Leicester neitar að selja sína bestu menn þrátt fyrir gylliboð Chelsea og Newcastle Tveir af betri leikmönnum enska úrvalsdeildarliðsins Leicester City hafa verið orðaðir við Chelsea annars vegar og Newcastle United hins vegar. Leicester neitar hins vegar að selja þó félögin séu tilbúin að greiða morðfjár fyrir leikmennina. 19.8.2022 07:32
Arsenal fær sænska landsliðskonu frá Juventus Lina Hurtig verður ekki samherji Söru Bjarkar Gunnarsdóttur hjá Juventus í vetur þar sem hún hefur ákveðið að söðla um og semja við Arsenal. 18.8.2022 15:30
Nýr liðsmaður Seinni bylgjunnar lofar hressleika í bland við skynsemi Þorgrímur Smári Ólafsson mun bregða sér í nýtt hlutverk í vetur. Í stað þess að djöflast á parketinu mun hann sitja í setti upp á Suðurlandsbraut, eða á vellinum, og fara með þjóðinni yfir það sem hefur gerst í Olís deild karla. 18.8.2022 15:01
Elísabet og Kristianstad úr leik í Meistaradeildinni Kristianstad, lið Elísabetar Gunnarsdóttur, er úr leik í forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Liðið mátti þola 3-1 tap gegn Ajax er liðin mættust í Hjörring í Danmörku. Amanda Andradóttir og Emelía Óskarsdóttir byrjuðu leikinn á bekknum hjá Kristianstad. 18.8.2022 14:15
„Sem betur fer erum við með karakter í liðinu“ „Það er búið að vera bras á liðinu en sem betur fer erum við með karakter í liðinu og það hafa aðrar stigið upp sem áttu ekki endilega að fá hlutverk í liðinu,“ sagði Alexander Aron Davorsson, þjálfari Aftureldingar í Bestu deild kvenna í fótbolta, í ítarlegu viðtali við Bestu mörkin. 18.8.2022 12:30
Ryan Giggs brotnaði niður og grét er hann bar vitni Áttundi dagur réttarhaldanna yfir Ryan Giggs, fyrrverandi leikmanni Manchester United og landsliðsþjálfara Wales, fór fram í gær. Hann er ásakaður um að hafa beitt þáverandi kærustu sína, Kate Greville, andlegu og líkamlegu ofbeldi þau þrjú ár sem þau voru saman. Þá er hann sakaður um að hafa gefið Emmu Greville, systur Kate, olnbogaskot. 18.8.2022 12:01
LeBron skrifar undir sögulegan samning hjá Lakers Körfuboltamaðurinn LeBron James hefur skrifað undir nýjan samning við Los Angeles Lakers. Samningurinn gildir til 2024 en getur verið framlengdur um auka ár eftir það, þá verður LeBron kominn á fimmtugsaldur. Samningurinn gerir það líka að verkum að LeBron verður launahæsti leikmaður í sögu NBA. 18.8.2022 10:31
„Í ár snýst þetta ekki um að setja met heldur að styrkja Ljósið“ „Það byrjaði nú eiginlega ekki sem markmið að setja heimsmet en ég var kominn í smá yfirþyngd og ákveð að fara hlaupa meira og notaði Reykjavíkurmaraþon sem markmið. Fyrst og fremst var ég bara að fara klára,“ segir Kim de Roy sem setti heimsmet í Reykjavíkurmaraþoninu árið 2014. 18.8.2022 09:00
Atlético neitaði rúmlega átján milljarða tilboði Man United í Félix Atlético Madríd afþakkaði pent tilboð Manchester United í Portúgalann João Félix. Tilboðið hljóðaði upp á 130 milljónir evra eða rúmlega 18 milljarða íslenskra króna. Atlético keypti leikmanninn af Benfica árið 2019 á 113 milljónir evra. 18.8.2022 08:01
Bestu mörkin um leikjaplan KR: „Þetta hjálpar ekki í þessari erfiðu baráttu sem framundan er“ „Við ætlum að kíkja aðeins á leikjaplan KR þar sem það hefur vakið athygli,“ sagði Helena Ólafsdóttir, þáttastýra Bestu markanna, en KR er á leið í aðra mánaðarlanga pásu í Bestu deild kvenna. 17.8.2022 17:01