Jón kemur nýr inn í bankaráð Landsbankans og verður formaður Jón Þ. Sigurgeirsson, sem hefur undanfarin tvö ár verið efnahagsráðgjafi viðskiptaráðherra, er tilnefndur af Bankasýslu ríkisins sem annar af tveimur nýjum bankaráðsmönnum Landsbankans. Lagt er til að Jón, sem starfaði um langt árabil hjá Seðlabankanum, verði formaður bankaráðs. 15.3.2024 17:14
Jákvætt að klára sölu á ISB enda þurfi ríkið á peningunum að halda núna Það er „jákvætt“ að stjórnvöld stefni að því að ljúka við sölu á eignarhlut sínum í Íslandsbanka, að mati seðlabankastjóra, sem telur erfitt fyrir ríkið að vera minnihlutaeigandi í einkabanka. Fjármálaráðherra áformar að selja eftirstandandi hlut ríkissjóðs, sem er núna yfir 90 milljarðar að markaðsvirði, með almennu markaðssettu útboði sem verður sennilega gert í tveimur skrefum. 15.3.2024 11:41
Lífeyrissjóðir opinberra starfsmanna studdu ekki kaupréttarkerfi Regins Tvær stærstu hluthafar Regins, lífeyrissjóðirnir LSR og Brú, greiddu ekki atkvæði með tillögu stjórnar fasteignafélagsins um innleiðingu á kaupréttarkerfi fyrir lykilstjórnendur sem var kynnt fjárfestum í aðdraganda aðalfundar fyrr í vikunni. Ekki náðist nægjanlegur meirihlutastuðningur fyrir tillögunni eftir að lífeyrissjóðurinn Gildi bókaði andstöðu við kaupréttarsamningana og taldi rétt að hluthafar myndu taka afstöðu til helstu skilmála þegar slík kerfi væru tekin upp. 15.3.2024 10:19
Ríkið klárar sölu á grænu evrubréfi til tíu ára upp á um 110 milljarða Íslenska ríkið er að klára útgáfu á sínu fyrsta græna skuldabréfi í erlendri mynt til tíu ára upp á 750 milljónir evra, jafnvirði um 110 milljarða íslenskra króna. Margföld umframeftirspurn var á meðal erlendra skuldabréfafjárfesta í útboðinu en skuldabréfaútgáfan er sú fyrsta hjá ríkissjóði á alþjóðlegum mörkuðum frá því snemma árs 2021. 14.3.2024 14:37
Unnið með bönkunum í erlendri fjármögnun að hafa tekið yfir íbúðalánin Efnahagsreikningur og rekstur viðskiptabankanna hefur tekið stakkaskiptum frá 2019, þegar þeir voru í raun bara „fyrirtækjabankar“ að sögn seðlabankastjóra, og viðskiptalíkanið er orðið mun sterkara eftir að bankarnir tóku nánast yfir íbúðalán heimilanna sem hefur unnið með þeim í erlendri markaðsfjármögnun. Hann segir að hagræðið sem hafi náðst með þeirri breytingu sé komin til vera og öll rök hnígi að því að lífeyrissjóðir einblíni á að kaupa sértryggð bankanna fremur en að standa sjálfur í beinum lánveitingum. 14.3.2024 12:10
„Engin takmörk“ virðast vera á sívaxandi útþenslu eftirlitsiðnaðarins Fráfarandi stjórnarformaður Arion skaut föstum skotum á það sem hann kallaði „sístækkandi og íþyngjandi hlutverk eftirlitsiðnaðarins“ á aðalfundi bankans fyrr í dag og sagði þá þróun valda honum áhyggjum í starfsumhverfi fyrirtækja á Íslandi, einkum í bankarekstri. Engin takmörk væru á útþenslu slíkra stofnana og starfsfólk þess virtist oft þurfa að sanna tilvist sína með því að kalla sífellt eftir strangri eftirliti og fleiri skýrslum. 13.3.2024 21:07
Ríkið að ráðast í fyrstu grænu útgáfuna með evrubréfi til tíu ára Íslenska ríkið vinnur nú að því að ljúka við sölu á sjálfbærum skuldabréfum til alþjóðlegra fjárfesta en meira en þrjú ár eru liðin frá síðustu útgáfu ríkissjóðs á erlendum mörkuðum. Fulltrúar Seðlabankans og fjármálaráðuneytisins funda nú með fjárfestum, ásamt erlendum ráðgjöfum stjórnvalda, en um verður að ræða fyrstu grænu útgáfuna hjá ríkissjóði. 13.3.2024 13:33
Háir raunvextir þrengja að rekstrarumhverfi fyrirtækja næstu misserin Fjárhagsstaða kerfislega mikilvægra banka hér á landi er sterk, sem birtist meðal annars í góðu aðgengi þeirra að fjármögnun, en hækkandi raunvextir eru farnir að fara draga úr eftirspurn heimila og fyrirtækja eftir lánsfjármagni, að sögn fjármálastöðugleikanefndar. Hún vekur athygli á því að þyngri greiðslubyrði lána ásamt minnkandi efnahagsumsvifum auki líkur á greiðsluerfiðleikum sem hafi neikvæð áhrif á fjármálastöðugleika. 13.3.2024 09:07
Tillaga um kaupréttarkerfi fékkst ekki samþykkt eftir andstöðu frá Gildi Áform stjórnar Regins um innleiðingu á kaupréttarkerfi fyrir lykilstjórnendur hlaut ekki samþykki nægjanlega mikils meirihluta hluthafa á aðalfundi fasteignafélagsins sem lauk fyrr í dag. Lífeyrissjóðurinn Gildi, fimmti stærsti hluthafi félagsins, hafði lagt fram bókun í aðdraganda fundarins og lagst gegn tillögu stjórnarinnar. 12.3.2024 21:31
Bið á vaxtalækkun meðan óvissa er um fjármögnun á kjarapakka stjórnvalda Nýgerðir samningar á almennum vinnumarkaði fela í sér launahækkanir við neðri mörk þess sem sést hefur í kjarasamningum síðustu fimmtán ár og lengd þeirra ætti að minnka verðbólguáhættu og auka fyrirsjáanleika, að mati viðmælenda Innherja á fjármálamarkaði, en ólíkar skoðanir eru um áhrifin á verðbólguhorfur. Miklu máli skiptir fyrir vaxtalækkunarferlið að stjórnvöld skýri hvernig þau hyggjast fjármagna tugmilljarða útgjaldaaðgerðir sínar sem eru „óhjákvæmilega“ sagðar vera eftirspurnarhvetjandi. 12.3.2024 11:48