór fram á Þingvöllum um liðna helgi en undirbúningur hátíðarinnar hefur verið mikið ræddur síðastliðnar vikur. Tekist hefur verið á um hvort að skipulag hafi verið með sem bestum hætti en meðal þeirra sem telja svo vera er starfshópur Lögreglunnar á Suðurlandi.

Tónlistargoðsögnin Clive Davis er látinn

Clive Davis, tónlistarmógúllinn sem gegndi lykilhlutverki í velgengni listamanna á borð við Whitney Houston, Bruce Springsteen og Arethu Franklin, er látinn, 94 ára að aldri. Hann var um áratugaskeið meðal valdamestu manna í bandarískum tónlistariðnaði.

Sjá meira