Tugir þúsunda bóluefnaskammta væntanlegir Von er á tæplega 65.300 bóluefnaskömmtum frá fjórum framleiðendum til landsins í þessum mánuði. Mánaðarleg afhending á bóluefni eykst um 160% í þessum mánuði borið saman við fyrstu þrjá mánuði ársins. 6.4.2021 17:25
Klúður í verksmiðju tefur bóluefni Johnson & Johnson Um fimmtán milljónir skammta af bóluefni Johnson & Johnson gegn kórónuveirunni eru sagðir hafa eyðilagst þegar starfsmenn í verksmiðju í Baltimore rugluðu saman innihaldsefnum fyrir nokkrum vikum. Klúðrið er sagt tefja afhendingu á bóluefninu. 31.3.2021 23:50
Rauðglóandi hraunið í rökkrinu Færri komust að en vildu til að berja eldgosið í Geldingadölum á Reykjanesi augum í gærkvöldi. Þeir sem þangað komu fengu að njóta náttúruaflanna og fylgjast með rauðglóandi hrauninu vella upp úr eldkeilunni sem hefur verið að myndast. 31.3.2021 23:37
Heimsmeistarinn loftar út fyrir kónginn Magnus Carlsen, norski heimsmeistarinn í skák, hrókeraði nýlega í ástarlífi sínu þegar hann sleit samvistum við Elisabetu Lorentzen Djønne, kærustu sína til tveggja ára. 31.3.2021 22:31
Mygla fannst einnig í Korpuskóla Rakaskemmdir og mygla fannst við úttekt verkfræðistofu á Korpuskóla þangað sem börn úr Fossvogsskóla voru flutt vegna mygluvanda. Unnið verður að viðgerðum á húsnæði Korpuskóla yfir páskana. 31.3.2021 21:57
Leita að þeim sem kveiktu eld nærri Reykholti Töluverður viðbúnaður var hjá viðbragðsaðilum á Suðurlandi í kvöld þegar tilkynning um mögulegan eld í sumarhúsi skammt frá Reykholti í Árnessýslu í kvöld. Svo virðist sem að um brennu hafi verið að ræða og er þeirra sem kveiktu hana nú leitað. Þeir gætu þurft að greiða fyrir útkall slökkviliðs og lögreglu. 31.3.2021 20:37
Frakkar herða aftur á aðgerðum gegn veirunni Skólar í Frakklandi verða lokaðir næstu þrjár vikurnar í það minnsta samkvæmt nýjum og hertum sóttvarnaaðgerðum sem Emmanuel Macron forseti kynnti í dag. Varaði hann við því að yfirvöld gætu misst tökin á kórónuveirufaraldrinum yrði ekki gripið til aðgerða strax. 31.3.2021 19:48
Ræða grímuskyldu við gosstöðvarnar Almannavarnir skoða nú hvort tekin verði upp grímuskylda við gosstöðvarnar í Geldingadölum. Tugir þúsunda manna hafa lagt leið sína að gosinu undanfarna viku en engin grunur hefur komið upp um að kórónuveira hafi smitast á milli fólks þar enn sem komið er. 31.3.2021 18:43
Líkir árásum Samherja á Helga Seljan við ofbeldi Rakel Þorbergsdóttir, fréttastjóri Ríkisútvarpsins (RÚV), líkir persónulegum árásum útgerðarrisans Samherja á Helga Seljan, fréttamann RÚV, við ofbeldi sem ekki verði við unað. Ekki sé hægt að slíta ummæli Helga á samfélagsmiðlum sem siðanefnd taldi óviðeigandi úr samhengi við aðför fyrirtækisins að honum. 31.3.2021 18:11
Navalní í hungurverkfall í fangelsinu Alexei Navalní, einn helsti stjórnarandstæðingur Rússlands, hóf hungurverkfall til að þrýsta á fangelsisyfirvöld að sjá honum fyrir læknisaðstoð. Hann er sagður þjást af bráðum verkjum í baki og fótleggjum. 31.3.2021 17:43
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent