Íslenskir dómarar á EM Jónas Elíasson og Anton Gylfi Pálsson verða á ferðinni á Evrópumótinu í handbolta í janúar. Þeir eru á meðal 18 dómarapara frá jafnmörgum löndum sem dæma á mótinu. 10.9.2021 14:46
Góðar fréttir af Aroni sem spilar samt ekki næstu vikurnar Betur fór en á horfðist hjá Aroni Pálmarssyni, landsliðsfyrirliða í handbolta, sem þó verður frá keppni næstu vikurnar eftir að hafa meiðst í leik með sínu nýja liði Aalborg í Danmörku. 10.9.2021 10:01
Valdi Ísland fram yfir Noreg eftir símtalið við Þorstein „Ég er alla vega að fara í þetta verkefni þannig að þá er ég búin að velja Ísland,“ segir knattspyrnukonan efnilega Amanda Andradóttir sem var í vikunni valin í íslenska A-landsliðið í fyrsta sinn. Hún gat valið á milli Noregs og Íslands en kaus bláu treyjuna. 10.9.2021 08:31
Leikurinn við Ísland vinsælasta efnið í þýsku sjónvarpi í gær Áhugi Þjóðverja var mikill á leiknum við Ísland í undankeppni HM karla í fótbolta í gær. Fleiri sáu þann leik en leiki Þýskalands við Armeníu og Liechtenstein. 9.9.2021 16:45
Ákvörðun um Kolbein tekin í næstu viku Rannsókn sænska knattspyrnufélagsins IFK Gautaborg á máli Kolbeins Sigþórssonar ætti að ljúka í byrjun næstu viku og þá skýrist hvort hann á sér framtíð hjá félaginu. 9.9.2021 14:00
Tap Íslands eitt það óvæntasta Nú þegar 149 leikir hafa verið spilaðir í undankeppni HM karla í fótbolta er 2-0 tap Íslands gegn Rúmeníu síðasta fimmtudag talið meðal óvæntustu úrslitanna. 9.9.2021 13:01
Aron meiddur af velli: „Auðvitað hef ég áhyggjur“ Aron Pálmarsson varð að hætta leik með Aalborg gegn Ringsted í gær eftir að hafa spilað í tuttugu mínútur, vegna meiðsla í mjöðm. 9.9.2021 11:31
Sigur í dag færir Breiðabliki 75 milljónir og leiki fram að jólum Breiðablik er öruggt um að fá rúmar 20 milljónir króna fyrir að spila gegn króatíska liðinu Osijek í dag. Sigur færir liðinu að lágmarki 75 milljónir og leiki við einhver af bestu liðum Evrópu fram að jólum. 9.9.2021 09:30
Umfjöllun: Ísland - Þýskaland 0-4 | Aldrei vonarglæta gegn Þjóðverjum Þýskaland vann 0-4 sigur á Íslandi í J-riðli undankeppni HM 2022 á Laugardalsvelli í kvöld. Þetta var fjórða tap Íslendinga í sex leikjum í undankeppninni og þeir eru án sigurs í fimm heimaleikjum í röð. 8.9.2021 20:45
Blikar fá að spila 60 milljóna leikinn þrátt fyrir að leikmaður hafi smitast Einn leikmaður Breiðabliks hefur greinst með kórónuveirusmit í aðdraganda seinni leiksins við króatíska liðið Osijek, í undankeppni Meistaradeildar Evrópu á morgun. 8.9.2021 13:45