Fréttamaður

Sigurgeir Þorkelsson

Sigurgeir er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Dró sér fé sem gjald­keri fram­boðsins

Rödd unga fólksins hefur upplýst um fjárdráttarmál innan flokksins sem upp kom snemma á síðasta ári. Grunur hafi þá vaknað um að Sævar Þór Birgisson, þáverandi bæjarfulltrúi og gjaldkeri flokksins, hafi dregið til sín töluverða fjármuni og málið kært til lögreglu. Rödd unga fólksins hefur átt fulltrúa í sveitarstjórn Grindavíkur síðastliðin tvö kjörtímabil.

Reyndist fangi undir raf­rænu eftir­liti

Lögreglan handtók ökumann miðsvæðis í Reykjavík grunaðan um að keyra undir áhrifum fíkniefna. Maðurinn reyndi að skipta um sæti við mann í farþegasætinu í miðjum akstri eftir að lögregla varð þeirra vör. 

Tóku rök fé­lagsins til greina og tvö­földuðu svo sektina

Neytendastofa hefur lagt stjórnvaldssekt að upphæð fjögur hundruð þúsund krónum á fyrirtækið Happyworld fyrir að auglýsa útsýnisflug á fisflugvélum. Aðeins megi fljúga þeim til skemmtunar og íþrótta og óheimilt er að fljúga fisflugvélum í atvinnuskyni.

Rauður dagur í Kaup­höllinni

Kauphöllin var lengst af glóandi rauð í dag. Örfá fyrirtæki náðu þó að snúa vörn í sókn síðustu klukkustundina af opnun hennar og enduðu í grænu. Mest var hækkun Haga upp á 0,81% en viðskipti með bréf félagsins námu sextíu og þremur milljónum. Mesta lækkunin varð á bréfum Alvotech, um 4,76%, í viðskiptum upp á tæpar nítíu og fimm milljónir.

Hjalla­stefnan fær loksins hús­næði

Hjallastefnan stefnir á að opna nýjan leik- og grunnskóla fyrir fjögur hundruð börn við Nauthólsveg í Reykjavík. Kennt verður upp í sjöunda bekk á grunnskólastigi. Skólinn mun taka við af núverandi starfsemi Hjallastefnunnar í Öskjuhlíð. Stefnt er að því að hefja framkvæmdir um mitt ár 2027.

Beint streymi: Fram­tíð mat­væla­fram­leiðslu á Ís­landi

Árlegt málþing Matís um framtíð rannsókna og nýsköpunar í matvælaframleiðslu á Íslandi fer fram í Norðurljósasal Hörpu. Dagskrá hefst klukkan níu og verður í beinu streymi hér á Vísi. Fundarstjóri verður Bergur Ebbi Benediktsson og stendur dagskráin til klukkan 12:30.

Flug­maður hjá Icelandair opnar bók­haldið

Flugmaður hjá Icelandair segir ekki við flugmenn að sakast að þeir vilji ekki selja frá sér kjarasamningsbundna frídaga. Þeir séu aðeins níu í hverjum mánuði og ekki sé hægt að byggja rekstur heils flugfélags á að stöðugt sé gengið á þá.

Veita sex­tán milljarða evra til Ung­verja­lands

Úrbætur nýrrar ríkisstjórnar Ungverjalands gera Evrópusambandinu kleift að losa um sextán milljarða evra fjárframlög til landsins. Fjárframlögin höfðu verið fryst í valdatíð Viktors Orbán sem færði Ungverjaland fjær grunngildum Evrópusambandsins um lýðræði og mannréttindi.

Sjá meira