Sara Björk ofarlega á lista Guardian yfir hundrað bestu leikmenn heims Enski miðill The Guardian velur ár hvert 100 bestu knattspyrnukonur ársins. Landsliðsfyrirliði Íslands, Sara Björk Gunnarsdóttir, er í 24. sæti listans fyrir árið 2020. 10.12.2020 11:01
Ísland endar árið í 46. sæti FIFA-listans | Belgía á toppnum FIFA birti í dag uppfærðan heimslista, þann síðasta fyrir árið 2020. Ísland er í 46. sæti, Belgía endar þriðja árið í röð á toppi listans og Ungverjaland er sú þjóð sem stökk hvað hæst upp listann á árinu 2020. 10.12.2020 09:45
Heimavöllurinn stækkar við sig | Forsala á Lyon-treyju Söru Bjarkar Heimavöllurinn er að færa út kvíarnar og hefur nú opnað sína eigin vefsíðu. Á síðunni er hægt að kaupa treyju Evrópumeistarans Söru Bjarkar Gunnarsdóttur. Hægt er að fá áritaða Lyon-treyju frá landsliðsfyrirliðanum þangað til á miðnætti í kvöld. 10.12.2020 07:01
Dagskráin í dag: Albert og félagar þurfa sigur í Króatíu Við sýnum fjölda leikja í Evrópudeildinni í knattspyrnu í dag. Albert Guðmundsson og félagar í AZ Alkmaar þurfa á sigri að halda gegn Rijeka til að komast áfram í 32-liða úrslit. Þá er golf einnig á dagskrá. 10.12.2020 06:01
Sigvaldi Björn hjá Kielce þangað til 2022 Handknattleiksmaðurinn Sigvaldi Björn Guðjónsson framlengdi í dag samning sinn við pólska stórliðið Łomża Vive Kielce. Er hann nú samningsbundinn til ársins 2022. 9.12.2020 23:01
Bára Kristbjörg til liðs við Kristianstad í Svíþjóð Bára Kristbjörg Rúnarsdóttir mun ekki stýra liði Augnabliks í Lengjudeild kvenna í knattspyrnu næsta sumar þar sem hún er nýr þjálfari U17 og U19 ára liða Kristianstad í Svíþjóð. Elísabet Gunnarsdóttir hefur stýrt aðalliði félagsins við góðan orðstír undanfarin ár. 9.12.2020 22:30
Þægilegt hjá Bayern, Atlético, Man City og Porto Bayern München, Atlético Madrid, Manchester City og Porto voru öll komin áfram í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar er leikir kvöldsins hófust. Það breytti því ekki að öll fjögur lið unnu sína leiki ásamt því að halda marki sínu hreinu. 9.12.2020 22:15
Benzema skaut Real í 16-liða úrslit | Inter endaði á botni riðilsins Karim Benzema skoraði bæði mörk Real Madrid í 2-0 sigri á Borussia Mönchengladbach í B-riðli Meistaradeildar Evrópu. Inter Milan og Shakhtar Donetsk gerðu markalaust jafntefli í Mílanó sem þýðir að Inter er fallið úr leik. 9.12.2020 21:55
Haukur Helgi stigahæstur í naumu tapi Haukur Helgi Pálsson var stigahæstur er lið hans MoraBanc Andorra tapaði með sex stiga mun á heimavelli gegn Lokomotiv-Kuban í Evrópudeildinni í körfubolta í kvöld, lokatölur 100-106. 9.12.2020 21:46
Bielsa ekki í neinum feluleik: Gaf upp byrjunarliðið á blaðamannafundi Marcelo Bielsa er ekki alveg eins og hinn hefðbundni knattspyrnuþjálfari. Hann kom enn og aftur á óvart á blaðamannafundi í dag er hann gaf upp byrjunarlið Leeds United fyrir leik liðsins gegn West Ham United á föstudaginn. 9.12.2020 21:31