KR með gríðarlegt tak á fornu fjendunum frá Akranesi Besta deild karla í fótbolta hefst að nýju í kvöld eftir dágóða pásum sökum leikja íslenska A- og U-21 árs landsliðsins. Íslands- og bikarmeistarar Víkings heimsækja Vestmannaeyjar á meðan KR tekur á móti ÍA í Vesturbænum. 15.6.2022 13:01
Breiðablik vildi áfrýja leikbanni Omar Sowe: Beiðninni hafnað Breiðablik, topplið Bestu deildar karla í fótbolta, óskaði eftir að áfrýja niðurstöðu aga- og úrskurðarnefndar Knattspyrnusambands Íslands í máli Omar Sowe. Hann var dæmdur í tveggja leikja bann eftir að stuðst var við myndbandsupptöku af atviki sem átti sér stað í leik Leiknis Reykjavíkur og Breiðabliks. 15.6.2022 11:00
Bæjarar fengu einn eftirsóttasta mann Evrópu á gjafaprís Hollenski miðjumaðurinn Ryan Gravenberch er genginn í raðir Þýskalandsmeistara Bayern München. Hann kemur frá Ajax á sannkölluðu gjafaverði. 15.6.2022 10:31
Sögulegt tap Englands Ungverjar komu, sáu og gjörsigruðu er þeir mættu Englandi í Þjóðadeildinni í fótbolta á þriðjudag. Lokatölur 4-0 gestunum í vil og sögulegt tap Englendinga staðreynd. 15.6.2022 09:31
Danmerkurmeistarinn Viktor Gísli: „Staðráðinn í að láta þetta ganga upp“ „Það var ekki verið að haga sér, það voru tekin nokkur pissustopp og rútuferð sem átti að taka tvo og hálfan tíma tók örugglega fjóra og hálfan tíma,“ sagði markvörðurinn Viktor Gísli Hallgrímsson um heimferðina eftir að GOG varð Danmerkurmeistari í handbolta um liðna helgi. 15.6.2022 09:00
Elín Metta fór meidd af velli og EM mögulega í hættu Elín Metta Jensen, framherji Íslandsmeistara Vals og íslenska landsliðsins, meiddist er Valur heimsótti Selfoss í Bestu deild kvenna á þriðjudag. Gestirnir frá Hlíðarenda unnu 1-0 útisigur en Elín Metta þurfti að fara meidd af velli eftir rúmlega klukkustundarleik. 15.6.2022 08:31
Apple kaupir réttinn að Arnóri, Róberti, Þorleifi og félögum í MLS-deildinni fyrir metfé Hugbúnaðarrisinn Apple hefur keypt sýningarréttinn að MLS-deildinni í fótbolta fyrir tvo og hálfan milljarð Bandaríkjadala. Samsvarar það tæplega 332 milljörðum íslenskra króna. Samningurinn gildir til tíu ára. 15.6.2022 08:00
Hlutabréf Man Utd aldrei lægri: Eigendurnir greiða sér samt arð Segja má að Manchester United hafi náð því sem virðist vera botninn með frammistöðu sinni innan vallar sem utan á liðnu tímabili. Það er allavega staðreyndin ef horft er á hvers virði félagsins er fjárhagslega. 15.6.2022 07:02
Hinn íslensk-ættaði Tomasson tekur við Blackburn Hinn 45 ára gamli Jon Dahl Tomasson hefur tekið við þjálfun Blackburn Rovers í ensku B-deildinni. Tomasson gerði Malmö FF í Svíþjóð að meisturum tvö ár í röð áður en hann sagði óvænt upp í desember á síðasta ári. 14.6.2022 15:00
Elvar Örn skotfastastur í Þýskalandi Íslenski landsliðsmaðurinn Elvar Örn Jónsson, leikmaður MT Melsungen, reyndist skotfastasti leikmaður þýsku úrvalsdeildarinnar í handbolta á nýliðnu tímabili. 14.6.2022 14:01