Leipzig bikarmeistari eftir sigur í vítaspyrnukeppni RB Leipzig varð í kvöld þýskur bikarmeistari í fótbolta eftir sigur á Freiburg. Það þurfti vítaspyrnukeppni til að skera úr um sigurvegara eftir að staðan var jöfn 1-1 að loknum venjulegum leiktíma. 21.5.2022 21:30
Mbappé hélt upp á nýja samninginn með því að skora þrennu Kylian Mbappé skoraði þrennu er París Saint-Germain valtaði yfir Metz 5-0 í lokaumferð frönsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta. 21.5.2022 21:01
„Fyrir mér mikilvægast að láta fótboltann tala“ Norska markadrottningin Ada Hegerberg var eðlilega í sjöunda himni eftir magnaðan 3-1 sigur Lyon á Barcelona í úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Ada var að sjálfsögðu á skotskónum en það er ekki sjálfsagt eftir undanfarin misseri hjá þessari mögnuðu íþróttakonu. 21.5.2022 20:40
Hjörtur í úrslit | Willum Þór tapaði í bikarúrslitum Það var misjafnt gengi þeirra Hjartar Hermannssonar, leikmanns Pisa á Ítalíu, og Willum Þórs Willumssonar, leikmanns BATE Borisov í Hvíta Rússlandi. 21.5.2022 20:15
Lyon er Evrópumeistari | Sjáðu mörkin og atvikin Sara Björk Gunnarsdóttir og stöllur hennar í Lyon eru Evrópumeistarar kvenna í fótbolta eftir ótrúlegan 3-1 sigur á Barcelona. Sara Björk Gunnarsdóttir sat allan tímann á varamannabekk Lyon. 21.5.2022 19:00
Hólmbert Aron og félagar ósigraðir á toppnum Hólmbert Aron Friðjónsson lék tæpan hálftíma er Lilleström vann 4-1 útisigur á Sandefjord í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. 21.5.2022 18:31
Jón Dagur byrjaði í sínum síðasta leik fyrir AGF Lokaumferð dönsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta hófst í dag. Í dag var fall-umspilið klárað en á morgun kemur í ljóst hvaða lið verður meistari. Íslendingalið FC Kaupmannahafnar er með pálmann í höndunum. 21.5.2022 17:31
Albert lék í enn einu tapi Genoa | Leika í B-deildinni á næstu leiktíð Íslenski landsliðsmaðurinn Albert Guðmundsson var í byrjunarliði Genoa er liðið tapaði 0-1 á heimavelli fyrir Bologna í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Genoa er fallið niður um deild og leikur í Serie B á næstu leiktíð. 21.5.2022 17:15
Sunderland upp í ensku B-deildina Sunderland vann Wycombe Wanderers 2-0 á Wembley í úrslitaleik umspils ensku C-deildarinnar í dag. Þar með er ljóst að Sunderland er komið aftur upp í B-deildina. 21.5.2022 16:15
Líkir úrslitaleiknum við hina fullkomnu kvikmynd en er sjálfri líkt við Iniesta og Busquets Alexia Putellas er prímusmótor Barcelona, besta fótboltaliðs í heimi. Hún mun stýra spili liðsins er það mætir Lyon í úrslitum Meistaradeildar Evrópu síðar í dag. Þar mætast nútíð og fortíð, besta lið heims gegn liðinu sem drottnaði yfir Evrópu til fjölda ára. 21.5.2022 09:00