Fréttamaður

Smári Jökull Jónsson

Smári Jökull er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Guð­mundur Ari í vara­for­manninn

Guðmundur Ari Sigurjónsson þingflokksformaður Samfylkingarinnar hefur ákveðið að bjóða sig fram til varaformanns flokksins. Þessu greinir hann frá í færslu á Facebook en Guðmundur Árni Stefánsson tilkynnti að loknum sveitastjórnarkosningum að hann myndi hætta sem varaformaður á haustdögum.

Flug­virkjar hafi þegar fengið hækkanir

Forstjóri Icelandair segir að ef flugvirkjar samþykki að fara í verkfall hafi það verulega alvarlegar afleiðingar fyrir félagið sem nú þegar glími við krefjandi aðstæður. Hann segir að þó samningur flugvirkja sé sex ára gamall hafi komið til hækkanir á samningstímabilinu í takt við þróun á almennum vinnumarkaði.

Lokuðu einni mikil­vægustu olíu­leiðslunni

Sádi-Arabar hafa lokað einni mikilvægustu olíuleiðslu landsins eftir drónaárásir sem Írakar eru taldir bera ábyrgð á. Atvikið er nýjasta dæmið um útbreiðslu átakanna fyrir botni Persaflóa og setja aukinn þrýsting á alþjóðlegar olíuflutningaleiðir.

Trúir á lausn þrátt fyrir van­trausts­til­lögu

Formaður SÁÁ segir að vantrautsyfirlýsing starfsmanna sé litin alvarlegum augum. Hún vill ekki tjá sig um hvort afsögn komi til greina og segist trúa að hægt sé að byggja upp traust þó staðan sé erfið.

Fæddi barn utan við verslun Elko

Barn fæddist fyrir utan verslun Elko í Skeifunni í gærkvöldi en Rúv greindi fyrst frá. Að sögn Sigurjóns Hendrikssonar hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu koma atvik sem þetta öðru hverju fyrir og slökkviliðsmenn hafa tekið á móti börnum á ýmsum stöðum.

Fal­legar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins

Mesti sögumaðurinn og húmoristinn sem bjó yfir þeirri galdralist að geta gætt orð lífi. Þannig er Steins Ármanns Magnússonar meðal annars minnst í minningargreinum í Morgunblaðinu í dag. Steinn Ármann verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði klukkan 13:00 í dag en bein útsending verður frá útförinni á Vísi.

Út­gjöldin mikil en niður­staðan rýr

Ísland er á meðal neðstu PISA-þjóða þegar tekin er saman tölfræði um fylgni á milli útgjalda ríkisins til menntamála og stigafjölda í PISA-rannsókninni. Útgjöld til menntamála á Íslandi eru á meðal þeirra mestu í heimi á hvern nemanda en peningarnir virðast ekki nýtast kerfinu til að búa til afburðanemendur.

„Viljið þið gjöra svo vel að fyrir­gefa mér af öllu hjarta“

Inga Sæland segir að henni hafi orðið fótaskortur á tungunni þegar hún hvatti fólk til að gerast „leikskólakennarar og alvöru kennarar“ í viðtali um skólamál í Reykjavík síðdegis í gær. Biður hún leikskólakennara afsökunar og segist líta ofboðslega mikið upp til stéttarinnar.

Sjá meira