Dómari greindi ekki frá fasteignasölu til forstjóra lögmannsstofu Bandarískur hæstaréttardómari skráði ekki sölu á fasteign til forstjóra lögmannsstofu með mál fyrir Hæstarétti Bandaríkjanna í hagsmunaskráningu sína. Þetta er í annað skipti á skömmum tíma sem upplýst er um mögulega hagsmunaárekstra sem dómarar við réttinn héldu leyndum. 26.4.2023 15:45
Skrefi nær leyndardómi risasvartholsstróka Skuggi risasvarthols í nágrannavetrarbraut okkar og kröftugur strókur efns sem stafar frá því sjást í fyrsta skipti saman á einni mynd sem alþjóðlegum hópi stjörnufræðinga tókst að ná. Myndin hjálpar vísindamönnum að skilja hvernig svarthol þeyta burtu efni í slíkum strókum. 26.4.2023 15:13
Lentu samkomulagi um losun frá flugsamgöngum Ráðherraráð Evrópusambandsins og Evrópuþingið náðu samkomulagi um nýjar reglur til þess að takmarka losun gróðurhúsalofttegunda frá flugferðum í nótt. Íslensk stjórnvöld krefjast undanþága frá reglunum. 26.4.2023 11:38
Kveðja Hannes Hólmstein með alþjóðlegri ráðstefnu Þrír fyrrverandi forsætisráðherrar Íslands og barnabarn síðasta keisara Austurríkis eru á meðal frummælenda á alþjóðlegri ráðstefnu í tilefni starfsloka Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar, prófessors í stjórnmálaheimspeki, í næsta mánuði. 26.4.2023 10:35
Þáði tugi milljóna frá Sádum eftir morðið á Khashoggi Fyrrverandi forstjóri Þjóðaröryggisstofnunar Bandaríkjanna gerði samning um ráðgjafarstörf upp á hátt í hundrað milljónir króna við stjórnvöld í Sádi-Arabíu eftir morðið á blaðamanninum Jamal Khashoggi árið 2018. Hann hefur þegið hunduð milljóna króna frá erlendum ríkjum frá því að hann lét af embætti. 26.4.2023 09:53
Telja hesta og ruslarottur fá betri snjómokstur Íbúar við Álfabrekku í efri byggðum Fáskrúðsfjarðar eru ósáttir við að vera á meðal alsíðustu íbúa til að fá götu sína rudda eftir snjókomu. Þeir telja „hesta og ruslarottur“ hærra skrifaðar þar sem vegur að gámavöllum og hesthúsum sé yfirleitt ruddur á undan þeirra götu. 26.4.2023 08:52
Biden sækist formlega eftir endurkjöri Joe Biden Bandaríkjaforseti tilkynnti í morgun að hann sækist formlega eftir endurkjöri í kosningum á næsta ári. Hann biður kjósendur um að gefa honum meiri tíma til að ljúka verkefninu sem hann hóf þegar hann tók við embætti fyrir rúmum tveimur árum. 25.4.2023 10:29
Stjórnarandstöðuleiðtogi flýr Venesúela í skugga hótana Juan Guaidó, einn helsti leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Venesúela, er væntanlegur til Bandaríkjanna eftir að hann honum var vísað frá Kólumbíu. Hann segist hafa yfirgefið heimalandið vegna hótana ríkisstjórnar Nicolás Maduro forseta. 25.4.2023 09:48
Velja kviðdómendur í nauðgunarmáli Trump Byrjað verður að velja kviðdómendur í máli E. Jean Carroll, fyrrverandi pistlahöfundar, gegn Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, í New York í dag. Carroll sakar Trump um að hafa nauðgað sér í stórverslun í borginni á 10. áratugnum. 25.4.2023 08:56
Hrökklast frá vegna ofsafenginna viðbragða við trans áhrifavaldi Yfirmaður markaðsmála fyrir bandarísku bjórtegundina Bud light, er farinn í leyfi eftir að samstarf fyrirtækisins við trans áhrifavald vakti ofsafengin viðbrögð íhaldsmanna. Reiðir hægrimenn ákváðu að sniðganga vörur framleiðandans. 23.4.2023 15:02