„Ekki viðskiptahættir sem okkur líkar við,“ segir næst stærsti eigandi Samkaupa Lífeyrissjóðurinn Birta, sem fer með tæplega fimmtungshlut í Samkaupum, gagnrýnir forsvarsmenn KEA fyrir óvandaða viðskiptahætti við sölu á hlut sínum í matvörukeðjunni til SKEL fjárfestingafélags með því að virða ekki ákvæði í hluthafasamkomulagi sem félagið hafði undirgengist. Framkvæmdastjóri Birtu segir að sjóðurinn muni núna endurskoða afstöðu sína til samkomulagsins vegna breytts eignarhalds en það hefur meðal annars snúið að skipan í stjórn Samkaupa. 5.1.2024 11:36
EpiEndo ætlar að sækja yfir 15 milljarða til að fjármagna frekari rannsóknir Íslenska lyfjafyrirtækið EpiEndo Pharmaceuticals, sem vinnur að þróun á lyfi í töfluformi gegn lungnaþembu, hefur samið við alþjóðlegan fjárfestingabanka til að sjá um stóra hlutafjáraukningu síðar á árinu þar sem félagið áformar að sækja sér fjármagn upp á vel á annan tug milljarða króna. Sú fjármögnun á að standa undir kostnaði við næsta fasa af klínískum rannsóknum fram til ársins 2028 en stjórnendur EpiEndo eru bjartsýnir á að félagið geti náð verulegri hlutdeild á markaði sem gæti verið verið árlega um 30 milljarðar Bandaríkjadala að stærð. 4.1.2024 15:07
Áforma að auka gjaldeyriseignir sínar um liðlega 150 milljarða á nýju ári Lífeyrissjóðir landsins setja stefnuna á að auka hlutfallslegt vægi erlendra fjárfestinga í eignasöfnum sínum um meira en tvær prósentur á þessu ári, samkvæmt þeim fjárfestingastefnum sem stjórnir sjóðanna hafa samþykkt, en á sama tíma búast þeir við að minnka hlutfall ríkisbréfa og innlendra hlutabréfa. Neikvæð raunávöxtun annað árið í röð þýðir að sumir sjóðir þurfa að óbreyttu að bregðast við halla á tryggingafræðilegri stöðu. 4.1.2024 08:00
SKEL byggir upp stöðu í Samkaupum í aðdraganda skráningar á markað Fjárfestingafélagið SKEL, sem á Orkuna og Heimkaup, hefur gengið frá kaupum á um fimm prósenta eignarhlut í smásölufyrirtækinu Samkaupum. Forstjóri SKEL segir yfirlýst áform Samkaupa um að fara með félagið á markað gera það að áhugaverðum fjárfestingarkosti. 2.1.2024 13:33
Fjárfestar selt í hlutabréfasjóðum fyrir meira en tíu milljarða á árinu Þrátt fyrir viðsnúning á mörkuðum undir lok síðasta mánaðar þegar fréttir af mögulegu yfirtökutilboði í Marel bárust þá var ekkert lát á áframhaldandi útflæði fjármagns úr hlutabréfasjóðum. Á fyrstu ellefu mánuðum ársins hafa fjárfestar minnkað stöðu sína í slíkum sjóðum umtalsvert meira en allt árið 2022 en í tilfelli skuldabréfasjóða hefur útflæðið nærri þrefaldast. 29.12.2023 11:19
Yfirtaka á Marel gæti „heft“ uppfærslu á markaðnum hjá vísitölufyrirtækjum Verði af yfirtöku bandaríska fyrirtækisins JBT á Marel er hætt við því að það myndi „hefta“ frekari hækkun á gæðaflokkun íslenska markaðarins hjá alþjóðlegum vísitölufyrirtækjum, að sögn forstjóra Kauphallarinnar, enda sé ólíklegt að þau myndu telja íslensku kauphöllina vera heimamarkað sameinaðs félags. Stjórnendur Kauphallarinnar hafa haft væntingar um að markaðurinn gæti fengið uppfærslu í flokk nýmarkaðsríkja hjá MSCI á árinu 2024. 27.12.2023 12:29
Guðmundur að hætta sem ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu Guðmundur Árnason, sem hefur verið ráðuneytisstjóri í fjármála- og efnahagsráðuneytinu í fjórtán ár, lætur senn af störfum í ráðuneytinu. Hann mun að eigin sögn taka við skipun sem sendiherra í utanríkisþjónustunni á næsta ári. 19.12.2023 13:13
Meiri áhættusækni kallar á stífari kröfur um starfsemi lífeyrissjóða Breyttar og áhættusamari áherslur í fjárfestingum lífeyrissjóðakerfisins, sem er að stækka ört, eru ekki „óeðlilegar“ en þær þýða að sama skapi að sjóðirnir þurfa að lúta stífari kröfum um meðal annars áhættustýringu, að sögn seðlabankastjóra. Hann telur gagnrýni á að rekstrarkostnaður sjóðanna sé of mikill um margt vera ósanngjörn. 19.12.2023 12:16
Setur áherslu á auknar fjárfestingar erlendis en minnkar vægi ríkisbréfa Einn stærsti lífeyrissjóður landsins boðar litlar breytingar á hlutfalli sínu í fjárfestingum í innlendum hlutabréfum á komandi ári á meðan stefnan er sett á að auka áfram nokkuð vægi erlendra eigna í eignasafninu. Útlit er fyrir töluverða endurfjárfestingarþörf hjá Gildi í náinni framtíð og á árinu 2024 er áætlað að hún verði vel yfir fimmtíu milljarðar króna. 18.12.2023 11:19
Sannfærður um „verulega“ samlegð af mögulegri sameiningu Marel og JBT Uppfærð viljayfirlýsing um mögulegt tilboð John Bean Technologies (JBT) í allt hlutafé Marel, sem er hækkað um átta prósent frá fyrra boði, gerir ráð fyrir sambærilegu gengi og erlendir greinendur eru að verðmeta íslenska félagið á um þessar mundir. Forstjóri JBT segist sannfærður um að mögulegur samruni muni hafa í för með sér „verulega“ samlegð fyrir bæði félög sem hluthafar ættu að njóta góðs af en hlutabréfaverð Marels hefur rokið upp í fyrstu viðskiptum á markaði í morgun. 14.12.2023 10:57