Stór bankafjárfestir segir óhóflegar eiginfjárkröfur kosta samfélagið tugi milljarða Langsamlega stærsti einkafjárfestirinn í Kviku og Arion gagnrýnir stjórnvöld fyrir að vilja ekki „taka á rót vandans“ í íslensku bankakerfi sem hann segir vera „óhóflegar“ eiginfjárkröfur og kosti heimili og atvinnulífið árlega tugi milljarða vegna meiri vaxtamunar en ella. Forstjóri Stoða hefði viljað sjá vaxtalækkunarferlið hefjast strax á síðasta fundi og brýnir Seðlabankann sem hann telur að sé „oft sinn versti óvinur“ í að ná niður verðbólguvæntingum með svartsýnum spám sínum um verðbólguhorfur. 26.2.2024 17:58
Evrópskir fjárfestar og lífeyrissjóðir koma að kaupum á 23 milljarða hlut í Alvotech Tveimur dögum eftir að Alvotech fékk formlegt samþykki um markaðsleyfi í Bandaríkjunum fyrir sín stærstu lyf hefur íslenska líftæknilyfjafyrirtækið gengið frá sölu á bréfum í félaginu fyrir tæplega 23 milljarða, meðal annars til evrópskra fjárfesta. Fjármunirnir verða nýttir að hluta til að styrkja framleiðslugetuna en hlutabréfaverð Alvotech hefur rokið upp í viðskiptum í Kauphöllinni í morgun. 26.2.2024 11:07
Verið að taka úr sambandi mikilvæg skilaboð til neytenda um raforkuskort Með því að veita ráðherra heimild til að ráðstafa forgangsraforku er verið að draga úr hvatanum til að auka framleiðslu og eins kippa úr sambandi mikilvægum skilaboðum til neytenda um raforkuskort, að sögn varaforseta hagfræðideildar Háskóla Íslands og varaformanns Viðreisnar, sem kallar eftir því að komið sé á skilvirkari samkeppnismarkaði með raforku. Framkvæmdastjóri Samorku líkir framkvæmd rammaáætlunar í dag, sem hann segir vera „háð pólitísku valdi,“ við bankakerfið fyrir um hundrað árum. 23.2.2024 09:33
Fjárfestarnir sem veðjuðu á Alvotech – og eygja von um að hagnast ævintýralega Þegar ljóst varð fyrir mánuði að samþykki fyrir markaðsleyfi í Bandaríkjunum fyrir stærstu lyf Alvotech væri nánast í höfn áttu íslenskir lífeyrissjóðir samanlagt vel undir þriggja prósenta hlut í þessu langsamlega verðmætasta fyrirtæki í Kauphöllinni – og höfðu þá engir nýir sjóðir bæst í hluthafahópinn frá því að FDA setti félaginu stólinn fyrir dyrnar tíu mánuðum áður. Risastór veðmál sumra sjóðastýringarfélaga á Alvotech, með því að halda stöðu sinni við krefjandi markaðsaðstæður og jafnvel bæta við hana, hefur skilað sjóðum þeirra nærri hundrað prósenta ávöxtun síðustu mánuði á meðan önnur mátu áhættuna of mikla og losuðu um hlut sinn, eins og greining Innherja á umfangi innlendra fagfjárfesta sem eiga bréf í Alvotech skráð hér heima leiðir í ljós. 21.2.2024 17:34
Á von á meiri erlendri fjárfestingu í ríkisbréf ef vaxtamunurinn „þrengist ekki“ Þrátt fyrir tugmilljarða innflæði fjármagns í íslensk ríkisskuldabréf síðustu mánuði þá hefði mátt reikna með að það yrði enn meira frá því að vaxtahækkunarferli Seðlabankans hófst, að sögn aðalhagfræðings Kviku banka, en fá dæmi eru um vestræn ríki þar sem skuldabréfafjárfestar geta komist í jafn háa vexti. Ef vaxtamunur Íslands við útlönd minnkar ekki að ráði er líklegt að fjárfesting erlendra sjóða í ríkisbréfum hér á landi, sem er umtalsvert minni borið saman við önnur þróuð hagkerfi, muni halda áfram að aukast. 20.2.2024 16:13
„Sterk stuðningsyfirlýsing“ stærstu hluthafa sem leggja Play til 2,6 milljarða Stærstu fjárfestarnir í hluthafahópi Play hafa skráð sig fyrir samanlagt um 2,6 milljörðum í útboði félagsins gegn því skilyrði að það takist að sækja nýtt hlutafé fyrir að lágmarki fjóra milljarða. Útboðsgengið er um 33 prósentum lægra en hlutabréfaverð Play var þegar félagið birti uppgjör sitt og áform um hlutafjáraukningu fyrr í þessum mánuði. 20.2.2024 11:04
Gengi Hampiðjunnar rýkur upp vegna uppfærslu í vísitölum FTSE Tvö íslensk félög í Kauphöllinni munu bætast við vísitölur FTSE Russell fyrir nýmarkaðsríki upp úr miðjum næsta mánuði. Hlutabréfaverð Hampiðjunnar, annað af félögunum sem verður tekið inn í vísitölurnar, hefur rokið upp á markaði í dag en búast má við talsverðu innflæði fjármagns frá erlendum vísitölusjóðum við uppfærsluna. 19.2.2024 15:28
Fer úr fjármálaeftirlitsnefnd eftir að AGS varaði við hættu á pólitískum þrýstingi Skrifstofustjóri í fjármála- og efnahagsráðuneytinu, sem hefur setið í fjármálaeftirlitsnefnd Seðlabankans allt frá því að hún tók fyrst til starfa fyrir meira en fjórum árum, hefur beðist lausnar en Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn gerði á liðnu ári alvarlegar athugasemdir við að fulltrúi frá ráðuneytinu væri í hópi nefndarmanna. Ráðherra hefur núna skipað Ernu Hjaltested, yfirlögfræðing Isavia, í hennar stað í fjármálaeftirlitsnefndina. 19.2.2024 11:32
Stærstu hluthafar sagðir ætla að taka þátt í útboði Play og verja sinn hlut Allt útlit er fyrir að mikill meirihluti helstu fjárfestanna í hluthafahópi Play muni leggja flugfélaginu til samanlagt um helming þeirrar fjárhæðar sem það áformar að tryggja sér í þessum mánuði. Stjórnendur Play hafa klárað markaðsþreifingar við tíu stærstu hluthafa félagsins vegna útboðsins, þar sem ætlunin er að sækja allt að fjóra milljarða, og væntingar eru um að hægt verði að tilkynna um aðkomu þeirra á allra næstu dögum. 16.2.2024 09:33
Play gefur ekkert upp um rannsókn FME á mögulegri markaðsmisnotkun Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands rannsakar nú mögulegt brot Play á lögum um aðgerðir gegn markaðssvikum, sem getur meðal annars varðað frestun á birtingu innherjaupplýsinga eða upplýsingagjöf í tengslum markaðsþreifingar, en flugfélagið segir málið vera „í vinnslu“ og tjáir sig ekki um hvaða atvik sé að ræða. Hlutabréfaverð Play hefur fallið um 40 prósent á nokkrum dögum í litlum viðskiptum eftir að félagið birti uppgjör sem sýndi bágborna lausafjárstöðu og boðaði því hlutafjárútboð til að styrkja hana. 13.2.2024 17:07