Foreldrar skátadrengja ósáttir eftir ræðu Trump Skátahreyfingin í Bandaríkjunum liggur undir ámæli fyrir að leyfa Donald Trump forseta að messa yfir ungum skátum um stjórnmál og andstæðinga sína. Forsetinn ýjaði meðal annars að svæsinni sögu um annan fasteignakóng. 25.7.2017 12:28
Alþjóðleg handtökuskipun á hendur keðjusagarmanninum Lögreglumenn í Sviss og Þýskalandi leita enn karlmanns á sextugsaldri sem réðst á fólk á skrifstofu tryggingafélags með keðjusög í Sviss í gær. Alþjóðleg handtökuskipun hefur verið gefin út á hendur honum. 25.7.2017 11:01
Paint verður áfram til staðar Microsoft er hætt við að henda MS Paint eftir að mikil sorg braust út á samfélagsmiðlum. Forritið verður áfram aðgengilegt ókeypis í vefverslun Windows þó að það verði ekki hluti af nýjum uppfærslum á Windows 10-stýrikerfinu. 25.7.2017 10:24
Trump sagður íhuga að sparka dómsmálaráðherranum Bandaríkjaforseti og bandamenn hans eru sagðir velta fyrir sér eftirmönnum Jeff Sessions, dómsmálaráðherra. Verulega hefur kólnað á milli þeirra tveggja vegna rannsóknar dómsmálaráðuneytisins á meintum tengslum framboðs Trump við Rússa. 25.7.2017 09:31
McCain dreginn af sjúkrabeði til að kjósa um Obamacare Þingmenn repúblikana segjast ekki vita hvaða útgáfu af sjúkratryggingafrumvarpi flokksins þeir eigi að greiða atkvæði um í dag. John McCain, sem greindist með heilaæxli í síðustu viku, mætir til Washington-borgar sérstaklega til að greiða atkvæði. Erfiðlega hefur gengið fyrir flokksforystuna um að ná meirihluta um hvað eigi að koma í staðinn fyrir Obamacare. 25.7.2017 08:29
Pokémon Go-spilarar brjálaðir vegna sambandsleysis Farsímakerfið og vefþjónar Pokémon Go hrundu á fyrstu hátíðinni sem tileinkuð er leiknum um helgina. Reiðir spilarar bauluðu á framkvæmdastjóra hugbúnaðarfyrirtækisins sem bjó til leikinn. 24.7.2017 15:35
Hneyksli vegna ríkisleyndarmála skekur sænsku ríkisstjórnina Ráðherrar í sænsku ríkisstjórninni eru sagðir valtir í sessi vegna klúðurs þegar rekstur tölvukerfis samgöngustofnunarinnar var boðinn út. Viðkvæmar persónugreinanlegar upplýsingar voru aðgengilegar starfsmönnum fyrirtækisins sem fékk samninginn þó að þeir hefðu ekki öryggisheimild til þess. 24.7.2017 14:53
Kushner sver af sér samráð við Rússa Tengdasonur Donalds Trump segist ekki hafa haft neitt samráð við rússneska embættismenn í aðdraganda forsetakosninganna í fyrra og segist ekki kunnugt um að neinn annar sem starfaði við framboðið hafi gert það. Hann ber vitni um tilraunir Rússa til að hafa áhrif á kosningarnar fyrir luktum dyrum þingnefnda í dag og á morgun. 24.7.2017 13:02
Árásarmaður gengur laus í svissneskum bæ Fimm eru særðir, þar af tvær alvarlega, eftir að óþekktur maður er sagður hafa gengið berserksgang með keðjusög í svissneska bænum Schaffhausen, nærri landamærunum að Þýskalandi. Lögreglan leitar að árásarmanninum. 24.7.2017 11:06
Rannsaka dauða ungs blökkumanns skömmu eftir handtöku Lögreglan í London segir að ungur maður sem lést eftir að hann var handtekinn um helgina hafi stungið aðskotahlut upp í sig og veikst í kjölfarið. Baráttufólk gegn kynþáttahatri hefur lýst áhyggjum og reiði vegna dauða mannsins. 24.7.2017 10:48