Dagskráin í dag: Valsmenn í Frakklandi Valur mætir PAUC í Evrópudeildinni í handbolta í kvöld. Um er að ræða þriðja leik liðsins í keppninni en til þessa hafa Valsmenn unnið tvo leiki og tapað aðeins einum. 29.11.2022 07:01
Einn úr starfsliði Gana smellti af sjálfu með súrum Son eftir sigur Gana á Suður-Kóreu Gana vann frábæran 3-2 sigur á Suður-Kóreu í H-riðli heimsmeistarakeppninnar í fótbolta. Eftir leik ákvað einn úr starfsliði Gana að smella af sjálfu með tárvotum Son Heung-min, leikmanni Tottenham Hotspur og fyrirliða Suður-Kóreu. 28.11.2022 23:30
Lögmál leiksins: „Þetta eru fjórir af fimm eða sex bestu leikmönnum deildarinnar“ Hinn klassíski liður „Nei eða Já“ er fastur liður hjá strákunum í Lögmál leiksins. Þar er farið yfir það helst sem hefur gerst í NBA deildinni á undanförnum dögum. Farið var yfir hvaða lið myndi vinna ef Bandaríkin myndu mæta heiminum í Ryder Cup körfuboltans. Þá var velt fyrir sér hvort Sacramento Kings myndi enda fyrir ofan Los Angeles Lakers. 28.11.2022 23:01
Agnelli, Nedvěd og öll stjórn Juventus segir af sér Þau stórtíðindi bárust í kvöld að öll stjórn ítalska knattspyrnuliðsins Juventus hafi sagt af sér. Þar á meðal er forsetinn Andrea Agnelli og varaforsetinn Pavel Nedvěd en sá síðarnefndi lék á sínum tíma með liðinu. 28.11.2022 22:15
Bruno Fernandes skaut Portúgal í sextán liða úrslit Portúgal er komið í 16-liða úrslit HM í fótbolta eftir 2-0 sigur á Úrúgvæ. Bruno Fernandes með bæði mörkin þó svo að Cristiano Ronaldo hafi reynt að sannfæra alla og ömmu þeirra um að hann hefði skorað fyrra mark leiksins. 28.11.2022 21:00
Nkunku fer til Chelsea næsta sumar Það virðist ekkert geta komið í veg fyrir að franski sóknarmaðurinn Christopher Nkunku fari til enska fótboltafélagsins Chelsea sumarið 2023. Nkunku á að baki 8 A-landsleiki fyrir Frakkland og var einn þeirra sem átti að fara til Katar þar sem HM fer nú fram. Hann þurfti hins vegar að draga sig úr hópnum vegna meiðsla. 28.11.2022 20:30
Dregið í þriðju umferð FA bikarsins: Manchester City mætir Chelsea Dregið var í þriðju umferð FA bikarsins á Englandi nú rétt í þessu. Stórleikur umferðarinnar er viðureign Englandsmeistara Manchester City og Chelsea. 28.11.2022 20:01
Ingunn úr Vesturbænum í Laugardalinn Ingunn Haraldsdóttir, fyrrverandi fyrirliði KR, er gengin í raðir Þróttar og mun leika með liðinu í Bestu deild kvenna á næstu leiktíð. Ingunn var samningslaus og því þarf Þróttur ekki að greiða fyrir miðvörðinn öfluga. 28.11.2022 19:30
Casemiro skaut Brasilíu í sextán liða úrslit Brasilía er komin í 16-liða úrslit HM í fótbolta eftir 1-0 sigur á Sviss. Miðjumaðurinn Casemiro skaut Brasilíu áfram með marki þegar lítið var eftir af venjulegum leiktíma. 28.11.2022 17:55
Lögmál leiksins: „Er því miður bara ekki gott lið“ Lögmál leiksins er á sínum stað á Stöð 2 Sport 2 klukkan 20.00 í kvöld. Þar er að venju farið yfir það helsta sem hefur drifið á daga NBA deildarinnar í körfubolta. Í þætti kvöldsins verður staða mála hjá Luka Dončić og félögum í Dallas Mavericks skoðuð. 28.11.2022 17:31