Telja Ingvar Jóns, Óskar Örn, Finn Tómas, Steven Lennon og fleiri hafa ollið mestum vonbrigðum Farið var yfir víðan völl líkt og vanalega í útvarpsþættinum Fótbolti.net sem er alla laugardaga á útvarpsstöðinni X977. Í þætti helgarinnar voru meðal annars valdir þeir leikmenn sem hafa ollið mestum vonbrigðum í Bestu deild karla í fótbolta. 26.6.2022 14:31
Segir þjálfarateymi Real ætlast til að leikmenn spili þó þeir séu meiddir Sænski framherjinn Kosovare Asllani segir umhverfi kvennaliðs Real Madríd óheilbrigt og hættulegt. Þjálfarateymið hlusti ekki á sjúkraþjálfara né lækna félagsins og ætlist til að leikmenn spili þó meiddir séu. 26.6.2022 13:46
Forseti UEFA nennir ekki að hlusta á vælið í Guardiola og Klopp lengur Aleksander Čeferin, forseti Knattspyrnusambands Evrópu, hefur fengið sig fullsaddan af kvarti og kveini Pep Guardiola, þjálfara Englandsmeistara Manchester City, og Jürgen Klopp, þjálfara Liverpool. 26.6.2022 13:00
Formaður knattspyrnudeildar Fram eltir ástina til Bandaríkjanna Breytingar hafa orðið á stjórn knattspyrnudeildar Fram þó svo að tímabilið sé í fullum gangi. Sigurður Hrannar Björnsson mun ekki sinna starfi formanns áfram þar sem hann er á leið til Bandaríkjanna. 26.6.2022 12:31
„Ég fór hratt í djúpu laugina“ Goðsögnin Ólafur Stefánsson fór aftur út í þjálfun í vetur er hann gerðist aðstoðarþjálfari hjá þýska handknattleiksfélaginu Erlangen. Hann er að finna sig vel í nýja starfinu og verður áfram í Þýskalandi en hann samdi upprunalega við liðið í febrúar fyrr á þessu ári. 26.6.2022 12:00
Katrín og Sigurður Íslandsmeistarar í Ólympískri þríþraut Íslandsmeistaramótið í Ólympískri þríþraut fór fram á föstudag við góðar aðstæður á Laugarvatni. Báru þau Katrín Pálsdóttir úr Sundfélagi Hafnafjarðar og Sigurður Örn Ragnarsson sigur úr bítum. 26.6.2022 11:31
Fjórtán dagar í EM: „Ég á sjö frabær systkini“ Vísir telur niður í Evrópumót kvenna í fótbolta sem fram fer í Englandi í júlí og kynnir leikmenn íslenska landsliðsins. Reynsluboltinn og harðhausinn Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir er næst í röðinni. 26.6.2022 11:00
Þorleifur á skotskónum og valinn maður leiksins Tveir Íslendingar léku í MLS-deildinni í fótbolta í nótt. Þorleifur Úlfarsson skoraði fyrra mark Houston Dynamo í 2-0 sigri og Róbert Orri Þorkelsson kom af bekknum í 2-1 sigri CF Montréal. Þá skoraði Óttar Magnús Karlsson í sigri Oakland Roots. 26.6.2022 10:00
Fimmtán dagar í EM: Er að læra taugafræði í Harvard og elskar mjólkurgraut með súru slátri og rúsínum Vísir telur niður í Evrópumót kvenna í fótbolta sem fram fer í Englandi í júlí og kynnir leikmenn íslenska landsliðsins. Ungstirnið Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir, leikmaður Breiðabliks og nemandi við Harvard háskóla, er næst í röðinni. 25.6.2022 11:01
Engin gert fleiri þrennur í WNBA-deildinni Hin 36 ára gamla Candace Parker skráði sig á spjöld sögunnar er lið hennar Chicago Sky rúllaði yfir Los Angeles Sparks, 82-59. Parker gerði þrefalda tvennu og hefur þar með gert flestar þrennur í sögu deildarinnar. 24.6.2022 19:47