LeBron vill eiga lið í Vegas Það virðist sem LeBron James sé farinn að huga að því hvað hann geri þegar körfuboltaskórnir fara upp í hillu. Hann vill nefnilega eiga lið í NBA-deildinni og það á að vera staðsett í Las Vegas. 10.6.2022 17:00
Gylfi Þór ekki lengur leikmaður Everton Samningur Gylfa Þórs Sigurðssonar við enska knattspyrnufélagið Everton er runninn út. Hann hefur ekki spilað fyrir liðið síðan á þar síðustu leiktíð en leikmaðurinn var handtekinn síðasta sumar vegna meints brots gegn ólögráða stúlku. 10.6.2022 14:15
Stefndu á að þrefalda áhorfið en tókst að fjórfalda það á einu ári Áhorf á úrvalsdeild kvenna í fótbolta á Englandi fjórfaldaðist á tímabilinu sem var að líða. Er deildin gerði nýjan sjónvarpssamning á síðasta ári var stefnt að því að þrefalda áhorf en það virðist ganga framar vonum. 10.6.2022 14:00
Kári heldur áfram að láta landsliðið heyra það: „Hvað næst? Dimmalimm?“ Kári Árnason - fyrrverandi landsliðsmaður í fótbolta, yfirmaður knattspyrnumála hjá Íslands- og bikarmeisturum Víkings og sérfræðingur Viaplay, hefur verið duglegur að láta íslenska A-landsliðið heyra það undanfarið. Á því varð engin breyting er Ísland marði San Marínó. 10.6.2022 13:32
Leggur skóna á hilluna eftir enn ein meiðslin og fer að þjálfa í heimalandinu Taylor Bennett, varnarmaður Aftureldingar í Bestu deild kvenna, hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna vegna þrálátra meiðsla á mjöðm. Þetta kemur fram í tilkynningu félagsins. 10.6.2022 13:01
Chelsea fær Evrópumeistara Kadeisha Buchanan hefur skrifað undir þriggja ára samning við Englandsmeistara Chelsea. Hún kemur frá Frakklands- og Evrópumeisturum Lyon. 10.6.2022 12:30
Vill að Evrópa gefi efnilegum leikmönnum utan álfunnar tækifæri Arsène Wenger er hvað frægastur fyrir að hafa stýrt enska knattspyrnufélaginu Arsenal frá 1996 til 2018. Á þeim tíma gaf hann fjölda efnilegra leikmanna tækifæri og oftar en ekki um að ræða leikmenn sem voru uppaldir utan Evrópu. Hann vill sjá Evrópu gera slíkt hið sama nú. 10.6.2022 12:01
Ómar Ingi og Bjarki Már geta báðir orðið markakóngar á sunnudag Stórskyttan Ómar Ingi Magnússon og hornamaðurinn Bjarki Már Elísson eiga báðir góða möguleika á að verða markakóngar þýsku úrvalsdeildarinnar í handbolta. Ómar Ingi var markakóngur á síðustu leiktíð og gæti þar með skráð sig í einkar fámennan hóp. 10.6.2022 11:30
Salah og Kerr best | Son ekki í liði ársins Leikmannasamtök Englands, PFA, völdu Mohamed Salah, leikmann Liverpool, og Sam Kerr, leikmann Chelsea, sem bestu leikmenn tímabilsins 2021/2022 á Englandi. Manchester City átti bestu ungu leikmennina og þá vakti athygli að Son Heung-Min var ekki í liði ársins. 10.6.2022 10:30
Gríðarlegt ósætti með frammistöðuna: Fáum alltaf alvöru leik með Arnar Þór sem þjálfara Ísland marði San Marínó í vináttulandsleik í fótbolta í gærkvöld. Segja má að Twitter hafi logað á meðan leik stóð og eftir leik en frammistaða íslenska liðsins var ekki upp á marga fiska. 10.6.2022 09:29