Finnskur stórleikari skilur ekkert í íslenskum stjórnvöldum Jasper Pääkkönen, finnskur stórleikari, er staddur á Íslandi að vinna að heimildarmynd um Norður-Atlantshafslaxinn og þær hættur sem að tegundinni steðja. Jasper segist óttast að tegundin deyi út á næstu árum og gagnrýnir íslensk stjórnvöld fyrir að hafa leyft fiskeldi að festa rætur á Íslandi, nánast eftirlitslausu fyrstu árin. 9.7.2022 10:00
„Það er pólitísk nálykt af þessu“ Skipulagsstofnun hefur samþykkt aðalskipulagsbreytingu sveitarfélagsins Dalabyggðar vegna tveggja vindorkuvera, annars vegar í landi Hróðnýjarstaða og hins vegar í Sólheimum. Innviðaráðherra hafði áður synjað sveitarfélögunum um staðfestingu á sambærilegum breytingum vegna þess að þær samræmdust ekki lögum um rammaáætlun en með breyttri skilgreiningu á svæðinu virðist það vandamál hafa verið leyst. Verkefnastjóri hjá Landvernd er afar ósáttur yfir málinu og segir pólitíska nálykt af því. 8.7.2022 07:01
Hægt að hoppa um allt höfuðborgarsvæðið í fyrsta skipti Fyrirtækið Hopp sem leigir út rafhlaupahjól hefur nú fært út kvíar sínar og opnað fyrir leigu í Árbæ, Grafarvogi og Grafarholti. Þá stækkar fyrirtækið þjónustusvæði sitt annars staðar á höfuðborgarsvæðinu og því er hægt að keyra um á rafskútu frá fyrirtækinu á öllu höfuðborgarsvæðinu í fyrsta skipti. 7.7.2022 16:44
Brotin tjöld og ekkert skyggni vegna sandfoks Landverðir á Fjallabaki ráðleggja fólki alfarið frá því að ferðast inn á svæðið í dag. Þar sitja hundruð ferðamanna og bíða af sér veðrið í skálum á svæðinu en eins og er er afar hvasst þar og lítið sem ekkert skyggni vegna sandfoks. 7.7.2022 14:59
Föst í lægð út mánuðinn Veðrið hefur ekki beint leikið við landsmenn þetta sumarið og virðist reyndar alls ekki ætla að gera það ef marka má langtímaspár. Þær gera ráð fyrir reglulegum lægðum og úrkomu út júlímánuð. 7.7.2022 13:32
Samkeppniseftirlitið hnýtir í Hörpu Samkeppniseftirlitið hefur beint tilmælum til Hörpu, tónlistar- og ráðstefnuhúss, um að jafna stöðu fyrirtækja og tónleikahaldara sem eiga viðskipti við húsið. Helstu tilmælin felast í því að Harpa ætti að leyfa tónleikahöldurum að koma með eiginn búnað, hljóðkerfi og fleira, til að nota við tónleikahald í húsinu. 7.7.2022 13:03
Öll hvalveiðiskip verði að taka með sér dýravelferðarfulltrúa á veiðar Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hefur lagt fram drög að breytingu á reglugerð um hvalveiðar þar sem lagt er til að framvegis verði ávallt að vera dýravelferðarfulltrúi um borð á hvalveiðitúrum til að ganga úr skugga um að hvalir séu aflífaðir á sem skjótastan og sársaukaminnstan hátt. 7.7.2022 11:40
Fellihýsi og trampólín fjúka út á götu Gular veðurviðvaranir eru í gildi víða á landinu í dag vegna hvassviðris. Engin veðurviðvörun er í gildi á höfuðborgarsvæðinu en þar hefur lögregla þó fengið tilkynningar um nokkuð fok lausamuna. Fólk er hvatt til að ganga vel frá lausamunum utandyra í dag og tryggja vel að trampólín og hjólhýsi séu vel fest eða í skjóli. 7.7.2022 10:38
Óttast að græðgi hægi á lækkun eldsneytisverðs Formaður FÍB óttast að græðgi hægi á lækkun eldsneytisverðs hér á landi. Heimsmarkaðsverð á olíu lækkaði um 9,5 prósent í gær og aftur um rúm þrjú prósent í dag. Innlendar bensínstöðvar hafa flestar lækkað lítraverð sitt um tvær og hálfa krónu í dag. 6.7.2022 20:38
Til skoðunar hvort auglýsing Áslaugar sé lögmæt Menningarráðherra skoðar nú hvort starfsauglýsing annars ráðuneytis þar sem ekki er krafist íslenskukunnáttu stangist á við lög. Forsætisráðherra hefur miklar áhyggjur af stöðu tungumálsins og gagnrýnir þá þróun að innlend fyrirtæki velji sér ensk heiti í ríkari mæli. 6.7.2022 19:31