Albanía nefnd sem mögulegur leikstaður Alls óvíst er hvar eða hvort leikur Englands og Íslands í Þjóðadeildinni í knattspyrnu fari fram. Leikurinn á að fara fram á Wembley í næstu viku en þar sem íslenska liðið kemur frá Danmörku til Englands er alls óvíst hvað gera skal. 9.11.2020 20:16
Telur ólíklegt að hann haldi áfram starfi sínu hjá U21 landsliði Íslands Eiður Smári Guðjohnsen, nýráðinn aðalþjálfari FH til tveggja ára, segir ólíklegt að hann haldi áfram starfi sínu hjá U21 árs landsliði Íslands í knattspyrnu. 9.11.2020 19:16
Sky Sports: England gæti þurft að gefa leikinn gegn Íslandi Samkvæmt heimildum Sky Sports gæti enska landsliðið þurft að gefa leikinn gegn Íslandi fari svo að leikur Íslands og Danmerkur fari fram. 9.11.2020 18:30
Flestir leikmenn frá FH í hópnum fyrir leikina mikilvægu hjá U21 landsliðsinu Íslenska karlalandsliðið skipað leikmönnum 21 árs og yngri mætir Ítalíu á Víkingsvelli á fimmtudaginn kemur í gríðar mikilvægum leik áður en það mætir Írlandi og Armeníu ytra. FH er það lið sem á flesta leikmenn í leikmannahópi landsliðsins að þessu sinni. 7.11.2020 12:31
Gunnhildur Yrsa: Búnar að spila saman í allt sumar og það gleymist ekki á einum mánuði Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir, einn af markaskorurum Vals í öruggum 3-0 sigri á HJK Helsinki frá Finnlandi í undankeppni Meistaradeildar Evrópu, var eðlilega mjög ánægð með sigur dagsins. 4.11.2020 18:31
Pétur Péturs: Spennandi að spila í Meistaradeildinni, spennandi að ná árangri Pétur Pétursson var eðlilega mjög sáttur með 3-0 sigur Vals á HJK Helsinki í undankeppni Meistaradeildar Evrópu í dag. Sigurinn einkar öruggur og segja má að upplegg Vals hafi gengið nær fullkomlega upp í dag. 4.11.2020 17:31
Frábær pressa Vals skilaði þeim örugglega áfram í Evrópu Leikur Vals og HJK frá Helsinki í Finnlandi í undankeppni Meistaradeildar Evrópu í dag. Valur byrjaði leikinn hreint frábærlega og gekk í raun frá finnska liðinu á rúmum hálftíma, staðan þá 3-0. Reyndust það lokatölur leiksins að Hlíðarenda í dag. 4.11.2020 16:50
Hamilton segir ekkert öruggt með framtíð sína Lewis Hamilton, einn besti ökumaður Formúlu 1 frá upphafi,hefur gefið til kynna að hann gæti hætt keppni er þessu keppnistímabili lýkur. 2.11.2020 07:00
Dagskráin í dag: Ítalski og spænski boltinn Tveir leikir eru í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og hliðarrásum í dag. Annars vegar er einn leikur á dagskrá í spænska boltanum og hins vegar einn í ítalska boltanum. 2.11.2020 06:01
Mahomes frábær í stórsigri Kansas | Steelers enn með fullt hús stiga Nokkrum af leikjum kvöldsins er nú lokið í NFL-deildinni. Ríkjandi meistarar í Kansas City Chiefs unnu stórsigur á New York Jets. Pittsburgh Steelers eru enn með fullt hús stig og hörmulegt gengi New England Patriots heldur áfram. 1.11.2020 23:00