Nóg um að vera í Lengjudeildinni: KV vann á Ísafirði Fjórir leikir fóru fram í Lengjudeild karla í fótbolta í kvöld. KV vann magnaðan 4-2 sigur á Vestra á Ísafirði, Kórdrengir lögðu Gróttu 1-0 en hinum tveimur leikjunum lauk með 2-2 jafntefli. 1.7.2022 22:16
Frakkar hita upp fyrir EM með stórsigri Frakkland mætti Víetnam í síðasta leik liðsins fyrir EM kvenna sem hefst í Englandi þann 6. júlí. Lauk leiknum með 7-0 sigri Frakklands. 1.7.2022 21:30
England Evrópumeistari U-19 ára landsliða Enska U-19 ára landslið karla í knattspyrnu varð í kvöld Evrópumeistari eftir 3-1 sigur á Ísrael í framlengdum leik. Stigu tveir leikmenn Aston Villa upp þegar mest á reyndi. 1.7.2022 20:45
Ensk stórlið mokgræða á undirbúningstímabilinu: Gætu fengið 485 milljónir fyrir leik Stórlið ensku úrvalsdeildarinnar eru loks á leið í það sem mætti kalla eðlilegt undirbúningstímabil eftir að kórónufaraldurinn lék heiminn grátt. Fagna gjaldkerar liðanna eflaust hvað mest ef marka má tölur sem birtust á The Athletic. 1.7.2022 20:00
Malmö tapaði óvænt gegn Sundsvall: Mæta Víkingum næst Sænska meistaraliðið Malmö tapaði nokkuð óvænt gegn Sundsvall í sænsku úrvalsdeildinni í dag. Liðið mætir Íslands- og bikarmeisturum Víkings í undankeppni Meistaradeildar Evrópu í næstu viku. 1.7.2022 19:10
Lenglet á leið til Tottenham Franski miðvörðurinn Clément Lenglet, leikmaður Barcelona, virðist vera á leið til Tottenham Hotspur. Félögin eiga eftir að semja um kaupverðið en leikmaðurinn hefur samið um kaup og kjör við Lundúnaliðið. 1.7.2022 18:00
Stutt gaman hjá Hans og Hosine Þeir Hans Kamta Mpongo og Hosine Bility hafa yfirgefið lið ÍBV og Fram í Bestu deild karla í fótbolta. Munu þeir ekki leika meira með liðunum á leiktíðinni. 1.7.2022 17:31
Ítalía og Spánn skildu jöfn í síðasta leik fyrir EM Ítalía og Spánn gerður 1-1 jafntefli er liðin mættust í vináttulandsleik á Teofilo Patini-vellinum á Ítalíu í dag. Um var að ræða síðasta leik liðanna áður en Evrópumót kvenna í knattspyrnu hefst þann 6. júlí næstkomandi. 1.7.2022 17:10
Fyrrverandi samherji Dagnýjar og Berglindar braut blað í sögunni Carson Pickett skráði sig í sögubækurnar er hún spilaði í 2-0 sigri bandaríska kvennalandsliðsins í fótbolta á Kólumbíu. 1.7.2022 07:01
Dagskráin í dag: Stórleikur á Meistaravöllum og nóg af golfi Það er sannkallaður stórleikur í Bestu deild karla á dagskrá Stöðvar 2 Sport í dag. Þá er nóg um að vera í heimi golfsins. 1.7.2022 06:01