Arnar verður að sitja á sér í stúkunni í kvöld Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkings R., verður eflaust í hópi þeirra 20 áhorfenda sem mega mæta og horfa á leik Víkings við Fjölni í Grafarvogi í kvöld. 20.8.2020 12:30
KR í sóttkví í þriðja sinn í sumar vegna smits KR-konur í fótbolta eru komnar í sóttkví eftir að smit greindist hjá liðinu. Er þetta í þriðja sinn sem að leikmenn úr liðinu þurfa að fara í sóttkví í sumar. 20.8.2020 12:05
Arftaki Arons fundinn Aron Kristjánsson varð að gefa frá sér starfið sem þjálfari karlalandsliðs Barein í handbolta, og fórna þar með ferð á Ólympíuleikana í Tókýó. Arftaki hans er nú fundinn. 19.8.2020 18:00
Einn mótherja Víkings smitaður en liðið vill byrja að æfa Slóvenska knattspyrnufélagið Olimpija Ljubljana kallar enn eftir því að leikmenn liðsins losni úr sóttkví og fái að byrja að æfa fyrir leikinn við bikarmeistara Víkings R. sem fram fer í Slóveníu eftir átta daga. 19.8.2020 15:30
Vongóður um að fótboltalið fari í vinnusóttkví og geti spilað Unnið er að því hörðum höndum að fá botn í það hvort að landsleikir og Evrópuleikir í fótbolta geti farið fram hér á landi þrátt fyrir reglur um sóttkví. Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn er bjartsýnn á að það gangi upp og segir málið skýrast á næstu dögum. 19.8.2020 13:05
Stefnir í sögulegan sigur Færeyinga vegna smits Útlit er fyrir að færeyska meistaraliðinu KÍ verði úrskurðaður 3-0 sigur í einvígi sínu við Slóvakíumeistara Slovan Bratislava í 1. umferð undankeppni Meistaradeildar Evrópu í fótbolta. 19.8.2020 10:00
Kristian Nökkvi með Ajax í undanúrslit Kristian Nökkvi Hlynsson, fyrrverandi leikmaður Breiðabliks, er kominn með Ajax í undanúrslit Evrópukeppni ungmennaliða í fótbolta. 18.8.2020 16:49
Guðrún Karítas til Fylkis Knattspyrnukonan Guðrún Karítas Sigurðardóttir er gengin í raðir Fylkis frá Íslandsmeisturum Vals. Hún skrifaði undir samning sem gildir út leiktíðina 2022. 18.8.2020 15:15
Blikar ekki í sóttkví í Noregi - Nýr þjálfari tekur við Rosenborg eftir leik Norska knattspyrnufélagið Rosenborg kynnti í dag hinn reynslumikla Åge Hareide sem nýjan þjálfara liðsins. Hann mun þó ekki stýra liðinu gegn Breiðabliki. 18.8.2020 14:31
Hart kominn til Tottenham Joe Hart, sem lék 75 leiki sem landsliðsmarkvörður Englands, er genginn í raðir Tottenham. Hann kemur frítt til félagsins. 18.8.2020 13:15