Stærstu einkafjárfestarnir selja sig út úr Festi fyrir nærri þrjá milljarða Tveir umsvifamestu einkafjárfestarnir í hluthafahópi Festi, sem rekur meðal annars eldsneytisstöðvar undir merkjum N1 og verslanir Krónunnar og Elko, hafa losað um allan eignarhlut sinn í smásölufyrirtækinu fyrir samtals nálægt þrjá milljarð króna. Salan kemur aðeins nokkrum mánuðum eftir að stórir lífeyrissjóðir beittu sér gegn því að fulltrúi einkafjárfestanna færi í stjórn fyrirtækisins. 4.7.2024 20:55
„Ekki tímabært“ að rýmka reglur um afleiðuviðskipti með krónuna Seðlabankinn telur rétt að fara „varlega“ í að létta á þeim takmörkunum sem gilda um afleiðuviðskipti bankanna með íslensku krónuna gagnvart erlendum gjaldmiðlum. Ekki sé tímabært að rýmka þær reglur, eins og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur nýlega lagt til, enda gæti það opnað á aukna stöðutöku með gjaldmiðilinn nú þegar vaxtamunur við útlönd fer hækkandi. 4.7.2024 10:46
Lífeyrissjóðir draga heldur úr gjaldeyriskaupum sínum milli ára Þrátt fyrir stórtæk gjaldeyriskaup lífeyrissjóða í maímánuði síðastliðnum, þau mestu í einum mánuði í tvö ár, þá dróst fjárfesting sjóðanna í erlendum gjaldmiðlum saman á fyrstu fimm mánuðum ársins en gengi krónunnar hélst afar stöðugt á því tímabili. Í byrjun ársins hækkaði hámark á gjaldeyriseignir lífeyrissjóðanna en þeir settu flestir hverjir sér þá stefnu að auka enn frekar vægi erlendra fjárfestinga í eignasöfnum sínum fyrir yfirstandandi ár. 3.7.2024 07:00
Fyrirtækjalánin í methæðum vegna kaupa Þórkötlu á fasteignum í Grindavík Tilfærsla frá íbúðalánum heimila til fyrirtækja í tengslum við sölu Grindvíkinga á fasteignum sínum til fasteignafélagsins Þórkötlu skýrir að hluta tugmilljarða stökk í nýjum útlánun til atvinnufyrirtækja í maímánuði og höfðu þau aldrei mælst meiri. Félagið Þórkatla, sem var stofnað fyrr á árinu til að annast uppkaup ríkisins á íbúðarhúsnæði einstaklinga vegna eldsumbrotanna í nágrenni Grindavíkur, stóð að kaupum á um 200 fasteignum í maí. 2.7.2024 15:32
Fjárfestar stækka framvirka stöðu með krónunni um tugi milljarða Þrátt fyrir að blikur séu á lofti í ferðaþjónustunni þá hefur það ekki haft neikvæð áhrif á væntingar fjárfesta um gengisþróun krónunnar en þeir hafa aukið stöðutöku sína um tugi milljarða á síðustu mánuðum. Eftir að hafa haldist óvenju stöðugt um langt skeið gagnvart evrunni hefur gengið styrkst lítillega á síðustu vikum. 1.7.2024 18:25
Hluthafar fá greidda þrjá milljarða eftir hækkun á söluvirði Kerecis Fyrrverandi hluthafar Kerecis, sem var selt til alþjóðlega heilbrigðisrisans Coloplast undir lok sumars í fyrra, munu fá viðbótargreiðslu í sinn hlut upp á samanlagt nærri þrjá milljarða króna á næstu dögum. Greiðslan er nokkuð hærri en áður var áætlað en frekari fjármunir – og meiri að umfangi – gætu komið í skaut þeirra síðar á þessu ári. 1.7.2024 14:41
Fjármagn heldur áfram að streyma út úr hlutabréfasjóðum Aukinn áhugi fjárfesta á hlutabréfasjóðum í kringum síðustu áramót reyndist skammlífur og fjármagn er aftur tekið að flæða út úr slíkum sjóðum samtímis erfiðu árferði á hlutabréfamarkaði. Fjárfestar seldu í verðbréfasjóðum, einkum þeim sem fjárfesta í skuldabréfum, fyrir samanlagt um fimmtán milljarða í liðnum mánuði. 28.6.2024 12:02
Útlán til fyrirtækja tóku sextíu milljarða stökk og hafa aldrei mælst meiri Ágætis þróttur er í nýjum útlánum bankakerfisins til atvinnufyrirtækja þrátt fyrir þröng lánþegaskilyrði en í maí námu þau meira en sextíu milljörðum og hafa aldrei mælst meiri í einum mánuði. Vöxturinn er sem fyrr drifinn áfram af ásókn fyrirtækja í verðtryggð lán á tímum hárra vaxta auk þess sem mikil aukning er í lánum í erlendum gjaldmiðlum. 27.6.2024 17:52
„Nokkuð snúið“ að fá inn erlenda sjóði meðan hlutabréfaveltan er jafn lítil Góður gangur í sölu á hliðstæðu Alvotech við lyfið Humira í Bandaríkjamarkað þýðir að pantanabókin er orðin nokkuð meiri en þeir milljón skammtar sem upplýst var um fyrir fáeinum vikum, að sögn forstjóra félagsins, sem segir árið búið að „teiknast býsna vel upp.“ Í viðtali við Innherja ræðir Róbert Wessman um litla veltu með bréf félagsins í Bandaríkjunum, sem hefur skapað tæknilegar hindranir fyrir innkomu erlendra sjóða, en telur að sú staða geti snúist hratt við. Hann útilokar að Alvotech sé að fara sækja sér meira fé í reksturinn og undirstrikar að fjármögnun félagsins sé „lokið.“ 25.6.2024 14:54
„Óþarfa áhyggjur“ fjárfesta að horfið verði frá tvískráningu JBT Marel Sameinað félag John Bean Technologies (JBT) og Marel verður ekki of skuldsett, að mati forstjóra JBT, en unnið verður að því að draga úr skuldsetningu og hún fari í ásættanlegt horf á einu ári. Hann segir að íslenskir fjárfestar þurfi ekki að óttast að horfið verði frá tvískráningu hérlendis og í Bandaríkjunum. Tvískráningin verði ekki byrði á rekstrinum og hún muni auka seljanleika með hlutabréf fyrirtækisins. „Marel er með öfluga langtímahluthafa, eins og lífeyrissjóði, og við tökum þeim fagnandi,“ segir forstjórinn í einkaviðtali við Innherja. 24.6.2024 08:19