Ari Freyr vill sjá Lars taka við landsliðinu og stefnir sjálfur til Svíþjóðar Landsliðsmaðurinn Ari Freyr Skúlason segist vilja sjá Lars Lagerbäck sem næsta þjálfara íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu. Vinstri bakvörðurinn segist vera skoða sín mál og það komi til greina að spila í Svíþjóð á nýjan leik. 12.12.2020 12:31
Meiddist í þýðingarlitlum leik í Danmörku og gæti nú misst af leik helgarinnar Diogo Jota hefur byrjað tímabilið frábærlega með Englandsmeisturum Liverpool en hann gæti nú misst af leik liðsins um helgina vegna meiðsla á hné. 12.12.2020 11:45
Sara Björk knattspyrnukona ársins KSÍ tilkynnti í gær að Sara Björk Gunnarsdóttir væri knattspyrnukona ársins 2020. Sjötta árið í röð. Sveindís Jane Jónsdóttir og Glódís Perla Viggósdóttir komu þar á eftir í valinu að þessu sinni. 12.12.2020 11:16
Íslandsbaninn Szoboszlai skiptir um orkudrykkjarlið Dominik Szoboszlai mun ganga í raðir RB Leipzig í janúar. Gangi það eftir verður hann einn fjölda leikmanna sem hafa farið þá leið að skipta úr einu Red Bull-liðinu yfir í annað. 12.12.2020 10:30
Í góðri stöðu til að vinna sitt annað risamót aðeins 22 ára gömul Kylfingurinn sem gengur undir gælunafninu hin Brosmilda Öskubuska hefur svo sannarlega ástæðu til að brosa þegar tveimur hringjum er lokið á Opna meistaramótinu í golfi kvenna megin. 12.12.2020 09:45
Mun Atlético enda vonir Real um að verja titilinn eða eru meistararnir komnir á beinu brautina? Stórleikur helgarinnar á Spáni er viðureign erkifjendanna Real og Atlético Madrid. Fari það svo að síðarnefnda liðið vinni leikinn þá verður það með níu stiga forystu á nágranna sína ásamt því að eiga leik til góða, þegar aðeins þriðjungur mótsins er búinn. 12.12.2020 09:01
Lewis Hamilton verður með um helgina Heimsmeistarinn í Formúlu 1 snýr aftur fyrir kappakstur helgarinnar eftir að hafa greinst með kórónuveiruna og misst af síðasta kappakstri sem fram fór í Barein. 11.12.2020 23:01
LeBron James valinn íþróttamaður ársins hjá Time Þrátt fyrir að verða meistari með Los Angeles Lakers á einu undarlegasta NBA-tímabili í manna minnum þá er það sem LeBron afrekaði utan vallar það sem leiddi til þess að tímaritið Time valdi hann íþróttamann ársins. 11.12.2020 17:01
Sjáðu færið sem Albert brenndi af í naumu tapi AZ í gær Landsliðsmaðurinn Albert Guðmundsson brenndi af ótrúlegu færi í naumu tapi AZ Alkmaar gegn Rijeka í Evrópudeildinni í gær. Tap AZ þýðir liðið missti af sæti í 32-liða úrslitum keppninnar en jafntefli hefði dugað liðinu til að komast áfram. 11.12.2020 16:01
Heimir og Rúnar hafa ekkert heyrt í KSÍ Heimir Guðjónsson og Rúnar Kristinsson hafa ekkert heyrt í Knattspyrnusambandi Íslands varðandi stöðu þjálfara A-landsliðs karla í knattspyrnu. 11.12.2020 14:30