Vísar á bug tillögum um frið í skiptum fyrir úkraínskt land Kamala Harris, varaforseti Bandaríkjanna, lýsti tillögum um að Úkraínumenn afsali sér landsvæði sínu til þess að kaupa sér frið við Rússa sem hættulegum og óásættanlegum í dag. Það væru ekki friðartillögur heldur uppgjafartillögur. 26.9.2024 22:27
Samherjaskipstjórinn segir málinu ekki lokið Skipstjóri hjá Samherja segir að síðasta orðið hafi ekki verið sagt í máli sem varðar byrlun og stuldi á síma hans þrátt fyrir að lögreglan hafi fellt rannsókn á því niður. Hann sakar blaðamenn um blekkingar og að afvegaleiða rannsóknina. 26.9.2024 21:15
Rannsókn lögreglu haft kælingaráhrif á alla blaðamannastéttina Áralöng rannsókn lögreglustjóran á Norðurlandi eystra á sex blaðamönnum hefur ekki aðeins kælingaráhrif á þá heldur á alla stéttina, að sögn formanns Blaðamannafélags Íslands. Málið hafi hvílt þungt á mörgum. 26.9.2024 20:31
Nemandinn sem stakk Ingunni áfrýjar dómi Lyfjafræðinemi sem stakk Ingunni Björnsdóttur, dósent við Oslóarháskóla, ítrekað hefur áfrýjað hluta dóms sem hann hlaut fyrir verknaðinn. Hann vill fá öryggisvistun sinni hnekkt og dómi vegna árásar á samkennara Ingunnar. 26.9.2024 18:37
Sátt Eimskipa við Samkeppniseftirlitið kom Samskipum ekki við Samskip hafði ekki hagsmuna að gæta í sátt sem Eimskip gerði við Samkeppniseftirliti í samráðsmáli fyrirtækjanna tveggja. Landsréttur sneri við niðurstöðu héraðsdóms sem hafði fallist á kröfur Samskipa um að reyna að fá sáttinni hnekkt. 26.9.2024 17:47
Nákvæmasta kortið af Vetrarbrautinni til þessa Fleiri en einn og hálfan milljarð fyrirbæra er að finna á tröllvöxnu korti af Vetrarbrautinni sem hópi stjörnufræðinga tókst að að setja saman. Kortið er það nákvæmasta sinnar tegundar og tók þrettán ár í smíðum. 26.9.2024 12:00
Tvö hundruð milljónir í baráttuna um Bessastaði Frambjóðendurnir tólf sem kepptust um embætti forseta eyddu samtals tæpum 194 milljónum króna í framboð sín. Framboð Katrínar Jakobsdóttur var það langdýrasta en kostnaðurinn við það nam tæpum þrjátíu prósentum af heildarútgjöldum framboðanna. 25.9.2024 16:15
Manngerð hlýnun gerði flóðin í Evrópu tvöfalt líklegri en ella Hnattræn hlýnun af völdum manna tvöfaldaði líkurnar á úrhellinu sem olli mannskæðum flóðum í Mið-Evrópu í síðustu viku. Að minnsta kosti 24 fórust í flóðunum sem eru sögð þau verstu í að minnsta kosti tuttugu ár. 25.9.2024 12:03
Unnu spellvirki á finnska þinghúsinu til að mótmæla móvinnslu Á annan tug umhverfisverndarsinna var handtekinn eftir að spellvirki voru unnin á finnska þinghúsinu í Helsinki í morgun. Fólki skvetti rauðleitum vökva á tröppur og súlur hússins til þess að mótmæla móvinnslu finnsks fyrirtækis í Svíþjóð. 25.9.2024 11:23
Kærasta rafmyntamógúls í fangelsi vegna FTX-svikanna Dómstóll í New York dæmdi Caroline Ellison, stjórnanda hjá rafmyntafyrirtækinu FTX, í tveggja ára fangelsi fyrir sinn þátt í stórfelldum fjársvikum. Hún hlaut vægari dóm fyrir að segja til Sams Bankman-Fried, stofnanda FTX og fyrrverandi kærasta hennar. 25.9.2024 10:11