Valdi vinningstölurnar við leiði náins ástvinar Kona á sextugsaldri var ein með allar tölurnar réttar í lottói á laugardaginn og fékk óskiptan fimmfaldan lottópott upp á rúmar 78 milljónir króna. Konan valdi tölurnar í kirkjugarðinum en hún var þar að vitja náins ástvinar sem féll frá nýlega. Í tilkynningu frá Íslenskri getspá segir að vinningurinn sé einn sá stærsti síðustu vikur. 30.8.2024 10:45
Gosmóða og gasmengun yfir höfuðborginni fram eftir degi Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur varar við að gosmóðu og gasmengun sem nú liggur nú yfir höfuðborginni og berst frá eldgosinu við Sundhnúksgígaröð. Vegna ríkjandi sunnanáttar berst gosmengun til norðurs og mun það ástand vara fram eftir degi samkvæmt Veðurstofu Íslands. Með aukinni úrkomu og vindi ættu loftgæði að batna eftir því sem líður á daginn. 30.8.2024 10:00
Segir oft alltof marga uppi á jökli og inni í íshellum Borgar Antonsson segir slysið á Breiðamerkurjökli ekki þurft að hafa átt sér stað. Borgar rekur ferðaþjónustufyrirtækið Ice Cave in Iceland sem fer í hellaferðir á veturna. Hann segir mikla þörf á nýju regluverki. Það séu of margir upp á jökli og í hellum í einu sem skerði öryggi og upplifun gesta. 30.8.2024 09:26
Vilja koma böndum á AirBnb leigu á Íslandi Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar segir stefna í þungan þingvetur. Hún á von á því að stærstu málin framundan á þingi verði húsnæðis- og efnahagsmál. Hún boðar nýtt útspil Samfylkingarinnar þar sem, meðal annars, verður kynnt nýtt inngrip á AirBnb skammtímaleigu á Íslandi. Kristrún ræddi komandi þingvetur í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag ásamt Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Miðflokksins. 29.8.2024 22:12
Telja að bátnum hafi verið siglt of hratt þegar tveir hryggbrotnuðu Rannsóknarnefnd samgönguslysa (RNSA) telur að RIB bátnum Kötlu hafa verið siglt á of miklum hraða yfir kjölfar annars skips þegar tvær manneskjur hryggbrotnuðu í siglingu í Reykjavíkurhöfn í júní í fyrra. 29.8.2024 21:35
Þörf á fleiri lögreglumönnum á djammið í Reykjavík Agnes Hlynsdóttir í Samtökum reykvískra skemmtistaðaeigenda og rekstrarstjóri skemmtistaðarins Lemmy segist verða vör við meira ofbeldi og vopnaburð á djamminu. Þá sé einnig töluvert um ungt fólk sem sé að reyna að smygla sér ölvað inn á skemmtistaði. Hún segir þurfa átak og meiri viðveru lögreglu í miðbænum. 29.8.2024 21:02
Sérsveit kölluð til aðstoðar í Safamýri Liðsmenn sérsveitar ríkislögreglustjóra voru kallaðir til aðstoðar lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í Safamýri nú í kvöld. Sjónarvottur segir að þar hafi maður ráðist að öðrum með hníf eftir orðaskipti. 29.8.2024 19:50
Meiri skjálftavirkni en í fyrri gosum Síðustu sólarhringa hefur virknin í eldgosinu haldist nokkuð stöðug. Enn eru tveir meginstrókar virkir og eru enn nokkuð kröftugir samkvæmt tilkynningu Veðurstofunnar. Hraun flæðir að mestu til norðvesturs en einnig til austurs. Meginstraumurinn er til norðvesturs en framrásin er mjög hæg. 29.8.2024 17:58
Starfsfólk í skólum muni leggja þunga áherslu á að stöðva vopnaburð barna Helgi Grímsson, sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs í Reykjavík, hvetur foreldra til að ræða við börn sín um vopnaburð og hversu hættulegt það er að ganga með hníf á sér. Hann segir að næstu daga muni starfsfólk í skóla- og frístundastarfi leggja þunga áherslu á að stöðva hnífaburð barna. 29.8.2024 16:33
Einn slasaður í alvarlegu vinnuslysi í Urriðaholti Einn var fluttur á slysadeild síðdegis í dag vegna alvarlegs vinnuslyss í Urriðaholti í Garðabæ. Í tilkynningu frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu kemur fram að tilkynning um slysið hafi borist lögreglu um klukkan fjögur. Viðbragðsaðilar hafi farið beint á vettvang. 29.8.2024 16:03