Stórfenglegur Butler tryggði Miami oddaleik Jimmy Butler steig heldur betur upp í nótt er Miami Heat tryggði sér oddaleik gegn Boston Celtics í úrslitaleik Austurdeildarinnar í NBA. Lokatölur 111-103 Miami í vil þar sem Butler skoraði 47 stig í leiknum. 28.5.2022 10:00
Matthildur og Alexandra Rán með heimsmeistaratitla í Kasakstan Kraftlyftingastúlkurnar Alexandrea Rán Guðnýjardóttir og Matthildur Óskarsdóttir gerðu góða ferð til Almaty í Kasakstan á HM unglinga í bekkpressu. 28.5.2022 09:30
Meiðslahrjáð hetja Rómverja Hinn 22 ára gamli Nicolò Zaniolo reyndist hetja Roma er liðið vann Feyenoord 1-0 í úrslitaleik Sambandsdeildar Evrópu í fótbolta. Zaniolo hefur þrátt fyrir ungan aldur verið einkar óheppinn með meiðsli og til að mynda tvívegis slitið krossband í hné. 26.5.2022 17:01
Breiðablik ekki byrjað jafn illa í ellefu ár Bikarmeistarar Breiðabliks hafa farið skelfilega af stað í Bestu deild kvenna í fótbolta. Raunar hefur liðið ekki byrjað Íslandsmót jafn illa síðan 2011 ef stigasöfnun eftir sex umferðir er tekin saman. 26.5.2022 16:32
Þrefaldur Evrópumeistari á förum frá Man City Raðsigurvegarinn Lucy Bronze mun yfirgefa Manchester City. Ekki er ljóst hvar þessi þrítugi hægri bakvörður spilar næst. 26.5.2022 14:31
Borche tekur við Fjölni Fjölnir hefur samið við Borche Ilievski um að taka við þjálfun meistaraflokks karla ásamt öðrum flokkum félagsins til næst þriggja ára. 26.5.2022 14:00
Salah mun ekki yfirgefa Liverpool í sumar Mohamed Salah, stórstjarna Liverpool, hefur staðfest að hann muni ekki yfirgefa félagið í sumar. Samningur hans rennur út sumarið 2023. Sömu sögu er að segja af Sadio Mané. 26.5.2022 13:31
Forsætisráðherra Bretlands studdi yfirtöku Sádanna á Newcastle Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, studdi að ríkisrekinn fjármögnunarsjóð frá Sádi-Arabíu myndi festa kaup á enska fótboltafélaginu Newcastle United. Boris hafði áður sagt að ríkistjórn Bretlands hefði ekki komið að kaupunum á einn eða neinn hátt. 26.5.2022 11:30
Kaepernick æfir með Raiders | Sex ár síðan hann var útskúfaður Leikstjórnandinn Colin Kaepernick mun æfa með NFL-liði Las Vegas Raiders í vikunni. Komin eru sex ár síðan Kaepernick var útskúfaður úr deildinni fyrir að krjúpa þegar þjóðsöngurinn var sunginn. 26.5.2022 11:01
Forseti UEFA ver reglur um fjárhagslega háttvísi í kjölfar ákvörðunar Mbappé Aleksander Ceferin, forseti knattspyrnusambands Evrópu, hefur varið FFP-reglur sambandsins (reglur um fjárhagslega háttvísi) eftir mikla gagnrýni á þær í kjölfars nýs samnings franska sóknarmannsins Kylian Mbappé við París Saint-Germain. 26.5.2022 09:30